Sameiningin - 01.01.1951, Side 3
Sameíningjn__________________________________
A monthly, in support of Church and Christianity amongst Icelanders
Published by
The Evangelical Lutheran Synod op North America
Authorized as Second Class Mail, Post Office Department, Ottawa.
Edítor: REVEREND RÚNÓLFUR MARTElNSSON, D. D..
739 Alverstone St., Winnipeg, Manitoba, Canada
Treasurer: MRS. B. S. BENSON, 695 Sargent Ave. Winnipeg, Man., Can,
ÁRAMÓT
Eftir séra SIGURÐ ÓLAFSSON
—(2. Móse. 15:22.-27.)
Mitt í jólagleði kristins fólks kemur alvara áramótanna:
gamla árið rennur út í ómælishaf tímans og dagrenning
nýja ársins minnir oss jarðarbörnin á að tíminn líður óðum
hjá; að hér á jörð erum vér „útlendingar og gestir, eins og
allir vorir feður — sem skuggi eru dagar vorir á jörðinni11.
Ég hefi valið brot úr ferðasögu forn-ísraels sem mark-
mið hugsana vorra á þessum eyktamótum tímans er nú
stöndum vér. Þótt atburður sá er frá greinir, sé úr óra-
fjarlægð löngu liðins tíma, á hann eigi að síður táknræna
merkingu í sér fólgna fyrir oss, sem stöndum við opnar
dyr ársins nýja, og hefjum nú göngu vora inn á ókunna
vegu þess.
För ísraelsmanna um eyðimörkina minnir oss á hvern-
ig að framsókn mannkynsins á öllum öldum er lýðför um
veglausa eyðimörk, með hættum og hindrunum hvert helzt
sem að augum er litið. Baráttan milli frelsis og fjötra; er
framhaldandi og óþrotleg, jafnt fyrir mannkynið í heild
eins og hvern einstakan mann. Það er barátta, sem að aldrei
þrýtur. —
Ein af fyrstu hindrununum, sem Israelsmenn áttu við
að stríða, enda þegar í byrjun farar sinnar, var valnsskorl-
urinn. En án drykkjarvatns gátu þeir ekki þreytt göngu