Sameiningin - 01.01.1951, Side 4
2
Sameiningin
sína áleiðis til fyrirheitna landsins, og hlutu að örmagnast
á för sinni.
Þetta minnir oss á hversu ókleyft það er fyrir menn
og þjóðir að sækja fram í sigrandi baráttu, nema að traustið
til algóðs Guðs, á náð hans og handleiðslu sé hinn lífgandi
máttur í baráttu og stríði hversdagslífsins, er gerir menn
hæfa til að sækja fram á sigurleið. Án þeirrar endurnær-
ingar sem trúin veitir getum vér ekki sigrandi gengið á
hinni torsóttu leið vorri, frá vöggu til grafar. Mátturinn
til sigurs fæst eingöngu í samfélagi við algóðan Guð í ör-
uggri von og sigrandi trú. Sú er reynsla manna á öllum
öldum.
Árla í eyðimerkurförinni er frá því sagt að ísrael kom
til Mara og dvöldu þeir þar um hríð. Þótt þar væri gnægð
drykkjarvatns var sá ljóður á, að vatnið þar var ódrekk-
andi sökum þess hversu beiskt það var. Fyrir þekkingu
Móse og hlýðni hans við leiðsögn Guðs, gat hann eytt
beiskju vatnsins með því að láta tré nokkurt í vatnið, er
nam brott beiskju þess og gerði það sætt á bragðið, veitti
þyrstum endurnýjaðan lífsþrótt og svölun.
Beiska vainið er táknræn merking þess að reynsla vor,
er vér verðum svo oft að þola, er engu líkari en ódrekkandi
vatni; bikar er oss finnst, að vér ekki getum drukkið;
reynsla vor oft þess eðlis, að oss finnst að vér hvorki
getum mætt henni eða borið hana. í bitrustu eldraun ævi
sinnar í Getsemanegarði, horfandi í augu við krossinn, er
óðum færðist nær, sagði sjálfur frelsarinn: „Ef mögulegt
er, þá líði þessi kaleikur hjá mér, en þó ekki sem ég vil,
heldur sem þú vilt“. Höfum vér ekki á vorn mannlega hátt,
þannig hugsað og beðið, þegar sár og óvænt reynsla féll
oss í hlut?
Tréð, er nam brott beiskju drykkjarvatnsins í Mara;
er táknræn mynd af lífsins tré: boðskapur fagnaðarerindis
Jesú og persónu hans, er fær bætt raunir lífsins og gert
þær þolanlegar. 1 boðskap fagnaðarerindisins er svölun að
finna við þorsta þeim, er sálir manna kenna til. undir
krossburði mannlegs lífs. Beiskja mannlegrar reynslu fær
sætleik við áhrifin frá lífsins tré og færir lækningu við
lífsins djúpu meinum.
Fyrir nokkrum árum siðan kyntist ég yngri manni,