Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.01.1951, Side 6

Sameiningin - 01.01.1951, Side 6
4 Sameiningin Koma biskupshjónanna til Winnipeg Eftir séra VALDIMAR J. EYLANDS Herra Sigurgeir Sigurðsson, dr. theol. biskup yfir Is- landi, og Guðrún Pétursdóttir, frú hans, heimsóttu Win- nipeg íslendinga um jólin, og dvöldu hér í vikutíma. Enda þótt hér væri aðeins um skyndiheimsókn að ræða, verður koma þeirra hjóna vafalaust talin með helztu viðburðum hins nýliðna árs, í meðvitund íslendinga hér í borginni. Biskupinn hafði komið hingað áðpr, er hann fyrir nokkrum árum sat tuttugu og fimm ára afmælisþing Þjóðræknis- félags íslendinga í Vesturheimi, sem fulltrúi ríkisstjórnar Islands. Ávann hann sér þá strax almenna hylli fólks, sak- ir glæsimennsku sinnar, glaðværðar og prúðrar framkomu Var mönnum yfirleitt því hið mesta gleðiefni að sjá hann aftur og rifja upp gömul kynni. Jók það ei lítið á gleði inanna í þetta sinn, að hin glæsilega kona hans var með i förinni. En hún er manni sínum engu síðri um mannkosti og hæfileika til að vinna og halda vináttu manna. Allstaðar koma þau hjón fram til góðs, og flytja með sér birtu og yl, hvar sem þau ber að dyrum. Það var því sízt að undra að margir vildu njóta heimsókna þeirra, en tímans vegna fengu það miklu færri en vildu. Úr þessu varð þó nokkuð bætt með því að biskupinn kom fram opinberlega, — pré- dikaði í báðum íslenzku kirkjunum hér, í Sambandskirkj- unni á aðfangadagskvöld, og í Fyrstu lútersku kirkju á jóladaginn. Mikill fjöldi fólks notaði tækifærið til að hlusta á hinn þróttmikla boðskap hans, og taka í hönd þeirra hjóna að afstaðinni messugjörð. Einnig hélt stjórnarnefnd Þjóð- ræknisfélagsins þeim samsæti. Það er sérstök ástæða til þess að Vestur-íslendingar fagni þessum yfirhirði íslenzku þjóðkirkjunnar. Hann er fyrsti, og eini biskup íslands sem á embættistíð sinni hefir sótt okkur heim. Sem forseti Þjóðræknisfélags íslands hefir hann um margra ára skeið staðið í fylkingarbroddi þeirra manna á ættjörðinni sem stöðugt rétta vinar hendur vestur yfir hafið til okkar hér. Við, sem notið höfum þeirrar á- nægju að heimsækja ættjörðina nú á síðari árum, vitum

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.