Sameiningin - 01.01.1951, Blaðsíða 8
6
Sameiningin
ir verið í undirbúningi síðan í sumar. Blaðið hóf göngu
sína í janúar-byrjun. Flytur það kirkjufréttir og ræðir krist-
indómsmál; gefur og gaum að almennum tíðindum, sem
snerta kirkju og kristindóm að einhverju leyti.
----------☆---------
Missouri synodan lúterska hefir ákveðið að safna tíu
miljón dölum á næstu tveim árum. Sex miljónum af því
fé verður varið til styrktar æðri skólum þess kirkjufélags,
en hitt gengur til trúboðs heima fyrir og erlendis.
----------•☆•-------
Dr. Franklin Clark Fry, forseti Sameinuðu kirkjunnar
lútersku, má nú teljast góður og gildur Indíáni. Rauðskinn-
ar í Iowa gjörðu hann að kjörsyni og „heiðurshöfðingja“
kynkvíslar sinnar, þegar þing Sameinuðu kirkjunnar stóð
víir í Des Moines í haust.
----------☆---------
Internaiional Bible Insiitute heitir skólastofnun á Eng-
landi, sem Frederick H. Squire, fyrrum liðsmaður í Hjálp-
ræðishernum, setti á fót fyrir þrem árum. Skólinn veitir
ungu fólki tveggja ára nám í biblíufræðum og kristindómi
og þjálfar námsmannahópinn sérstaklega til trúboðs í þeim
héruðum Norðurálfunnar, þar sem Hitlersmenn fyrst; og
síðan kommúnistar, hafa ráðið lögum og lofum.
Squire annaðist líknarstarf á Þýzkalandi eftir ófriðinn,
og honum ofbauð sú andlega hungursneyð, sem þar lá víð-
ast í landi. Af þeirri sök stofnaði hann þennan skóla. Hann
velur sjálfur nemendurna. Taka þeir hér um bil allir til
starfs í hernámshéruðum kommúnista, þegar þeir ljúka
námi.
----------☆---------
Kirkjuráð Bandaríkjaþjóðar — National Councii of ihe
Churches of Christ in the United States — var stofnað eins
og til stóð í byrjun desembermánaðar í borginni Cleveland
í Ohio. Stofnunarþingið sóttu sex hundruð erindrekar, en
gestir og „athugunarmenn“ (observers) voru þar miklu fleiri
— nálægt þrem þúsundum að sögn. Hér um bil öll hin stærri