Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.01.1951, Síða 9

Sameiningin - 01.01.1951, Síða 9
Sameiningin 7 kirkjufélög í landinu eiga nú samstörf ýmiskonar á vegum kirkjuráðsins. Utan gátta stendur páfakirkjan vitaskuld, og eins Missouri synodan og Evangeliska kirkjan norska (báðar lúterskar); enn fremur Suður-baptistar og mörg smærri félög. Grísk-kaþólskir flokkar, einir þrír, gengu í sam- bandið. Með Sameinuðu kirkjunni lútersku hefir nú litla Kirkjufélagið okkar komist í hinn lang-stærsta félagsskap, kirkjulegan, sem til er í landinu. Kirkjuráðið telur 31 miljón meðlima. Það annast sameiginleg mál og störf ýmiskonar, sem kirkjufélögin trúa því fyrir. Samtakasviðið mun liggja að mestu í trúboði, uppfræðslumálum, og afstöðu kirkjunn- ar við almenn félagsmál. Henry Knox Merrill, forsætisbiskup i hérlendri deild ensku kirkjunnar, var kjörinn forseti kirkjuráðsins, mætur maður, og talinn ágætlega fallinn til þessa embættis. ---------☆---------- ;,Gleðirnar“ svo nefndu, eða fjölmennar skemtanir, sem fyr á öldum fóru fram um jólaleytið á nokkrum stórbæjum heima á íslandi, fengu snemma ilt orð á sig fyrir svall og ósiðsemi. Sumar þeirra voru „dæmdar af“, að mig minnir, í byrjun 18. aldar; þar á meðal „Jörfagleðin" alræmda vestur á Haukadal. Þó héldust „gleðirnar“ við á ýmsum stöðum lengi eftir það. „Yíða er pottur brotinn“. — Jólatíðin sætir nú svip- aðri vanhelgun hér vestan hafs á mörgum stöðum. Má nefna til þess gleðimótin, sem búða- og skrifstofufólk sækir í bæjum í jólavikunni. 1 þeim samkvæmum er einatt drabbað og drukkið og látið allskonar illum látum fram undir morg'- un. Þessi „skrifstofumót“ eða Office parties minna víst margan íslending á „gleðirnar“ sem nefndar voru. — Og þá þarf ekki að lýsa nýársnætur-svallinu, þegar ofdrykkjan og ólætin fara tíðum í algleyming. Leiðandi kennimenn, bæði kaþólskir og mótmælendur, töluðu djarft um ósóma þennan í vetur á jólaföstu. Verald- leg tímarit lögðu og orð í belg. Blaðið „Time“ minti les- endur sína á orð Páls postula, þau sem lesin eru í kirkjum á fyrsta sunnudag í aðventu: „Framgöngum sómasamlega, eins og á degi, ekki í ofáti né ofdrykkju, ekki í saurlifnaði né munaðarlífi

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.