Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.01.1951, Blaðsíða 10

Sameiningin - 01.01.1951, Blaðsíða 10
8 Sameiningin Robert Raikes og Sunnudagaskólinn Eftir G. J. OLESON Það hafa verið margvíslegar framfarir í heiminum síðastliðin 150 ár. Þegar maður lítur yfir aldirnar fram að byrjun 19. aldar, þá finst manni sem alt hafi staðið í stað og framþróunin hafi verið yfirtak hægfara, borið saman við hinar stórstígu framfarir á 19. og 20. öldinni; ekki hafa nú samt allar framfarir verið til blessunar mannkyninu og kemur það bezt í ljós, er maður athugar vígvélarnar, sem vísindin hafa lagt upp í hendurnar á mönnunum, og sem nú eru ósleitilega noðaðar til eyðileggingar, og sem máske á eftir að eyðileggja mannkynið, ef menn ekki sjá að sér í tíma. Til þess að ráða bót á þessu meini, þurfa mennirnir að sjá „meira ljós“. Já, það þurfa allir menn að verða kristnir menn, ekki einungis í orði, heldur líka í anda og sannleika. Það var morgunroði nýrrar tíðar þegar Sunnudaga- skólinn var stofnaður í lok 18. aldar og hefir það starf orðið mannkyninu til margfaldrar blessunar. Var það um 1780 að grundvöllurinn að honum var lagður í smáum stíl á Englandi, þar sem flestar endurbóta- og frelsishreyfingar hafa átt sín upptök. Maðurinn, sem hornsteininn lagði, var Robert Raikes, blaðamaður í Gloucester, hann var fæddur þar 1735. Faðir hans var ritstjóri Gloucester Journal, og þegar hann dó 1757 tók Robert sonur hans við ritstjórninni. Hann var lifandi endurbótamaður, og beitti hann blaði sínu gegn spillingunni, ranglætinu og margs konar áberandi misfellum í þjóðlífinu, sérstaklega barðist hann fyrir end- urbótum á hegningarlögum landsins og mannúðarlegri með- ferð á föngum. Fangelsin voru full af allskonar lýð sem ranglátt þjóðfélags fyrirkomulag skapaði; þar ægði öllu saman: forhertir glæpamenn og unglingar, konur og karlar, sem voru þar margir fyrir litlar eða engar sakir. Þá voru menn hnepptir í fangelsi fyrir skuldir smáar og stórar, og engri sanngirni eða réttlætistilfinningu beitt. Börn margra þeirra, sem í fangelsi sátu, ráfuðu um borgar strætin sem dýr merkurinnar, hungruð og illa á sig komin í leit eftir einhverri björg; í fangelsi voru mörg þeirra sett fyrir litlar eða engar sakir. Fangelsin voru herfilegustu mannabústað-

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.