Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.01.1951, Page 11

Sameiningin - 01.01.1951, Page 11
Sameiningin 9 ir, óhrein og köld, og án allra Jífsþæginda. Þarna voru aumingjarnir seku, hungraðir, sem næst klæðlausir, og í öllu tilliti við herfilega meðferð. Þetta og margt annað lét Robert Raikes sig miklu skifta, hann vann sem víkingur, en að græða peninga var ekki hans hugsjón, heldur mikið frekar að láta gott af sér leiða 1 mannfélaginu; hann vildi vekja þjóðina til umhugsunar um ástandið eins og það var. Honum ofbauð ástand æskulýðsins, sem með blóti og formælingum og í dróma siðleysis og þekkingarleysis. — þá voru engir skólar fyrir börn hinna fátæku — ráfaði í hópum um borgina. Hann ásakaði ekki unglingana; hann kendi í brjósti um drengina og vildi hjálpa þeim til betra og fullkomnara lífs. Hann skellti skuldinni á mannfélags fyrirkomulagið. Þegar honum var sagt að alþýðan gæti ekki tekið neinum framförum og hefði engan rétt til mentunar, þá mótmælti hann því sterklega, sagði að ríkið hefði engan rétt til að beita hegningarlögum, nema því aðeins að það gengi á undan með það að upplýsa þjóðina, og hjálpa henni áfram á braut lífsins til æðra siðgæðis og dygða, og fyRri kristilegrar menningar. Það var árið 1780, að Robert Raikes átti erindi í þann hluta borgarinnar, sem nefnt var Catherin’s Meadows, sem var með ömurlegustu fátækrahverfum í borginni (Slum) og þó hann hefði Rfað í Gloucester aRa æfina — 45 ár — þá varð hann svo steini lostinn yfir því að sjá svo ömurlega fátækt og vesaldóm eins og þarna horfðist í augu við hann. Alls staðar voru börn og unghngar í hópum sem villudýr merkurinn, horuð, klæðlítil og óhrein. Raikes sem var vinur æskunnar var mjög áhyggjufullur yfir því sem hann sá, hafði hann þó séð margt ljótt. Hann átti erindi við garð- yrkjumann, og er hann var að tala við konu garðyrkju- mannsins, barst honum til eyrna ógurleg hljóð, org, blót og formælingar frá þessum villuráfandi barnahópum. Hann spurði konuna hvort þessi börn ættu heima í þessu ná- grenni og kvað hún já við því, og ef þú værir hér á sunnu- dag, og heyrðir og sæir hvað hér fram fer, mundi þér óefað blöskra, því þá eru þau laus frá vinnu á verkstæð- unum og slá sér saman í hópa. Hávaðinn, öskrin og for- mælingarnar, eru svo hræðilegar að orð fá ekki lýst, Rkast því sem maður væri kominn í hinn eilífa kvalastað. Það sem Raikes sá þennan eftirminnilega dag varð til

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.