Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.01.1951, Side 12

Sameiningin - 01.01.1951, Side 12
10 Sameiningin þess, að hann ákvað að stofna Sunnudagaskóla, og ákvað að reyna að hjálpa þessum villuráfandi unglingum — drengj- um og stúlkum -— frá dauðanum til lífsins. Hann var í vafa um það, hvort það mundi hepnast og hafa árangur, en hann var fast ákveðinn í að gjöra tilraun. Robert Raikes fann fljótt konu, er Mrs. Meredith hét, sem fyrsta kennara, hún bjó í hverfi sem nefnt var Sooty Alley, sem var eitt ömurlegasta fátækrahverfi í borginni. Raikes borgaði henni 1 skilding fyrir að mega nota eld- húsið hennar á sunnudögum, fyrir skólann. Á þennan stað smalaði Raikes öllum þeim villuráfandi drengjum sem hann gat fest hendur á. Gekk þetta starf í fyrstu á ýmsum endum; strákarnir voru margir baldnir, og alveg óupplýstir, og réði Mrs. Meredith ekki vel við þá, er hún var ein, en hann hafði sérstakt lag á því að hafa vald yfir þeim. Og urðu margir þeirra honum brátt undirgefnir. Komst Raikes skömmu seinna í kynni við konu, sem hét Mary Critchley. Leizt honum vel á hana sem sunnudagaskóla kennara; hún átti sterkan vilja, og var góðum hæfileikum gædd; hún var mikil fyrir sér, og treysti Raikes henni til þess að hafa hemil á óþægu strákunum. Henni leizt vel á þetta áform Raikes, og hún flutti þegar í stað í stórt hús, sem var ná- lægt kirkju þeirri, sem þar var í hverfinu. Þarna stofnaði Robert Raikes í rauninni hinn fyrsta Sunnudagaskóla, því eldhúsið hjá Mrs. Meredith í Sooty Alley var til bráða- birgða, meðan leitast var við að finna annað betra pláss og hentugra, en nú var bætt úr því. Á þessu nýja heimili tóku nú Raikes og Critchley til starfa. Hann smalaði drengjunum þangað, og hún tók við þeim og lögðu þau bæði saman til að kenna þeim og skapa fyrir þá nýtt líf. Aðeins voru það drengir er boðið var í skólann í fyrstu. Raikes átti undir högg að sækja að fá þá til að koma í skólann og hún hafði fult í fangi að ráða við þá sem komu. Sumir stærri dreng- irnir komu fyrir forvitnissakir, og komu svo aldrei aftur. En smátt og smátt bættust nýir við og brátt fór skólinn að hafa betrandi áhrif á meiri hlutann. Og drengjunum, jafn vel þeim eldri, sem lengst voru komnir 1 spillingunni, fór að þykja vænt um Raikes, og þeir fóru að beygja sig undir vald hans. Tæpt stóð það fyrst í stað, að þau gæfust ekki upp. Stundum þegar tíminn var úti var Mrs. Critchley við það að gefast upp, henni fanst það bara tímaeyðsla, hún gat

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.