Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.01.1951, Qupperneq 13

Sameiningin - 01.01.1951, Qupperneq 13
Sameiningin 11 ekki séð árangurinn, og hún hafði svo litla von, að fram- tíðin yrði bjartari, en hann vildi ekki gefast upp og reyndi við hvert tækifæri að tala í hana kjark og sýna henni fram á að hér og þar vottaði fyrir ofurlitlum árangri, og loks kom að því að árangur var sýnilegur, drengirnir fóru að koma reglulega. „Við verðum að reyna, reyna, reyna áður en við gefumst upp“, sagði Raikes. Allar endurbótahreyfingar í heiminum hafa mætt grimmilegri mótspyrnu, í sumum tilfellum af því að það kom í bága við hagsmuni manna eins og til dæmis vínsal- an, eða örðugleikar við kristniboð Páls postula í Efesus, einnig trúleysi manna og hræðsla við allar nýjungar. Allir endurbótamenn eiga undir högg að sækja, og þurfa allan kraft, sem þeir eiga í sál sinni til að standa í fremstu víg- línu og sigra, og Robert Raikes var engin undantekning. Hann var ofsóttur leynt og ljóst, og svo var mótstaðan sterk að Pitt-stjórnin var komin á fremsta hlunn með það að banna sunnudagaskóla með lögum, en þó varð nú ekki af því. En uppörfun fékk hann litla fyrst í stað, jafnvel prest- arnir sumir gáfu þessu starfi lítinn gaum og jafnvel voru því andvígir, og sex ár liðu áður en kirkjufeðurnir í Glou- cester lögðu því nokkurt lið. Á Skotlandi var sérstaklega móstaðan mikil og einn skozkur leiðtogi sagði: „Þessir skólar mundu á endanum eyðileggja alt heimilis- og trúar- líf“. Á hinn bóginn leið ekki á löngu þar til margir fóru að veita þessu starfi eftirtekt og sannfærast um, að hér var eitthvað á ferðinni, sem var fagurt og nytsamlegt, og í hverjum stað, sem sunnudagaskóli var stofnaður var sýni- legur árangur. menn fóru að koma úr fjarlægum stöðum til að sjá með eig'in augum hvað var að gjörast, og brátt fór þessi hreyfing sem eldur í sinu um alt landið og alt fólk með heilbrigða sansa og skynsemi viðurkendi hreyfinguna og lagði henni lið. Skósmiður einn, James Kemp, að nafni gekk frá heimili sínu í fjarlægu þorpi til Gloucester 220 mílur til að sjá Sunnudagaskólann með eigin augum. Drottningin á Englandi sendi eftir Raikes, og fékk af hans eigin vörum sögu þessarar merkilegu hreyfingar, og konungurinn George III. gaf hreyfingunni sitt fulltingi. Til Bandaríkjanna barst fræið 1786 og fyrsti skóli var stofnaður í Hanover County í Virginia. Síðan hefir hann

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.