Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.01.1951, Síða 16

Sameiningin - 01.01.1951, Síða 16
14 Sameiningin búinn er nú að stríða/og sælan sigur vann“./Við leggjum aftur augun en horfum með okkar sálarsjón á blessaðan líf-gjafann okkar, sem er líðandi, blæðandi og deyjandi með andlit alblóðugt. Hann horfir í andlit Föður síns, með óviðjafnanlegri viðkvæmni og segir: „Faðir, fyrirgef þeim, því þeir vita ekki hvað þeir gjöra“. Þar verðum við alveg gagntekin af dásamlegri opinberun frá algóðum Guði og segjum við Drottin í þeirri hrifningu: „Ég má vel reikna auman mig, einn í flokki þeirra manna, sem í kvölinni þjáðu þig; það voru gjöld syndanna. En þú sem bætir brot mín hér, bið þú nú líka fyrir mér, svo fái ég frelsun sanna“. Á sömu stundu losnum við við syndina sem aðskilur okkur frá Guði. Hún er færð í burt frá okkur eins langt eins og austrið er frá vestrinu, en í staðinn fyrir hana flóir eilífa lífið inn í tilveru vora, því að „laun syndarinnar er dauði en náðargjöf Guðs er eilíft líf fyrir Jesúm Krist vorn Drottin“. Þá lyftum við hjörtum okkar til himins að náðarhásæti Drottins. Við föllum 1 anda við fætur hans, föðmum þær og segjum: „Hjartans instu æðar mínar elski lofi prísi þig, en hjartablóð og benjar þínar, blessi, hressi, græði mig. Hjartans þíðar þakkir fínar, þér sé gæzkan eilífleg“. Af öllu hjarta meðtökum við hann sem okkar persónu- legan Frelsara, og gefum honum okkar líf og biðjum hann um náð, að við megum elska hann og fylgja honum alla æfidaga vora. Við segjum: “My life, my love I give to Thee, Oh Lamb of God who died for me, Oh may I ever faithful be My Saviour and my God”.

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.