Sameiningin - 01.01.1951, Page 18
16
Sameiningin
þroska alt nytsemdarlíf jarðarinnar, eins leitar Guð að
instu hjartataugum mannanna, til þess að lífga þar alla
dygð og dásemd. Hann kom til mannkynsins í litlu barm
á jólunum. Hann sækist eftir að senda ljóma sinn inn í
allar sálir til að göfga þær og blessa, á öllum stundum,
alstaðar. Guð vill gjöra alt árið að jólum. Þessi orð um sól
Guðs fyrir það sem á að vaxa á jörðinni og sól Guðs fyrir
það, sem á að dafna í anda mannsins, leiðir að oss fögrum
orðum í spádómsbók Malakí: „Drottinn segir: yfir yður
sem óttist nafn mitt mun réttlætissólin upp renna með
græðslu undir vængjum sínum“. Og fagurlega lýsir Matt-
hías þeirri sól, með þessum orðum:
„Hún flytur líf og líknarráð,
hún ljómar heit af Drottins náð“.
Betlehemsstjarnan og nýárssólin báðar boða komu
Guðs. Lesari góður. „Getur nokkuð glatt þig fremur, Guð
þinn sjálfur til þín kemur?“
Hljómi þá frá sérhverju hjarta:
„Ég opna hlið míns hjarta þér,
ó, herra Jesú bú hjá mér,
að fái hjálparhönd þín sterk
þar heilagt unnið náðarverk“.
Sameiningin flytur öllum lesendum sínum einlægar
óskir og bænir um sanna velferð bæði líkamlega og andlega,
á árinu nýja, sem Guð hefir gefið oss, en sérstaklega vill
hún flytja sérhverjum þeirra þessa bæn:
„Ó, sjá þú Drottins björtu braut“.
Það er braut sannleikans og hins eilífa kærleika, braut
náðar og miskunnar. Eftir þeirri braut kemur Guð til þín
og færir þér gjafir sínar, en bezt allra gjafa hans er Jesús
Kristur. Þegar þú hefir af öllu hjarta tekið á móti honum
sem Frelsara þínum, þá hefir þú fundið brautina til Himna-
föðursins, því Jesús Kristur er vegurinn, sannleikurinn
og lífið. — Gefðu honum hjarta þitt. R. M.