Sameiningin - 01.12.1958, Blaðsíða 3
Sameiningin -------------------------------
A quarterly, in support of Chureh and Christianity amongst Icelanders
Published by
THE EVANGELICAL LUTHERAN SYNOD OF NORTH AMERICA
Authorized as Second Class Mail, Post Office Department, Ottawa
Editor: DR. V. J. EYLANDS
686 Banning St., Winnipeg 10, Manitoba, Canada
Treasurer: MRS. B. S. BENSON, 757 Plome St., Winnipeg 3, Manitoba
Jólin — æskci og elli
Séra K. K. Ólafsson
Jólin eru hátíð barnanna. Þau minnast fæðingar hins
helga Jesú barns, sem óx og þroskaðist að vizku og náð hjá
Guði og mönnum og auðsýndi foreldrum sínum hlýðni í
hvívetna. Er hann kom til aldurs, reyndist hann frábær
barnavinur. Hann tók þau að sér og blessaði þau, og þegar
skammsýnir lærisveinar hans ömuðust við þeim, voru orð
hans skýr: „Leyfið börnunum að koma til mín og bannið
þeim það ekki, því slíkum heyrir Guðs ríki til.“ Þannig
kannast hann við næmleik þeirra fyrir Guðs ríkis boðskap
þeim er hann flutti. Engin furða því að hann hefir laðað
að sér börnin og að fæðingarhátíð hans hefir í raunveru-
legri merkingu orðið tileinkuð börnum og æskulýð. Venjur
og jólasiðir hafa myndazt á þessum grundvelli, og hvívetna
þar sem haldin eru jól nær fögnuður þeirra í ríkum mæli til
barnanna og hinna ungu. Augljóst er að þetta allt er mjög
viðeigandi og réttbært.
En í sambandi við þetta jólaávarp hefi ég þá tilfinningu
að það muni að sjálfsögðu verða lesið aðallega af öldruðum
og aldurhnignum. Til þess eru eðlilegar ástæður. Þeim
fækkar, nema meðal hinna eldri, sem lesa íslenzkt mál og
hafa not af því. Þess vegna ætla ég mér að þessu sinni sér-
staklega að hafa í huga hina eldri og vekja athygli á því, að
þó jólin séu í mjög verulegri merkingu hátíð barnanna, þá
stendur það ekki í vegi þess að fólk á öllu aldursskeiði fái
tileinkað sér fögnuð þeirra og þýðingu. Barnshugurinn getur
verið eign allra, og gildir þá á víðtækum grundvelli að
slíkum heyrir Guðs ríki til. Þar einnig koma til greina orð
Jesú, er hann tók lítið barn og setti það hjá sér og sagði