Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.12.1958, Side 4

Sameiningin - 01.12.1958, Side 4
2 Sameiningin til hinna viðstöddu: „Hver sem tekur á móti þessu barni í mínu nafni, tekur á móti mér.“ Því er ekki ófyrirsynju að eiga samleið með börnunum, hafa opið hjarta gagnvart þeim og að halda jól í þeirra anda. Með þetta í huga vil ég beina orðum mínum fremur til hinna öldruðu og aldur- hnignu en þeirra sem yngri eru. í þessu efni tala ég úr hópi þeirra, sem árin hafa færzt yfir. Ég vil minna okkur á, að á þessu aldursskeiði eigum vér ríkt tækifæri til að njóta mikils fagnaðar á þessari hátíð gleðinnar. Þess má minnast að meðal hinna fáu, sem ritningin greinir frá að fögnuðu yfir komu Jesú meðan hann var enn smábarn, voru tvær háaldraðar menneskjur — Símon og Anna. Er þess getið að Anna lofaði Guð og talaði um hinn nýfædda frelsara við alla, sem áttu vonir fyrir- heitisins, og lofsöngur Símonar heldur áfram að hljóma í guðsþjónustum kristinna manna fram á okkar dag sem einn fagrasti þátturinn í þeim gleðilofsöng, er koma Jesú hefir vakið í lífi mannanna. Bendir þetta til þess að ekkert aldurs- takmark er sett því að eiga ríkan og dýrmætan þátt í allri þeirri gleði og blessun sem jólunum tilheyra, ef hlutað- eigendur hafa vakandi hug fyrir því er Drottinn hefir fyrir oss gert. Vér sem hér eigum hlut að máli höfum því fylstu ástæðu til þess að horfa mót hinni komandi jólahátíð og öllum jólahátíðum er Drottinn leyfir oss að lifa, í ríkri með- vitund um þá blessun, sem vér hljótum og höfum hlotið í sambandi við hann er jólin tigna . Þeir öldruðu og aldurhnignu eiga ríkari endurminningar í sambandi við jólin en aðrir. Endurminningar þeirra ná yfir lengra bil og það liðna hlýtur dýrðlegri uppljóman í hugum þeirra en annara. Þetta á sérstaka heimfærzlu í sambandi við þá, sem nú skipa sess hinna eldri. Líf þeirra hefir náð yfir tímabil, sem átt hefir miklar breytingar á ytri kjörum lífsins. Endurminningar þeirra ná til þess tíma, þegar hið ytra umhverfi jólahátíðarinnar var mjög með öðrum hætti en nú tíðkast. Það var ekkert ríkmannlegt við „jólin í bjálkakofanum.“ Þau voru sneydd miklu af þeim yfirborðs glæsileik, sem nú er alsiða, en héldu engu síður þeim tökum á hugum og hjörtum er seint fyrnast. Ég er ekki að reyna að gera lítið úr jólagleði síðari tíma, því ég á margar ríkar gleðiminningar frá síðari árum, heldur aðeins að halda því fram að endurminningar um jólin á frumbýlingsárunum

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.