Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.12.1958, Side 5

Sameiningin - 01.12.1958, Side 5
Sameiningin 3 vermi hjörtun alveg sérstaklega, því þeim fylgir augljós meðvitund um að hér var um það að ræða, sem engin ytri kjör gátu skyggt á. Hér er veruleiki, sem yfirgnæfir ytri ástæður. Það styrkir trú vora að lifa í þeim endurminn- ingum og gera þær ávaxtasamar fyrir nútímann. Vér þörfn- umst þess ætíð að þreifa á þeim krafti, sem fylgir erindi jólanna. Hvað mjög sem vér metum velsæld nútíðar jóla, er hún aðeins ytri búningur. Allt er undir því komið að eiga hinn innri frið og blessun, sem Kristur færir mönnum. í því sambandi er verðmætt að eiga endurminningar um fá- tækleg jól, sem þó voru rík af gleði. Vér hinir eldri eigum líka lengri og ríkari reynslu fyrir því hvernig kristindómurinn reynist í lífinu. Vér eigum eflaust öll ljósa meðvitund um að vér höfum fátæk- lega ávaxtað þau áhrif er frá Kristi hafa streymt inn í líf vort, en engu að síður höfum vér þreifað á því í öllum veik- leika að frá honum stafar sú ríkasta blessun, sem vér höfum orðið fyrir. Reynslan hefir staðfest hvað mjög verð- mæti trúar á Krist birtast í lífinu. Hlýðni við hann opnar dyr til fyllra lífs, og til vanrækslu á því sem hann innrætti og gróðursetti má rekja mesta böl mannlífsins. Þetta er fyrir oss ekki einungis erfikenning, heldur sannleikur stað- festur í reynslunni. Enginn fögnuður getur verið meiri en þeirra er þreifað hafa á mætti Krists á vegum lífsins. Það gefur fagnaðarrík jól. Kynslóðin, sem ólst upp hér á vesturslóðum í íslenzku umhverfi og nú er við aldur, naut nokkurs er leggur ómetan- legan skerf til sannrar jólagleði. Hún var uppalin við ís- lenzku jólasálmana og naut áhrifa þeirra. Ég get borið því vitni að einskis hefi ég saknað eins mikið síðan ég hætti að þjóna íslenzkum söfnuðum og íslenzku sálmanna — og þá alveg sérstaklega jóla- og páskasálmanna. Að hafa notið þeirra um langan aldur er óviðjafnanleg blessun, sem færir með sér yl og hrifningu og lýsir upp hverja hátíð og þá ekki sízt jólin. Þessa gætir því fremur hjá einstaklingunum, er þeir hafa lært mikið af sálmunum utanbókar, eins og tíðkaðist svo mjög í uppeldi eldri kynslóðarinnar. Það var uppeldisaðferð, sem veitti mikinn árangur í bráð og lengd. Aukatekja af því, þegar árin færast yfir, er að eiga þar sjóð af dýrmætum ljóðum, sem minnið getur gripið til þegar mest ríður á. Ég minnist þess frá prestsskaparárum mínum

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.