Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.12.1958, Síða 12

Sameiningin - 01.12.1958, Síða 12
10 Sameiningin sem annars sjást sjaldan innan dyra helgidómsins, mundu rísa til harðra mótmæla, ef starfsemi hennar yrði lögð niður. En slíkar raddir eru ekki knúðar þeim eldi og áhuga, sem Kristur einn getur vakið í brjóstum lærisveina sinna, heldur miklu fremur bergmál vana og hefðar, sem sættir sig við orðinn hlut og vilja ekki leggja það á sig að flytja lifandi boðskap Krists, er varpar eldi að soranum í lífi manna og kallar á þá að varpa af sér oki því, sem ill hugsun og óhrein breytni leggur á þjóðir sem einstaklinga. Þau orð Krists um söfnuðinn í Laódíkeu, eiga erindi til kirkjunnar í dag: „Ég þekki verkin þín, að þú ert hálf- volgur, og ert hvorki kaldur né heitur, betur þú værir kaldur eða heitur. Því er það af því þú ert hálfvolgur, og hvorki heitur né kaldur, mun ég skyrpa þér út af munni mínum.“ (Op. 3, 15.) Það gerðist eitt sinn í lítilli borg vestan hafs, að eld- ingu sló niður í kirkjunni og brann hún til grunna. Ekkert var við ráðið, en mikill mannfjöldi safnaðist saman til að sjá eldsvoðann. Presturinn tók þar eftir kunningja sínum, sem aldrei kom til kirkju, og sagði við hann hæðnislega: „Þetta er í fyrsta skipti, sem ég sé þig við krikju.“ Maður- inn svaraði: „Já, og þetta er í fyrsta sinni, sem ég sé brennandi kirkju.“ Svar þetta varð prestinum mikið um- hugsunarefni. Og það er mikið íhugunarefni fyrir alla, því að kirkjan er ekki fyrst og fremst bygging eða stofnun, heldur fólk eins og þú og ég, sem hafa verið skírðir í nafni Guðs og kölluð til að þjóna Kristi, og því talar Páll beint til okkar, er hann ritar: „Verið brennandi í andanum.“ Grátur barnsins, sem fæddist í Betlehem forðum, vakti heiminn til ljóss og nýrra vona. Hann hefur vaxið og vakið, og enn hljóma kirkjuklukkurnar og bera ómana frá hinum fyrsta fagnaðarsöng: „Rísið upp úr gleymdum gröfum, og gangið út úr djúpum höfum. Nú dynja lúðurhljóðin há.“ í skammdegisskuggum skín mikið ljós frá Honum, sem kom og bjó með mönnum. Orð Jesaja rættust og hafa enn gildi: „Sú þjóð, sem í myrkri gengur, sér mikið ljós, yfir þá sem búa í landi náttmyrkranna skín ljós . . . . því að barn er oss fætt, sonur er oss gefinn, á hans herðum skal höfð-

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.