Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.12.1958, Qupperneq 13

Sameiningin - 01.12.1958, Qupperneq 13
Sameiningin 11 ingjadómurinn hvíla. Nafn hans skal kallað undraráðgjafi, guðhetja, eilífðarfaðir, friðarhöfðingi.“ Þessi boðskapur er sínýr gleðigjafi. Og um allan heim eru nú þess augljós merki, að menn vænta sér frelsis og friðar frá boðskap Krists. Frelsi manna hefur ætíð verið dýrkeypt, en aldrei sem á krossins á Golgata. Þjóðirnar hafa glatað sjálfstæði sínu sökum hóglífið og áhugaleysis um vandamál sín. Frelsi Guðs má einnig glata og af sömu ástæðum. Því reynir á hvern kristinn mann að halda vöku sinni og rísa upp til starfs og baráttu fyrir ríki Guðs meðal manna. Hið sanna og eina varanlega frelsi hvers einstaklings er náðargjöf Guðs. Það er Hann, sem hefur veitt það, en við höfum vald til þess að varðveita það eða tortíma því. Það fer eftir vilja okkar. Það er til saga um vitran mann, sem leysti úr vanda margra er komu jafnvel langt að, til þess að leita ráða hjá honum. I sömu byggð var einnig ungur og gázkafullur maður, sem lagði lítið upp úr vizku hins aldna manns. „Við skulum leika á gamla mannnin,“ sagði hann við félaga sína. Þeir töldu það erfitt, því að oft höfðu þeir orðið vitni að viti hans og speki. En ungi maðurinn taldi sig hafa ráð til þess. Þeir skyldu fara til gamla mannsins einhvern sunnudaginn, þegar margt fólk væri saman komið hjá honum og yrði það þá vitni að ráðþroti hans um leið. Ungi maðurinn sagðist ætla að hafa fugl í hendi sinni og láta gamla manninn geta til hvað það væri sem hann héldi á. „En ef hann getur nú rétt,“ sögðu félagarnir. „Þá mun ég spyrja hann, hvort hann haldi fuglinn dauðan eða lifandi. Ef hann segir að hann sé dauður læt ég fuglinn fljúga burtu.“ „En ef hann segir, að fuglinn sé lifandi?“ spurðu þá hinir . „Þá mun ég gæta þess, að kyrkja fuglinn í greip minni,“ svaraði hinn ófyrirleitni æskumaður. Félagar hans hlógu að ráðabruggi hans og næsta morgun voru þeir allir saman komnir hjá gamla manninum. Ungi maðurinn ruddi sér braut gegnum mannþröngina, sem þar var saman komin, og hrópaði til gamla mannsins: „Hvað er það sem ég held á?“ „Er það ekki fugl,“ svaraði hann. „Jú, en hvort er hann lifandi eða dauður?“ Gamli maðurinn leit hryggum augum á unga manninn, því að hann vissi hvað honum bjó í brjósti,

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.