Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.12.1958, Side 14

Sameiningin - 01.12.1958, Side 14
12 Sameiningin en svaraði: „Sem þú vilt, sonur minn, sem þú vilt.“ Mannkynið og einstaklingar þeir, sem þjóðfélögin mynda, halda fugli frelsisins í hendi sér. Það er á valdi okkar og þá sérstaklega þeirra, sem stjórna heiminum eða búa sig undir leiðsögn og forustu meðal þjóðanna, hvort frelsi og friður, réttlæti og kærleiki fær að lifa og dafna í mannheimi, eða hvort kúgun og ánauð, áhugaleysi og synd kyrkir þessar gjafir til dauða. Drottinn sem hefur skapað okkur og gefið allar góðar gjafir og vill að við fáum notið þeirra í farsæld, horfir hryggum augum til barnsins, mannkynsins, og mælir: „Sem þú vilt, sonur minn.“ En af því að Hann elskar okkur með brennandi kærleika, þá heldur Hann áfram að la ðatil hins heilaga ljóss síns mannkynið sem liggur meinvillt í myrkr- unum, og býður okkur jólagjöfina beztu, „Frelsi mannanna, frelsisins Lind.“ „Því að allt sem komið er fram í birtuna er ljós, því segir svo: „Vakna þú, sem sefur og rís upp frá dauðum og þá mun hinn Smurði lýsa þér.“ (Ef. 5: 13—14). —AMEN. ísleifur Gissurarson Eftir dr. theol. Ásmund Guðmundsson, biskup Prentað í VART LUTHERSKA ARV OCH NUTIDENS KULTURKAMP, Stockholm 1956. — Þýðingin eftir V. J. E. III. Hinn frægi skóli, þar sem ísleifur var settur til mennta, var í umsjá nunnuklausturs, og voru kennararnir nunnur. Skólinn stóð þar sem tvær ár renna saman, milli lágra fjalla, á friðsælum stað í Herfurðu í Vestfalíu. Forstöðukonan við klausturskólann þá var abbadís að nafni Gadesti, dóttir her- toga nokkurs. Hún var abbadís á árunum 1004—1040; fékk hún fjárstyrk til starfsemi sinnar hjá Meginverk biskupi í Paderborn, en hann var vel þekktur menntafrömuður á þeirri tíð. Abbadís þessi var ekki aðeins kennari drengjanna, heldur og fósturmóðir þeirra. Að Isleifi hafi liðið vel á þess-

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.