Sameiningin - 01.12.1958, Síða 15
Sameiningin
13
um skóla, má merkja af því að hann velur hann síðar fyrir
son sinn Gissur. Hér lagði hann stund á hinar venjulegu
námsgreinar, lestur, skrift, reikning, latínu, hljómlist og
guðfræði. Hann hefir lesið rit biblíunnar, kirkjufeðurna, og
sögur helgra manna. Þessar greinir kennir hann síðan í
prestaskóla sínum í Skálholti, og sonur hans sömuleiðis,
Teitur prestur í Haukadal, og lærisveinn ísleifs, Jón Ög-
mundsson Hólabiskup. Á þessum þremur stöðum höfum
vér þannig afkvæmi skólans í Herfurðu. Er ísleifur hefir
náð þeim aldri að útskrifast frá nunnuskólanum hefir hann
stundað nám við aðra skóla, sem stóðu í sambandi við
nunnuskóla eða dómkirkju í Þýzkalandi, og verið vígður
hinum óæðri vígslum; prestsvígslu hlaut hann um það bil
20 ára gamall. Er sennilegt að Meginverk biskup hafi veitt
honum prestsvígslu. Nývígður heldur hann svo heim til
íslands, en kemur við í Noregi, og er sagt að hann hafi
gengið þar á fund Ólafs konungs. Fannst konungi svo mikið
til um hinn unga mann, að honum varð að orði: „Svá lízt
mér á þik, at ek vil fela mig undir bænum þínum.“ ísleifur
kemur til íslands brennandi í andanum, hefir tileinkað sér
víðtæka þekkingu, og öðlast mikinn þroska. Erlendis hefir
hann komist í kynni við Kluny-hreyfinguna, og mátt hennar
til siðbótar.
IV.
Þegar til íslands kom, var faðir hans dáinn; tók hann
þá við búi í Skálholti og' gerðist goðorðsmaður, hlaut hann
þannig sama vald og faðir hans hafði haft. Kristin trú
breiddist nokkuð um landið á þessum árum, og má þakka
það Ólafi konungi helga. Kirkjum fjölgaði. Heiðnum hofum
var breytt í kirkjur, samkvæmt páfaboði Gregoríusar mikla,
en þeirri venju hafði einnig .verið fylgt í öðrum löndum,
t d. í Noregi. Ennfremur voru nýjar kirkjur reistar. Greina
fornsögur vorar frá því að á þessum árum, frá 1000, hafi
24 nýjar kirkjur verið byggðar. ólafur konungur sendi
hingað tvo útlenda biskupa, en þeir dvöldust hér aðeins
nokkur ár. Aðalstarf þeirra hefir vafalaust verið það að
undirbúa unga menn til prestsskapar. Þá má telja að landið
hafi ennþá verið hálf heiðið.
ísleifur verður strax prestur við kirkjuna í Skálholti.
Hann er annar tveggja höfðingja sem fyrstir gerast prestar
á íslandi. Af ættbálki þeirra rísa síðan hæfustu menn