Sameiningin - 01.12.1958, Síða 17
Sameiningin
15
mjög álitum. Hún spyr um gestakomuna. Þorvaldur segir
henni alla söguna, og undirtektir sínar. Hún mælti: „Eigi
mundi þetta hafa fyrir staðið ráðahagnum, ef ek hefða
ráðit.“ Hann svarar: „Ertu þessa mjök fús?“ Hún svarar:
„Ek hefi þá metnaðargirnd, að eiga hinn bezta manninn, ok
hinn gáfaðasta soninn með honum, er á íslandi mun fæðast,
ok þykir mér ekki óráðlegt at gera eftir þeim.“ Hann mælti:
„Ekki hafa þín ráð lítið mátt hér til.“ Var svo eftir þeim
riðið, og þeir komu til baka. Ef til vill er þetta aðeins þjóð-
saga. En hún sýnir þó glöggt álit almennings á þeim biskup-
um tveim, ísleifi og Gissuri syni hans. ísleifur og Dalla
eignuðust tvo aðra sonu, prestinn og prestakennarann, Teit
í Haukadal, og Þorvald, sem var höfðingi mikill og bóndi
á Suðurlandi. Tengdafaðir Isleifs var maður auðugur, og
Dalla hafði vafalaust betra vit á búskap en bóndi hennar;
varð hagur Skálholts nú betri en fyrr, og naut skólinn vafa-
laust góðs af því. Sjálfsagt hefir Isleifur haft mikil áhrif á
hina kristnu löggjöf sem staðfest var á Alþingi, enda þótt
ekki séu ákveðin ummæli sem þar að lúta annars staðar en
í Grettissögu.
Þannig hefir Isleifur unnið fyrir kristni landsins, á
prestskapartíð sinni, einkum með skólanum. En ennþá er
eyðimörk heiðninnar stór í sambandi við hina tiltölulega
fáu gróðurbletti, sem blómguðust á akri kristninnar.
V.
Að minni skoðun, er það árið 1053, að íslendingar velja
ísleif sem biskup, og er það vottur þess, að meirihluti þjóð-
arinnar hefir talið kristnina fremri heiðninni, og óska eftir
að koma fastara skipulagi á kirkju landsins. Auk biskupa
þeirra, sem Ólafur konungur hafði sent til íslands, skipaði
Brimar biskup fjóra útlenda biskupa, þrjá fyrir suðurland,
hvern eftir annan, og einn fyrir norðurland, fyrrverandi
prest í Brimum. Vafalaust hafa þessir biskupar verið sam-
vizkusamir í starfi sínu, og hafa undirbúið unga menn til
prestskapar; þó var einn þeirra undantekning, því að hann
var drykkjumaður mikill. Er það mjög sennilegt að Islend-
ingar hafi, strax eftir burtför hans, valið Isleif fyrir biskup,
og hafa þeir þannig viljað tryggja sér góðan forystumann
kirkjumála. Sama árið sem hann er kjörinn, leggur hann af
stað til vígslunnar.