Sameiningin - 01.12.1958, Page 18
16
Sameiningin
Á þessum árum töldu erkibiskuparnir í Brimum ísland
til umdæmis síns. ASaldagur erkibiskup (937—988) hafði
sent fyrstu trúboðana til íslands, og dvöldust þeir hér á
árunum 937—986; páfinn hafði gefið út reglugerð um það,
hversu víðtækt umdæmi Brimarbiskups skyldi vera. Þannig
ákveður hann árið 948, að Aðaldagur erkibiskup skuli hafa
Danmörku, Noreg og Svíþjóð í umdæmi sínu, og aðrar norð-
lægar þjóðir. Árið 1022 skipar Benedikt VIII. Unvans erki-
biskup yfir Norðurlönd, að íslandi meðtöldu. Páfarnir
Benedikt IX. Leo X. og Victor II. staðfesta á sama hátt erki-
biskupsdæmi Aðalbjartar í Brimum á árunuml044, 1053 og
1055. Umdæmi hans og vald skal ná yfir öll þau lönd, í norðri,
þar sem fagnaðarerindið hefir verið boðað. Þessi endur-
tekna staðfesting bendir til mótspyrnu þeirrar, sem Brimar
biskup átti við að etja. Vitað er að Haraldur konungur
harðráði vildi ekki viðurkenna vald Brimarbiskups, en kaus
heldur að hafa mál kirkjunnar í sinni hendi. Lét hann
norska biskupa taka vígslu á Englandi, Frakklandi og einnig
í Róm. Sveinn Úlfsson Danakonungur lagði ekki minni
áherzlu á að leysa land sitt undan áhrifum Brimarbiskups,
og bað hann páfann að setja á stofn erkibiskups-embætti
fyrir sjö biskupsdæmi ríkis síns. En hvorki norskir eða
sænskir biskupar sóttu fundi þá er erkibiskup kvaddi saman
í Slésvík.
Að fengnu biskupskjöri vill ísleifur ekki fara beint á
fund Aðalbjartar, en leggur leið sína í páfagarð, og hefir
sjálfsagt gert ráð fyrir að hljóta vígslu þar. En til slíkrar
langferðar varð hann að fá hjálp Hinriks III. Þýzkalands-
keisara, en hann var þá mestur þjóðhöfðingi í Evrópu, og
hafði hann, tæplega tíu árum fyrr, vikið þremur óhæfum
páfum úr embætti. ísleifur hefir meðferðis dýrmæta gjöf
handa keisaranum — hvítabjörn frá Grænlandi. Keisarinn
tekur honum vel og skrifar með honum bréf til páfans.
Samkvæmt frásögn Ara fróða, er Leo páfi IX. látinn, (í
apríl 1054), en hann hafði verið páfi aðeins að nafninu til.
Sá sem í raun og veru fór með völd var Hildibrandur, síðar
Gregor VII. páfi, forvígismaður siðbótarhreyfingarinnar,
sem kennd er við Kluny. Hér fær ísleifur einnig góðar við-
tökur. En erfitt skilyrði er þó sett fyrir biskupsvígslu hans,
— hann verður að slíta samvistum við konu sína, og því
lofar hann. Því næst skrifar páfinn Aðalbjarti erkibiskupi