Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.12.1958, Blaðsíða 22

Sameiningin - 01.12.1958, Blaðsíða 22
20 Sameiningin Jólanóít Kom, helga nótt, í hreysin lág, kom hingað til vor jörðu á. Kom þú og veit þeim líkn og lið, sem ljósið þrá og hjartans frið. Sjá, stjarna skín í heiði hátt, til hennar, barn, þú líta átt, svo innra með þér, öll þín jól, sé endurskin frá þeirri sól. Hún lýsir enn um alla jörð, um eyðimörk og gróinn svörð. Hún bjartar þeim sem blindur er og bendir þeim, sem villtur fer. Skín blessað ljós og lýs þú mér, þá leiðin myrk og torfær er. Um lífsins veg á leið til þín, svo liggja megi sporin mín. Send hrjáðum heimi þrótt og frið og þjóða milli sett þú grið. Og bend þeim á þau boðorð Hans, að búast vopnum kærleikans. Oss leið þú alla lífs um tíð, og létt oss veikum böl og stríð. Þín guðleg skíni gæzku sól og gefi oss öllum blessuð jól. Jóhannes Arngrímsson

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.