Sameiningin - 01.11.1940, Page 6
132
ríkin urðu að bæla niður uppreisn í Philippín-eyjunuin; þau
tóku líka þátt í Boxer uppþotinu í Kína og áttu einnig i
skærum við Mexicomenn. Stóra Bretland barðist við Bú-
ana í Suður-Afríku og hafa mátt til að bæla niður upp-
reisnir á Indlandi, írlandi og annarstaðar, með hervaldi.
Árið 1912 bárust Balkansltaga þjóðirnar á banaspjótum,
þ. e. a. s. Tyrkland, Grikkland, Búlgaría, Serbía, Montenegro
og Rúmenía. ítalía og Tyrkland börðust 1911. Japanir
báru sigur lir býtum í styrjöldinni við Rússland. Svo kom
byltingin á Rússlandi, sem kostaði þjóðina 2,000,000 manns-
líf. Tvær bylting'ar hal'a átt sér stað á Spáni síðan um
aldamótin. Skærur hafa verið í Suður-Ameríku, Cuba,
Mexico og Mið-Ameríku. Japan tók Manchuríu og setti á
stofn nýtt ríki með “Boy Emperor” sem brúðuvaldhafa.
Þetta konungsríki er kallað Manchukuo og er undirlægja
Japana. Sliömmu seinna æddu Japanir inn í Kína og lögðu
stærri og smærri borgir í rústir. Hermenn ítalíu í'óru með
allskonar nýtízku morðvélar, sprengikúlur og eiturgas inn í
Bláland og strádrápu þar fjölda af saklausu og varnarlausu
fólki.
Tveir heimsfrægir vísindamenn, annar þeirra kennari
við Harvard háskólann, hafa rannsakað sögu stríðanna frá
500 f. K. til 1925, til að komast að raun um hvað mörg
og hvað mikil strið hafa verið háð á þessum 2425 árum.
Þeir birtu skýrslu sína í Literary Digest það ár. Eftir þeim
skýrslum hafa alls 902 stríð verið háð á þessu tímabili.
Þeir reyndu að komast að raun um hvað margir hefðu
tekið þátt í þessum styrjöldum, hvað margir hafi fallið,
hvað lengi hvert stríð stóð yfir; hvað þjóðirnar hafi verið
stórar, sem þátttöku áttu í þeim og hvaða hluti af hverri
þjóð hefði verið á orustuvöllunum. Eftir ítarlega og milcla
rannsókn komust þeir að þeirri niðurstöðu að stríð hefðu
aukist á hverri öld á þessum 2425 árum. Tólfta öldin var
tekin sem meðalöld frá þessu sjónarmiði. Þeir notuðu það
sem kallast “index points.” Með þessari aðferð gáfu þeir
tólftu öldinni 2.678 en fyrsta fjórðungi af tuttugustu öld-
inni 13,735.98. Eftir þessum tölum að dæma hefir verið
5,000 sinnum meira af stríði frá 1900 til 1925 en á allri
tólftu öldinni, og ekki hefir batnað síðan 1925. Enginn
aldarfjórðungur í allri veraldarsögunni komst nokkurs-
staðar í námunda við aldarfjórðunginn, sem þá var nýlið-
inn. Og hræðileg stríð hafa verið háð síðan 1925, og stríðið,