Sameiningin - 01.04.1943, Side 11
57
en Eskimóar ekki. Þeir eru framandi þjóð, eða flokkur
sem flytur sig til og frá eftir veiðiaðstöðu. Iunnitarnir bvgðu
varanleg heimili, rammgjörð og stæðileg. Hús þeirra voru
bygð úr grjóti og torfi, mjög líkt því, sem tíðkaðist á íslandi
í gamla daga, og enda enn. Annað lagið úr steini, hitt úr
torfi. Hús þeirra voru hringmynduð með tveimur íbúðum
og anddyri. Fyrir dyrastafi hafa þeir notað hvalskjálka, en
hvalsrif fyrir rafta. Húsin hafa verið all rúmgóð. Innra
herbergið auðsjáanlega svefnherbergið, enda sést allvíða
enn fyrir rúmpöllunum sem bygðir hafa verið meðfram
veggjunum og hefir fólkið legið þar í flatsæng. Fremra
herbergið hefir verið notað sem eldhús, og setustofa, en
anddyrið sem geimslustaður og veðrabrjótur.
Það sem sérstaklega vakti athvgli mína á þessum
lunnit-húsum, eða rústum, auk stein og torfhleðslunnar,
var það að húsin nálega öll hafa snúið til norðurs og er
það einkennilegt, því oft næðir hann kaldur á norðan á
norðurhluta Baffin-eyjunnar. Ekki nokkur tilraun gjörð til
þess að leita skjóls, eða njóta sólar og er ekki got.t að
gjöra sér skiljanlega grein fyrir því fyrirkomulagi. Annaö
sem mann furðar stórum á er, hvernig að Iunnitarnir hafa
farið að færa björgin úr stað, sem víða sjást í undirstöðum
og veggjum húsanna. í huga sínum efast maður um að
jafnvel Grettir Ásmundsson hefði getað fært sum þeirra
úr stað, svo eru þau voldug.
Það virðist að þessir Iunnitar hafi verið all félagslyndir,
því óvíða hafa bæir þeirra staðið einir sér, eða út af fyrir
sig, heldur fleiri saman. Sumstaðar heil þorp, eins og við
Ponds Inlet, þar sem eg taldi á milli þrjátíu og fjörutíu
rástir, og hafa sjálfsagt verið mikið fleiri.
Um uppruna Iunnitanna vita menn ekki. Peter Froegen
segir í sögu sinni “The Eskimo”, að þeir muni frá Evrópu
komnir vera. Ekki færir hann neinar heimildir fram fyrir
þeirri skoðun sinni og er því máske ekki mikið á henni að
byggja þó Froegen sé að öllum líkindum bestur heimilda-
maður að því er núlifandi Eskimóa snertir.
En þó að menn viti ekkert með neinni vissu um upp-
runa þeirra, þá vita menn talsvert meira um endalokin,
því Iunnítarnir eru nú með öllu útdauðir. Eftir munn-
mælasögum Eskimóa, þá héldu Iunnitarnir sig lengi vel
sér og áttu lítil mök við Eskimóa framan af, en bjuggu að
sínu, og á meðan svo stóð gekk allt vel. En þar kom að
þeir tóku að blandast Eskimóaflokkum, sem var mikið