Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.04.1943, Síða 15

Sameiningin - 01.04.1943, Síða 15
61 skap og ódáð. Eg veit að líf mitt getur ekki enst nema stutta stund, og þú verður að fæðast í heiminn til þess að bvggja líf þitt á grunavelli yfirsjóna minna. Fyrirgefðu mér. Eg fyrir- verð mig fyrir að skilja þig eftir í umheimi, sem er um- turnaður og erfiðleikum hlaðinn. En það er óumflýjanlegt. í huganum þrýsti eg bænheitum kossi á enni þér. Góða nótt — góðan morgun, og blíða og bjarta dagrenning.” Hér endar bréfið. Þegar félagar Péturs komu aftur til bæjarins, sem hann átti heima í fréttu þeir að Þjóðverjar hefðu myrt Maríu ekkju Péturs nokkrum dögum áður en tími hennar var kominn til að ala barn sitt. Bréfið sem félag- ar Péturs gátu ekki komið til skila fyr en of seint, er því orðið ávarp til allra ófæddra barna í hinum æsta og hatursfulla heimi. Þýtt J. J. B. í Starf mitt Eins og kunnugt er innan kirkjufélagsins hefi eg ekki verið bundinn föstu kirkjulegu starfi í þjónustu safnaða eða á útbreiðslusviðinu síðan um mánaðamótin júlí og' ágúst á liðnu sumri. Lauk þá mánaðarstarfi í bygðunum norður með Manitobavatni beggja megin við Norrows. Hélt eg þá heimleiðis til Seattle. Þar á eftir leyfðu ekki ástæður að eg sinti neinu starfi um hríð. Eftir hátíðir í vetur barst mér vitneskja um að í borginni Chicago væri ef til vill tækifæri fyrir mig að komast að trúnaðarstarfi í þjónustu sambandsstjórnar Bandaríkjanna á sviði er snertir mjög velferð mála hennar á ófriðartíma eins og þessum. Talaði þetta til mín bæði vegna þess að eg þarfn- aðist stöðu og hins að hér var um þjóðþrifa starf að ræða. Fanst mér því ástæða til að grenslast eftir þessu nánar og tókst ferð á hendur austur í byrjun febrúar. Eftir að hafa fullnægt fyrsta prófi til starfsins, fékk eg einnig vitneskju um að á þessu sviði var bein eftirleit eftir manni með þekkingu á kirkjulegum málum og því sem hugsað og ritað er um mannfélagsvelferð og hreyfingar á því sviði. Þetta hefir til margra ára verið eitt mitt mesta hugðar- mál eins og þeim er kunnugt sem að einhverju leyti hafa notið starfs míns. Staðfesti þetta hjá mér að hér væri *

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.