Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.06.1931, Blaðsíða 16

Sameiningin - 01.06.1931, Blaðsíða 16
174 skóla, hefir or'Öið til hjá sumu góÖu kirkjufólki sú trú, að skólar ríkisins væru fremur óguðlegar stofnanir og það væri verulegur sálarháski fyrir unglinga að stunda þar nám. Á þessu hefir verið alið við almenning, af þeim sem barist hafa fyrir kirkju- legum sérskólum. Þetta álit á skólum ríkisins var mér ungum innrætt og lengst af æfinnar hefi ég reynt að innræta það öðrunr. Eg verð að játa það, að eg hafði litla þekkingu á háskólum ríkisins og hafði þetta eftir öðrum eins og trúarjátning. Eg hefi nú breytt þeirri skoðun all-mikið, aðallega fvrir það, að afla rnér eftir föng- um upplýsinga um háskólana. Við það tók hið fyrra álit mitt fyrst að bila, að eg veitti því eftirtekt, að stúdentar við háskólann i Manitoba væru einna staðfastastir nemendur í “Biblíuflokkun- um” í sunnudagsskóla mínum í Winnipeg, gerðust upp til hópa síðar kennarar í sunnudagsskólanum og sumir þeirra væru ötul- astir starfsmenn í ungmannafélögum og einkar kirkjuræknir. Við það að mitt eigið barn tók að stunda nám við háskólann, gat eg einnig fengið nokkurt hugboð um andann í skólanum. Eg hefi og stöku sinnum verið til þess hvaddur að stýra guðræknis-stund- um þar við háskólann, og þó öllum sé í sjálfs vald sett, hvort þeir sækja þær stundir eða ekki, þá furðaði mig á því, hve fjöldi stúdenta var mikill við guðræknis-athafnirnar. Þá er mér og um það kunnugt, að hinn virðulegi erkibiskup ensku kirkjunnar hefir um langt skeið verið formaður háskólaráðsins og að í háskóla- ráðinu sitja nokkurir hinna helztu máttarstólpar kirknanna i Winnipeg. Það veit eg, að sumir kennarar háskólans eru með björtustu ljósum kirkjunnar og hafa með höndum störf og enr- bætti i kirkjum borgarinnar. Það veit eg nú einnig, að þessi háskóli er ekki guðlausari en það, aö i Artium deild skólans mega stúdentar samkvæmt reglugerð háskólans velja biblíufræði tvö sið- ari skólaárin svo svari fjórða hluta námsgreina sinna allra. Að þar sé vantrúaðir kennarar innan um er mér ljóst, en ég þori að staðhæfa það, að megin-andi háskólans sé kristindómi hlyntur en ekki andstæður. Svipað því sem sagt hefir verið um háskólana i Manitoba, má óhætt segja um alla háskólana i Canada. Margt hefir verið sagt urn það, hve óguðlegir séu háskólarnir í Bandaríkjunum. Eg er sannfærður um það, að það er all-mjög orðum aukið. Helzt er mér kunnugur ríkisháskólinn í Minnesota. Mér er um það kunnugt, að út af þeinr skóla hafa komið ungir menn, sem til fyrirmyndar eru i söfnuðum sínum. Nýlega átti eg ítarlegt sam- tal við lúterskan prest, sem útskrifaður er af þeim háskóla, og bar hann skólanum vitni um alt annað en guðleysi. Enda mætti það undarlegt vera, ef sá skóli, sem andi Cyrus Northrops enn

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.