Sameiningin - 01.10.1932, Qupperneq 12
248
Trúboðserindi
flult af séra S. 0. Thorlaksson á kirkjuþingi 20. júní, 1932.
Þýtt af séra N. S. Thorláksson.
(Framh. frá síðasta bl. Sam.)
Má eg biðja ykkur að athuga með sjálfum ykkur myndina,
sem þið kunnið að hafa hugsað ykkur af erlendum trúboða, í ljósi
því, sem við nú viljum skoða að erlent trúboð eigi að vera? Og þó
eg viðhafi ekki að öllu leyti gömíu sí-endurteknu orðatiltækin,
þegar eg gef skýring á erlendu trúboði, þá bið eg ykkur að gera
svo vel að halda ekki, að eg sé gagnstæður ritningunni og sé að
reyna að koma út í ykkur einhverju nýju, eða jafnvel einhverju,
sem hafi keim af hættulegri kenning. Gerið svo vel og minnist
þess þá líka, að í engum skilningi skoða eg trúboðann sem erind-
reka stofnunar eða hóps einstaklinga, sérstæða kirkjunni, né
heldur að hann sé fulltrúi sjálfs sín, þegar hann fer til trúboðs-
stöðvanna til þess að vera þar og prédika og kenna. Hann er þar
aðeins sem andsvar kirkjunnar, í hlýðni vi& boð Jesú Krists.
Þess vegna lít eg á sjálfan mig sem andsvar ykkar við köllun
Drottins og hlýðni ykkar við hans boð. Ef til vill eruð þið mér
ekki sammála, en þið megið það. Bg er þar, af því þið sjálfir í
eigin persónum eruð þar ekki, nema að svo miklu leyti sem þið
eruð þar og eigið að vera þar í öðrum í ykkar stað.
Erlent trúboð er þá útfærsla starfskvía kirkjunnar til annara
þjóða, sem ekki hafa átt kost þann, sem við höfum átt, að þekkja
og elska Drottinn vorn, sem þekkir okkur og elskar eins og hann
einn fær gert. “1 þessu er kærleikurinn: ekki að vér elskum Guð,
heldur að hann elskaði oss og sendi son sinn til að vera friðþæging
fyrir syndir vorar.” 1. Jóh. 4, 10.
Erlent trúboð er sköpunarstarf kirkjunnar. Fyrir það er hún
að skapa nýjar hugsanir, nýtt líf, nýjar hugsjónir, ekki aöeins hjá
fólki erlendis, heldur líka heima fyrir hjá meðlimum kirkjunnar,
og eflir kirkjulífið hjá hverjum þeim söfnuði heima, sem ant er
um að afla sér þekkingar og auka áhuga sinn fyrir útbreiðslu og
þessu skapandi verkefni kirkjunnar.
Erlent trúboð er starf brautryðjandans. Fyrir það starf kirkj-
unnar eignumst við nýtt útsýni og f jarsýnið verður í réttum hlut-
föllum, merkjalínur okkar eigin heimahagsmuna afmást, víð-
sýnið eykst, sjóndeildarhringurinn stækkar, færist út og áfram æ
lengra og lengra, og fyrir það komumst við upp úr götutroðning-