Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.10.1932, Blaðsíða 15

Sameiningin - 01.10.1932, Blaðsíða 15
trúmensku feðranna vi'ð arfinn þeirra í Jesú Kristi varanlegan minnisvarða í kjörlandi olckar handa komandi kynslóðum. En þótt við nú ekki værum þess umkomnir að reka erlent trúboð af sjálfsdáðum, eða ekki frekar en við gerum nú sem kirkjufélag eða sem meðlimir þess, þá gœtum við gert miklu meir en við gerum okkur grein fyrir, ef við aðeins vildum gera starfið að okkar starfi og skipuðum okkur á meir lifandi hátt í fylkingu með kirkjufélagi, sem stórverk er að vinna fyrir ríki Guðs og er að bjóða okkur velkomna til þátttöku með sér í því verki. Starfið þess yrði þá starf okkar; því alt, sem það gerir, er félags starf- semi, og okkur kjörkostur að taka þátt í, en ekki byrði. Góðu fólki hættir stundum til þess að verða óþolinmótt vegna þess að vi'Sleitni þess til góðs ber ekki ætíð eins skjótan árangur eins og það hefði kosið. Viðleitni til þess að hafa heilbrigð áhrif á aðra, hvað hugsunarhátt snertir og innræti, krefst stöðuglyndis, sem ekki lætur undan síga þó lítið virðist ávinnast i bili. Með því móti einungis fá t. d. kristin heimili og kristilegir skólar leyst af hendi hlutverk sitt, að viðleitnin í kristilega átt haldi áfram með festu, trúmensku og lægni, þó við erfiðleika sé að stríða og freist- ing geti verið til þess að gefast upp. Það skiftir oft arúm áður en það, sem sáð er í hjörtu hinna ungu ber fullan ávöxt. Þá reynir á skyldurækni foreldra og kennara að láta ekki bugast, heldur vanda sig því meir að sá hinu góða sæði í jarðveg hjartnanna og fela Drottni árangurinn. Eftirfylgjandi frásaga Dr. Otto Mees, for- stöðumanns Capital University í Columbus, Ohio, er lærdómsrik í þessu sambandi. Hann segir frá á þessa leið: “Fyrir nokkrum árum var í borginni Pittsburgh haldið stefnu- mót þeirra, er útskrifast hafa frá Capital University eða höfðu sótt skólann um lengri eða skemri tíma. Á annað hundrað manns komu til mótsins. í hópi þeirra var miðaldra maður, er vakti eftirtekt. Auðsjáanlega þektu hann engir af hinum yngri, sem viðstaddir voru. Þegar leið á kvöldið, var hann beðinn að segja eitthvað frá dvöl sinni við skólann. Hann reis hikandi úr sæti og var ekki létt um mál, en gætti auðsjáanlega vel orða sinna á þessa leið: ‘Vinir mínir, eg þarf að gera játningu fyrir ykkur og einnig að viður- kenna áhrif, sem eg hefi orðið fyrir, og er þetta kærkomið tæki- færi til hvortveggja. Eftir að eg útskrifaðist barst eg burt frá

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.