Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.10.1932, Side 16

Sameiningin - 01.10.1932, Side 16
252 öllum vinum og kunningjum skólaáranna. Til aÖ fara fljótt yfir sorglega sögu, þá tapaði eg allri fótfestu og hrapaði sífelt neðar í mannfélagsstiganum. Eg var í rauninni kominn út á glæpaferil. Lögreglan hafÖi hendur í hári mér og eg komst ekki hjá fangelsis- vist. Eg var sokkinn eins djúpt eins og maÖur getur komist, sem þó á viðreisnarvon. Þetta er játningin, sem eg þarf að gera. En hvernig er því varið að eg er hér kominn í kvöld ? Hlvernig stendur á því að eg á nú f jölskyldu og er ánægður og sæll ? Hvernig víkur því við að eg er nú meðlimur kirkju og finn ánægju í því að leggja sem mest af efnum mínum og kröftum í hennar þjónustu? Hvernig atvikaðist það að þrátt fyrir ógæfu feril minn er eg hingað kominn til þessa móts námsmanna frá Ccpital University? Þessu skal eg svara. Við skólann hlotnaðist mér nokkuð, sem ekki var skráð í einkunn minni og ekki var i hávegum haft. Eg gerði mér ekki grein fyrir því sjálfur og kunni því síður að meta það. En nú langar mig til að kannast við, að þetta sem mér hlotnaðist við Capital University og sem svo erfitt er að gera grein fyrir, er það eina, sem kom mér að liði til að snúa mér aftur á betri og tryggari leið. Það eru einu áhrifin í lífi mínu, sem björguðu mér frá enn þá meiri eyðileggingu. Þau eru það eina, sem stöðvaði mig og reyndist mér fast akkeri, þegar eg barst fyrir straumi. Eg vil kannast við að þessi áhrif kristinnar mentastofnunar eru lífs míns dýrmætasta hnoss.’ ” Þess má geta að Capital U'niversity er lúterskur skóli, og að dr. Mees er formaður hinnar virðulegu lútersku kirkjudeildar, American Lutheran Conference. í siðustu tíð hafa komiS fyrir almennings sjónir og það einnig í veraldlegum blöðum og tímarit- um, ýmsar merkilegar ritgerðir, er gera skýra grein fyrir ann- mörkum þeirrar kristindómslausu mentunar, sem nú tíðkast of mjög. Það er ein aðal hætta samtíðarinnar. —K. K. Ó. heimahögum Séra Haraldur Sigmar, að Mountain, N.D., hefir undanfarna tíð verið til muna vanheill, einkum síðari hluta sumarsins. Hefir tengdafaðir hans, séra N. S- Thorláksson, gegnt í síðari tíð að mestu eða öllu prestsþjónustu í hinu víðlenda prestakalli séra Haralds.— En sú er bæn og von f jölmenns vinahóps og allra starfsbi'æðra séra H., að hann fái sem fyrst fulla bót meina sinna.

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.