Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.03.1915, Qupperneq 15

Sameiningin - 01.03.1915, Qupperneq 15
11 löngu, a'ö þaö sem þiö segiö, er blóölaust og bragðiaust og særir hvorki né græðir. Kærleikurinn, sem þið látið klappa öllu. illn og góðu, er hálfvolg sætsúpa, sem enginn hefir lyst á. "Og þið sjálfir, prestarnir, eruð svo gegnsýrðir af þjóðarlygun um, að þið vitið ekki hvar þið eruð staddir. Kirkjan ykkar er á undanhaldi. Virki eftir virki hefir hún verið að gefa upp síðasta mannsaldurinn. Hún er að gliðna sundur og ganga af göflunum, og þið eruð sjálfir að yfirgefa hana eins og sökkvandi fleytu. Hver, sem betur getur, reynir að ná sér i einhverja aðra stöðu, þeir í þingmenskuna, sem ekki eiga annars von. Enginn vkkar finnur gleði og svölun í prestsþjónustunni; enginn ykkar er prestur af köllun. Allir hafið þið hugann á einhv’erju öðru. “Viö, sem aldir erum upp í kirkjunni fyrir svo sem þrjátiu ár- um, þekkjum hana ekki lengur. Hún er orðinn skuggi fyrri tilveru sinnar. Mér liggur við að segja, að það sé lygi—eins og svo margt annað—-að hún sé lifandi. Alt, sem gaf henni hnykla í brýrnar og vald til aga og umvöndunar, er skorið burtu, svo að ekkert er þar eftir, nema örið og sárin. Helviti er kulnað út, djöfullinn dottinn úr sögtmni. Biblían er orðin full af missögnum og þversögnum. Innblásturinn er fallinn úr henni út í veður og vind. Kraftaverka- sögurnar orðnar að þjóðsögum. Holdgunarsagan að fallegri aust- urlenzkri helgisögu. Þrenningin runnin saman i eining. Friðþæg- ingar-kenningin orðin útslitin og ónýt—eða, eins og sumum ykkar þóknast að kalla það: þessu er öllu saman lyft upp í hærra Veldi. “Trúarjátningin, sem þið kennið börnunum, er orðin að lygí, eins og alt annað á þessu lyganna landi.” Þetta er nú aðal efnið í ádrepu séra Kela. Hvort öll Mrkjan á íslandi, hvort jafnvel mikill hluti hennar á lýsing þessa alla, kemur ekki málinu við að þessu sinni. Aðal atriðið er, að það er nýja kirkjan en ekki sú gamla, sem hér er verið að lýsa. Kirkjan, sem hugðist að bjarga trúnni með því að kasta játningunni fyrir horð; kirkjan, sem taldi það sér til hróss, að hún væri ekki viss uni neitt; kirkjan, sem sagði sig- úr lögum við lieilaga ritn- ing og kraup á kné fyrir eigin triiarvitund; kirkjan, sem gert hefir háð að friðþægingarlærdóminum og hafið alla menn upp í guðssonartignina—það er sá hluti kirkjunn- ar íslenzku, stór eða lítill, sem hér er sýndur í nekt sinni og örbirgð. Hvort höfundurinn sjálfur hallast að sögulegum kristindómi, er mér ókunnugt, en margt í söguin hans l>endir í aðra átt. En hvað sem því líður, þá hefir hanu ltér með þeirri skarpskygni, sem oft bregður fyrir hjá

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.