Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.03.1915, Blaðsíða 21

Sameiningin - 01.03.1915, Blaðsíða 21
17 ínni. Verið getur, að yður verði þá ljóst, að þér hafið óafvitandi verið að útbýta eitri meðal barnanna. Þúsundir manna trúa því, að “vondur félagsskapur spilli góðum siðum,” og taka þó ekkert tillit til þess sannleika, þegar þeir kaupa bækur handa börnum. Flest- ir gera sig ánægða með þessar tvær spurningar: (1) Ætli drengnum líki bókin? og (2) Er hún til fvrir tutt- ugu og fimrn eent? Á meðan þessu fer fram, munu lé- legar barnabækur standa í blóma. En komist menn á annað borð í skilning um ófögnuð þann, sem hér er á ferðinni, þá verður spurningin að eins ein hjá öllum barnavinum; sú, nefnilega, hvernig ráða megi bót á honum. Á þessu verður þó aldrei ráðin bót, svo að haldi komi, fyr en samvizka þjóðarinnar rís önd- verð á móti sögum þessum, eins og hún reis í móti “tíu centa skáldsögunum” áður. Mjög gleðileg tákn eru nú sem óðast að koma í ljós. Fyrst er að minnast á hin opinberu bókasöfn, sem oftast láta nú orðið einn bókavörðinn eða fleiri gefa sig algerlega við barnabókum. Þessir gæzlumenn barna- bóka hér í Ameríku hafa unnið vandaverk sitt með á- stundun og skynsemd. Stundum standa þeir reynaar .svo teinréttir, að þeir keikjast litið eitt afturábak, en það er ágætur brestur. Yfirleitt munu barnadeildir þessar ekki opnar fvrir öðrum bókum en þeim, sem eitt- hvert verulegt gildi hafa. Þess eru mörg dæmi, að börn hafa vanist af auvirðilegum og lasburða skáldsögum og liænst um leið að kjarngóðnm bókum, eftir fárra mánaða kynning við deildir þessar. Það er góðs viti, að flest þau félög, sem einhver af- sldfti hafa af unglingum, eru farin að gefa máli þessu gaum. Markvert dæmi er félag það, sem nefnist ‘“The Boy Scouts of America”. Félagsskapur sá hefir, að til- hlutun yfirbókavarðar síns, herra F. K. Mathiews, og annarra embættismanna, barist fyrir umbótum í þessu efni með miklum og góðum árangri. Hann hefir komið á prent ágæturn bókaflokk og ódýrum í þrjátíu bindum, og látið semja skrá, með haganlegri flokkaskipun, yfir góðar bækur við unglinga hæfi.

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.