Sameiningin - 01.03.1915, Qupperneq 30
26
ungur vestur um haf, þá snauSur og umkomulaus. Hann lét eftir
sig fé, er nemur meir en hálfri miljón doll, og skyldi því varið til
eflingar norrænni menning. Voru skipaöir fjárhaldsmenn og stjórn-
endur og var sjóöurinn nefndur American-Scandinavian Foundation.
Nokkrir háskóla-kennarar og aSrir þjóökunnir menn skipa stjórnar-
nefndina, en ráSgefandi nefndir eru og skipaSar i þremur rikjmn
NorSurlanda, og eru konungar Noregs, SvíþjóSar og Danmerkur
Verndarar sjóSsins. Framkvæmdarstjóri er dr. phil. H. G. Leach,
áSur kennari viS Harvard háskóla. Er hann BandaríkjamaSur af
gömlum enskum ættum, en hefir stundaS norræn fræöi og dvaliS á
NorSurlöndum; er hann talinn einna mestur fræSimaSur í þeim
efnum í Vesturheimi. Hann var staddur í Winnipeg 10. Marz, og
flutti fyrirlestur í skóla Jóns Bjarnasonar um ferSir víkinganna.
SjóSnum er variS meSal annars til aS styrkja námsmenn. Sex
háskólamenn, tveir úr hverju landi, Noregi, Svíþjóö og Danmörku,
eru nú styrktir til háskólanáms í Vesturheimi. Jafnmarga náms-
menn héöan á aö styrkja til háskólanáms á Noröurlöndum. Eiga
þessi mannaskifti aö verða til þess, aö beina menningar-straumum
milli NorSurlanda og Vesturheims. Geta má nærri, aö fleiri verði
til aö sækja um styrkinn, en fá. Áttatíu háskólamenn sóktu um
hann í Noregi í fyrra. Styrkþegar héöan úr landi þurfa aö vera
ættaðir frá Noröurlöndum. íslendingar hafa þar jafnrétti við aðra
NorSurlandabúa, eftir því sem framkvæmdarstjóri hefir sagt Sam-
einingunni. — Mætti vona, aö einhver frá íslandi kæmist að viö
skóla hér, og einhver héSan viö háskóla íslands. Styrkurinn er 750
doll. til hvers námsmanns—nærri 3 þús. krónur.
Annar þáttur starfsins' er útgáfa beztu rita Norðurlanda á
ensku. Er þegar byrjaö á þvi verki og út eru komín nokkur rit
Tegnérs og Holbergs. Verið er að undirbúa útgáfu helztu rita
Björnsons. Allar íslendingasögur vonar dr. Leach aö út komi á
kostnaö sjóSsins á sínum tíma og þýðingar á því, sem bezt er í nú-
tíSar bókmentum íslendinga. í>á annast og sjóSur þessi um útgáfu
vísindalegra rita nýrra um norræn fræSi. Nýlega er komin út á
kostnaö sjóösins bók um Vínlands-ferðir, eftir prófessor W. Hov-
gaard, sem nú er kennari við Massachusetts Institute of Technology.
Þriðji þáttur starfsins er útgáfa tímarits þess, er nefnist
American-Scandinavian Review. Er vandaS til þess sem bezt og er
þaö fróðlegt rit og mjög nytsamt þeim, er á ensku máli vilja kynnast
menningu Norðurlanda og sögu. Síöasta hefti tímaritsins var sér-
staklega um íslenzk efni. Voru þar ritgenöir eftir íslenzka menn og
margar myndir frá íslandi.
Á ýmsan hátt annan hefir sjóður þessi stutt að því, aö koma
norrænni menning á framfæri hér í Vesturheimi. Stjórn sjóðsins
gekst fyrir söngsamkomu mikilli í New York til þess að vekja eft-
írtekt á sönglist Noröurlanda. Þá var og haldin listasýning og sýnd
listav'erk frá Noröurlöndum.
Öllum þeim, setn Noröurlandafræði eru hugðnæm, má þykja