Sameiningin - 01.03.1915, Blaðsíða 31
vænt um stofnun þessa, og veröa vist margir til aö blessa minningu
Niels Poulsons, danska drengsins fátæka, sem varö ríkur til þess að
auÍSga aöra.
KIRKJULEGAR FRÉTTIR.
Deild þessa annast séra KHstinn K. ólafsson.
Þann 1. Marz síöastl. andaðist í Decorah, Iowa, dr. Laur Lar-
sen, sem í 41 ár var formaður Luther College, elzta norsk-lúterska
skólans í Ameríku. Dr. Larsen var fæddur i Kristj ánssand í Noregr
10. Ágúst 1833. Hann kom til Ameríku 1857, og haföi þá lokiö guö-
fræöisprófi með ágætis einkunn viö háskólann i Kristjaníu. Um
glæsileg kjör var þá ekki aö ræða i prestsstööu hjá fátækum og
dreifðum löndum hans hér í landi, en hinn gáfaði og hámentaði ungi
prestur sneri þó bakinu við glæsilegri framtíö á ættjörð sinni til aö
gerast hér nýlenduprestur í fátækt og örbirgð. Hann hafði heyrt
neyðarópiö: “Kom vfir um og hjálpa þú oss,” og hiklaust lagði
hann út í starf og stríð í Drottins nafni. í tv'ö ár þjónaöi hann
norskum söfnuðum i Wisconsin, og í tvö ár kendi hann við skóla
Missouri sýnódunnar í St. Louis, þar til 1861 að hann varð formað-
ur Luther College, er þá var stofnað. Var sá skóli haldinn við
Halfway Creek, Wis., fyrsta árið, en síðan ávalt i Decorah. Um
nokkur ár var dr. Larsen ritstjóri “Kirketidende”, sem er málgagn
norsku sýnódunnar, eftir aö hann lét af störfum sem formaður skól-
ans. Var hann eindreginn í síðustu tíð með sameiningu þeirri milli
norsk-lútersku kirkjufélaganna, sem nú er svo vel á veg komin. —
Aðal lífsstarf dr. Larsen var viö Luther College, og í því sambandi
mun minning hans einkum lifa. Með óbilandi trú og áræði auðnað-
ist honum að koma þeim skóla á fastan fót og hefja hann til álits
og virðingar. Hann var óvenjulega hraustur maður, og hélt hann
þeim sið til hárrar elli, að starfa frá því kl. 6 á morgnana til kl. 10 á
kvöldin. Hann var skólapiltum eins og góður faðir. Þó hann væri
strangur og kröfuharður við þá eins og hann var við sjálfan sig, þá
fundu þeir ætíð til þess, að það var kærleikur til þeirra, sem birtist
í aganum, Ivkki all-fáir Islendingar hafa stundað nám við Luther
College, og var dr. Larsen þeim einstaklega vinveittur og góður.
Munu lærisveinar hans minnast hans og áhrifa hans með innilegu
þakklæti.
Fyrsta munaðarleysingjahæli i Ameríku var stofnað af lútersku
fólki 1737.
Fleira lúterskt fólk er í Cook County, Illinois. en í nokkru öðru