Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.03.1915, Síða 35

Sameiningin - 01.03.1915, Síða 35
31 “Ert þú aS gefa í skyn, aS eg sé aS hafa rangt viS?” spuröi Yingchi reiSur. “Já,” svaraSi Toksang,—og svo fóru þeir saman og flugust á. Einu sinni, þegar þeir voru í áflogum út af þessu gamla á- greiningsefni, var þrifiS sterklega til þeirra. AldraSur maSur hafSi komiS aS þeim óvörttm og stóS nú á milli þeirra. l'eir þektu hann undir eins; þaS var yfirráSgjafi keisarans; og þeir voru ekki lengi aS fleygja sér flötum og berja enninu þrisvar viS jorSu, því þannig er höfSingjum heilsaS þar í landi. “Keisarann vantar þjónustusvein,” sagSi ráSgjafinn viS þá; “hann verSur alinn upp viS hirSina og fær seinna gott embætti. Eg hefi oft séS ykkur og veitt ykktir eftirtekt, en er þó ekki enn ráSinn í því, hvorn ykkar eg á aS kjósa. /EtliS þiS ekki aS setja upp flug- dreka í kveld?” í Kína er sá siSur, aS allir setja upp einu sinni á ári “flugdreka góSra áfornta,” eins og kallaS er. Þeir útbúa flugdrekana meS mestu launung. og letra á þá alla þá galla, sem þeir halda aS þeir hafi sjálfir, og þegar svo skuggsýnt er orSiS, aS aSrir geta ekki lesiS letriS, fara þeir út á bersvæSi og setja upp flugdrekana. Þegar drekinn er kominri hæfilega hátt, skera þeir á strenginn, og svo svífur drekinn eitthvaS burtu, og meS honum halda Kínv'erjar, aS gallarnir þeirra og ósiSirnir fari líka. Þetta kvöld var flugdreka- hátíSin árlega ákveSin, og báSir drengirnir svöruSu spurningu ráS- gjafans játandi; þeir sögSust áreiSanlega ætla aS setja upp drek- ana sína. “Já auSvitaS”, svaraSi Pop-ye,—því svo hét ráSgjafinn. Og svo sagSi hanri Yingchi aS festa lítinn silfurpening viS drekann sinn, en Toksang aS festa páfagauksfjöSur viS sinn dreka. ‘T>aS er ekki gaman aS þessu,” sagSi Toksang viS sjálfan sig seinna unf daginn. “Eg sé svo sem hvernig ráSgjafinn ætlar aS hafa þaS. Hann ætlar aS láta leita aS flugdrekunum merktu, til þess aS fá vitneskju um gallana okkar." Og svo letraöi hann meS mestu samvizkusemi á drekann sinn hvíta alla gallana, sem hann hafSi eSa liélt aS hann hefSi. Yingchi var ekki lengi aS ganga frá drekanum sínum. “Sá cr ekki lítiS einfaldur, hann Pop-yc gamli,” sagSi hann viS .sjálfan sig. “ÞaS verSiir gaman aS sjá, hvort drekinn hans Toksang verSur betri en rninn.” Og hann virti hró'Sugur fyrir sér drekann sinn, sem ekkí var letraS á eitt einasta orS. Um kvöldiS voru drekarnir settir upp, og meS birtun morguninn eftir sendi ráSgjafinn menn út til jiess aS leita aS tveimur drekum, sem auSkendir voru meS silfurpenng og páfagauksfjöSur. Svo kom sendimaSur frá hirSinni og sagöi drerigjunum aS klæö- ast sparifötunum sínum og koma meS sér til hallar keisarans. Þar voru jæir leiddir um marga skrautlega sali, þangaS til þeir komu loks þangaS, sent Pop-ye sat viS borb, og voru á því flugdrekarnir þeirra, Hann klappaSi sainan höndum, og þá kom inn þjónn meS stóra glóSarpönnu og var í henni viSarkoIa-glóS.

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.