Íslendingur - 09.04.1915, Síða 1
I. árg.
Islendingur.
• •##•••••# • • • • t •-• • • • • • -• • •-•-•-• •••• • •-• ••• • • • • •••••• • j
l , Ritstjórar: Ingimar Eydal og Sig. Einarsson. #
• y\kureyri fösfudaginn 9. apríl 1915. •
ÍSLENDINQAR!
Eriendar símfrjettir.
Jeg he/i nú undanfarna 5 mán-
uði haldið úti „Dagblaði“, sem að-
allega flutti frjettir af striðinu og
öðrum nýjustu viðburðum, erlendis
og nærlendis. Blaðinu hefir verið
tekið mjög vel og fengið talsverða
útbreiðslu. Kaupendur hafa verið
fleiri en búast mátti við í fyrstu,
þar sem blaðið var í rauninni ein-
göngu eða aðallega œtlað Akur-
eyrarbúum, til þess að flytja þeim
daglega frjettir aj striðinu mikla.
En samt sem áður var svo kotnið
áður en blaðið hœtti, að allmikill
hluti kaupenda blaðsins voru ein-
mitt utanbœjarmenn og hefðu þeir
verið miklu fleiri ej samgönguleysi
við nœrsveitirnar hefði ekki tálmað
útbreiðslu blaðsins.
Auk þess hefi jeg ekkigetað haft
blaðið svo úr garði gert, að mönn-
um út um sveitir vœri verulegur
fengur i því. Liggur til þess sú á-
stœða, að i svo örlitlu frjettablaði,
einsog Dagblaðið var, er littmögu-
legt að taka til meðferðar nein
stœrri lands- eða þjóðþrijamál. —
Ritgerðir um slik efni yrðu allar
bútaðar i sundur og óaðgengilegar
til lesturs.
Petta hefir mjer verið fullljóst.
Enda hafa ýmsir af kaupendum
þess vikið að þvi við mig, að þeir
óskuðu eftir, að blaðið tjeti meiia
til sin taka almenti landsmál eða
flytti meira af uppbyggilegum rit-
gerðum um ýmisleg efni, sem til
gagns og fróðleiks mœtti verða.
Af þessum ástœðum hefi jeg nú
ákveðið að hœtta útgáfu Dagblaðs-
ins og i þess stað gefa út viku-
blað það, sem hjer birtist af fyrsta
tölublaðið.
feg hefi orðið svo heppinn að fá
hr. Ingimar Eydal, kennara,
sem samverkamann minn við blað-
ið, og vonast jeg eftir því, að menti
taki blaðinu mun betur fyrir þá
ráðstöfun.
Frjettasambönd höfum vjer jafn-
góð og áður.
Að svo miklu leyti, sem blaðið
kann að láta stjórnmál til sin taka,
mun það yfirleitt hallast að fram-
sóknarstefnunni, eða þeirri stefnu,
setn vill auka en um fratn alt ekki
rýra sjálfstæði landsins og forn
landsrjettindi. A3 svo stöddu sjá-
um vjer ekki ástæðu til að lýsa
nánara stefnu blaðsins eða afstöðu
Framhald á 2. siðu.
Opinber tilkynning frá bresku utanríkissljórninni
í London.
London 3. april.
Flotamálastjórnin tilkynnir, að breskur flugmaður hafi gert á-
rás á kafbáta Þjóðverja hjá Antwerpen og orðið vel ágengt.
Annar flugmaður fór til Zeebriigge og varpaði niður 4 sprengi-
kúlum á 2 kafbáta Pjóðverja þar. Halda menn, að góður ár-
angur hafi orðið af því. Flugmennirnir komu heilir á húfi heim.
Síðastliðna viku (sem endaði 31. marz), sigldu 1559 skip til
og frá breskum höfnum. Kafbátar óvinanna söktu 5 skipum á
þessu tímabili.
London 7. april.
Utdráttur úr opinberum skýrslum Frakka frá 3.-6. apríl:
I orustum þeim, sem nú hafa staðið í La Pretréskógi, hafa
Frakkar handtekið rúmlega 200 hermenn þar á meðal 6 fyrirliða.
Peir náðu 3 skotgröfum hverri á fætur annari.
Fyrir austan Verdun hafa Frakkar sigrað og náð þar smáþorpi
og hæðum nokkrum.
I Voevrehjeraði sigruðu þeir einnig og tóku þar þorp og
samkvæmt frásögnum hertekinna manna var 6 þýskum herfylkjum
gertvístrað þar.
Fyrir sunnan og austan St. Michiel náðu Frakkar skotgryfjum
af Pjóðverjum og hafa haldið þeim þrátt fyrir gagnáhlaup.
Milli sjávar og Champagne hefir ekkert markvert skeð.
London 7. april.
Utdráttur úr opinberum skýrslum Rússa frá 4.—6. apríl.
Hjá Niemen hafa staðið smá bardagar og halda Rússar sókn
sinni þar.
I Póllandi hefir ekkert markvert skeð.
1 Karpathafjöllum hafa Rússar enn unnið ágæta sigra. Frá
20. mars til 3. apríl liafa Rússar handtekið 378 foringja og
33155 liðsmenn og náð 17 fallbyssum, 101 vjelbyssu milli Bali-
grot og Usok eingöngu. Frásagnir Austurríkismanna um sigra
síns liðs er einber uppspuni.
Tyrkneska beitiskipið Medjegeh rakst á tundurdufl fyrir utan
Odessa og sökk.
Rússnesk herskip eltu Goeben og Breslau og neyddu þau til
þess að leita skjóls í Sæviðarsundi.
EINKASKEYTI til Morgunblaðsins.
Kaupmannahöfn 1. april.
Þjóðverjar segjast hafa tekið 1000 Rússa höndum í orustunni
hjá Tauroggen og unnið sigur hjá Krasnopol. 2000 Rússar fjellu,
en 3000 voru handteknir. Rjóðverjar náðu 7 vjelbyssum, 1 fall-
byssu og mörgum skotfæravögnum.
Frá Tyrkjum kemur fregn um það, að flugmaður þeirra hafi
varpað sprengikúlum á herskip bandamanna fyrir framan Hellu-
sund.
Von Kluck, yfirhershöfðingi, særðist af sprengikúluflís er