Íslendingur - 10.09.1915, Blaðsíða 2
90
ISLENDINOUR
23. tbl.
»«••••••• •♦•••••• • ••>♦♦♦
Glerá hjer fram af „Brekkunni* má
fá nóg afl til að byrja með, en
þegar áin er sem minst á vetrum,
væri eigi hægt að fá alla viðbótina,
nema með því að safna vatninu á
nóttunni, þegar Iítiö er með það að
gera.
Þessar 3 stððvar mundu allar
geta borið sig, ef rafmagnið yröi
notað eins og gert er ráð fyrir í
áætlunum, en fyrir bæjarfjelagiö
mundi vera mestur óbeinn hagur
að þeirri stöðinni, sem selur raf-
magnið ódýrast, en það er sú stöð-
in, sem síðast er talað um. Þó dug-
ir eigi að fara eftir þessu eingöngu.
Það getur verið áhætta mikil að
byggja stóra stöð, og ætla að selja
rafmagnið ódýrt, treystandi því að
það verði þá notað mikið. Þetta
getur brugðist, því að bæði sjá
menn í kostnaðinn, sem breytingin
hefir í för með sjer, þar sem farga
verður gömlum áhöldum og kaupa
ný í staðinn, og sumir jafnvel hika
við að breyta til, meðan rafmagnið
er óreynt. Áður en afráðið yrði,
hver leiðin yrði valin, er þessvegna
nauðsynlegt að grenslast eftir, hve
mikið rafmagn mundi verða notað.
Enda er eigi bundið við að taka
einhverja af þessum þrem leiðum.
Vel mætti byrja með að selja raf-
magnið nokkuð dýrt, og búast við
að lækka verðið, er rafmagnsafnot-
in yrðu meiri, en þá verður að búa
svo um í upphafi, að hægt verði
að auka aflið eftir þörfum án mik-
ils aukakostnaðar.
Mönnum kann nú að þykja nokk-
ur ósamræmni í því, að í áætlun-
unum er búist við að rafmagnið sje
notað til matsuðu og húshitunar, þó
að verðið á því sje miklu hærra
en áður er sagt, að það megi vera
til að þola samkepni við steinolíu
og kol. En þar til er því að svara,
að menn sjá sjer nú oft hag í því
að nota í viðlögum steinolíuvjelar
til að hita mat við, þó að steinolía
sje raunar dýrari en kol, ef um
mikla hitun er að ræða. Eins, og
þó miklu fremur, mun það verða
með rafmagnið, vegna hreinlætis,
vinnusparnaöar o. s. frv., sem þvf
er samfara. Og þó að rafmagnið
yrði margfalt dýrara en kol til að
halda húsum hlýjum á köldum
vetrardegi, þá mun þó mörgum
þykja tilvinnandi að hafa lítinn raf-
magnsofn til að nota, þegar kalt er
á sumrum, og Iosna við að þurfa
að kveikja upp í ofnum, og oft
stendur svo á um einstök herbergi,
að ilt er að koma þar fyrir venju-
legum ofnum, og þá kemur sjer vel
að geta hitað þau með rafmagni.
Ennfremur eru til margskonar hlý-
indaáhöld með rafmagnsyl, svo sem
fótavermsl, vögguvermsl o. s. frv.
og yrðu þesskonar áhöld vafalaust
nokkuð notuð.
Loks gæti komið til mála að
byggja svo stóra stöð, að hún auk
rafmagns til ljósa og mótora gæti
látið í tje svo mikinn rafmagnsyl,
að nægði til matgerðar og húshit-
unar f öllum Akureyrarkaupstað.
Rafmagnið mætti þá eigi selja dýr-
ara en lh eyri pr. kwst. og myndi
þó varla duga til fyrst í stað til
þess að fá alla með, nema ef mönn-
um væri útveguð rafmagnsáhöldin
kostnaöarlaust. <■
Árstekjur af þessari stöð áætla
jeg þannig:
Rafmagnsljós kr. 12,000.00
Mótorrafmagn (80,000
kwst.) — 400.00
Rafmagn til matsuðu
100,000 kwst.) - 5000.00
Til húshitunar, 20.00
kr. á mann — 40,000.00
Samanlagt kr. 57,400.00
12
»Hann bar handtösku, en hvort hún hefir verið merkt
eða ekki sá jeg ekki; en ef þjer flýtið yður, getið þjer
eflaust náð honum, hann fór þessa leiðina!« sagði
hann og benti. »En er nokkuð að? Get jeg ekki hjálp-
að yður neitt?«
»Jeg skil yður ekki,« svaraði jeg hryssingslega og
furðaði mig á, að hann skyldi líka, eins og lestarstjór-
inn, álíta að bróðir minn væri glæpamaður, sem væri
að flýja undan þjónum rjettvísinnar.
«Jeg vii ekki móðga yður, herra minn, en vinur yð-
ar virtist þurfa eftirlits með. Annaðhvort er hann trylt-
ur eða í andlátinu. Augu hans leiptruðu eins og eld-
kúlur og andlit hans var hvítt eins og snjórinn. Þegar
hann fór fram hjá kallaði jeg til hans: »Illviðri nú!«
en hann hjelt áfram, án þess að iíta til hægri eða
vinstri og skifti sjer ekki af mjer.«
Þessi orð juku ótta minn. Jeg þakkaði lögregluþjón-
inum fyrir og hljóp í áttina, sem hann benti í.
Traðk í snjónum vísaði mjer leiðina og brátt var jeg
kotninn á götu eina, þar sem sumarhaliir umgirtar smá-
um lystigörðum lágu til beggja handa, en steinrið
greindi þær frá gangstjettinni. Þar stóð hann! Hjer
um bil á miðri götunni skamt frá Ijóskeri stóð maður
f grárri kápu og var auðsjáanlega að athuga hús, sem
snjeri fram að Ijóskerinu, um Ieið og hann hristi af
sjer snjóinn.
Jeg flýtti mjer þangað til þess að heilsa honum og
skóhljóð mitt heyrðist ekki fyrir snjónum.
• • • • • •••»•••••••••••••••••••••••••••••••
Erlendar simfriettir.
EINKASKEYTI til Morgunblaðsins frá
Kaupmannahöfn 4. sept.
Pjóðverjar og Austurríkismenn hafa tekið Luck.
Rússar hafa yfirgefið Orodno.
Opinber tilkynning frá bresku utanrikissjórninni
í London.
London 8. sept.
Nokkur Zeppilinsloftför hafa farið herferð til austurstrandar
Bretlands og kveiktu í nokkrum húsum, en eldurinn var pó slökt-
ur. Nokkrir menn biðu bana, par á meðal 1 hermaður, og um
40 særðust, karlar og konur.
Rússar tilkynna að peir hafi tekið alt að 200 hermanna hönd-
um hjer og par á herlínunni.
Húshitun hefi jeg áætlað 20.00
á mann. í heimavistum Gagnfræða-
skólans hefir undanfarna 5 vetur
eldsneyti hvers nemanda kostað að
meðaltali kr. 10.20 yfir veturinn
(hæst kr. 12.55, lægst kr. 7 47). Til
uppbótar fyrir það, að nemendur
sitja í tímum nokkurn hluta dags-
ins og geta sparað að Ieggja í þann
tímann, má líklega bæta við svo að
það veröi 15.00 krónur á mannyfir
veturinn, og tel jeg á, að það láti
nærri að vera meðaltal af því, er
menn hjer í bæ eyða í húshitun.
Til vonar og vara bæti jeg við 5.00
krónum á mann, svo að það verða
20.00 krónur.
Almenn húshitun með rafmagni
kemur að því leyti illa niður á raf-
magnsstöðinni, að flestir þurfa raf-
magnið á sama tíma dagsins og
allir þurfa það rhest sömu dagana,
sem sje þegar veðrið er kalt. Stöð-
in verður því að vera við því bú-
in að geta látið mikið rafmagn í
einu, en þá þarf hún að vera stór.
Jeg býst við að stöðin þyrfti að
geta framleitt um 2500 kw. En slíka
stöð með öllum leiðslum væri varla
hugsandi að fá bygða fyrir minna
en 800,00000 krónur, og til vaxta-
greiðslu og firninga þyrftu þá
80,000.00 krónur. Til þess gengju
þá allar tekjurnar, 57,400.00 kr,. og
hrykki þó eigi til. Og samt eru eftir
jafnnauðsynleg útgjöld sem rekst-
urskostnaður og viðgerðakostnaður.
Slfk stöð mundi því eigi geta borið
sig, og það því fremur, að hvergi
hjer nálægt er unt að fá í einulagi
nógu mikið vatnsafl, heldur yrði
að sækja aflið um langan veg og
erfiðan, svo að stofnkostnaðurinn
færi vafalaust langt fram úr áður-
greindri upphæð.
Porkell Þorkelsson.
Sparimerki barna.
Salan gengur vel. Selt fyrir 7—8
hundruð á liðugum 2 árum. Sælgæt-
iskaup barna mun minni en áður,
segja kaupmenn, gætu þó að skað-
lausu minkað mikið enn. Mörg börn
eiga hálffyltar sparimerkjabækur, nú
væri ráð að fylla þær og koma þeim
í bankann. Það er þarft verk að venja
börnin á að spara eyririnn, þá kemur
krónan á endanum.
ti B.
(Morgunbl. í Rvík.)
Frá ýúþingi.
Efri deild feldi 78,000 kr. fjárveit-
inguna til Jökulsárbrúarinnar, sömu-
leiðis 5000 kr. til aukins eftirlits
með bannlögunum.
Þingið hefir samþykt hvenær AI-
þingiskosningar skuli fara fram:
Til efri deildar 3. júlí n. k., en
kjördæmakosning 18. sept. 1916.
Neðri deild samþykti með 20
samhljóða atkv. leyfisheimild iækna
að láta sjúklinga fá vín (Malaga,
Sherry. Portvin, Cognac, en ekki
bjór) með lyfseðli.
Fjárlögin voru til umræðu í Neðri
deild í gær. Komnar eru fram 100
breytingatillögur við þau síðan þau
fóru úr Efri deild.
Ekki ákveðið enn hvenær þingi
verður slitið.
Úr Reykjavík.
8. sept.
Quðmundur Jakobsson, trjesmiður í
Rvfk, hefir fengið hafnarvarðarstöð-
una. Auk hans sóttu: Friðrik Björns-
son skipstjóri, Þorst. Jdi. Sveinsson
leiðsögumaður og Jóh. Pjetur Jónsson
lautinant á danska torpedobátnum
»Sölöven«.
>Island«, hið nýja skip sameinaða
gufuskipafjelagsins, var fyrsU skip ð
sem lagðist við land í Reykjavfk.
Erlendar frjettir.
Pegoud fallinn. Hinn frægi franski
flugmaður Pegoud er nýlega fallinn í
strfðinu.
/ulius von Payer, austurríski heims-
skautsfarinn, er látinn. Hann var fædd-
ur árið 1842.
Árið 1869 fann hann t. d. Frans
Josefsfjörðinn á Grænlandi.
Síðar hefir hann mest lagt stund á
málaralist.
Manchethnappur
úr gulli hefir tapast.
Finnandi skili ritstj. gegn fundar-
launum.