Íslendingur - 05.01.1917, Qupperneq 1
ISLENDINGUR
3. árg. ;
»-f-f-#-«~t't t-t-t-t t-t-t-t •••••• -#-• #Hi-H
t-t-t-t -t-#-#-t~t-t-t -
Ritstjóri: Sig. Einarsson — Akureyri, föstudaginn 5. janúar 1917.
•• •• • •• •
♦••••• • • • • ••• • •
Bókasafnið opið þriðjudaga, firatudaga,
laugardaga 5—8, sunnudaga 4—8.'
Baejarfógetaskrifstofan opin virka daga
«o-2 og 4—7- , . . , ■
Bæjargjaldkeraskrifstofan opin virka daga
6—7, nema laugardaga 6—8.
íslandsbankinn opinn virka daga 11—2.
Landsbankinn — — — 11—2.
Landssíminn opinn daglangt (8—9) virka
daga, helga daga 10—12 og 4—7.
Pósthúsið opið virka daga 9—2 og 4—7,
sunnudaga 10—11.
Tilkynning.
Það tilkynnist hjermeð heiðruðum
kaupendum þessa blaðs, að meðrit-
stjóri minn hr. Ingimar Eydal er nú
hættur ritstjórnarstarfi sínu við blaðið.
Pó kaupendafjöldi blaðsins sje
meir en nógur til þess að blaðið
geti borið sig, þá virðast svo marg-
ir gleyma að borga andvirði þess,
að ekki er nærri því komandi að
það geti borgað starfsmönnum sín-
um helming þess, sem þeir að rjettu
lagi ættu fyrir starf sitt hvað þá
heldur meira.
Um leið og jeg hjermeð þakka
hr. Ingimar Eydal vel unnið starf
í þágu blaðsins, vona jeg að blaðið
eigi sömu vinsældum að fagna eftir
sem áður.
Sig. Einarsson.
EFNDIRNAR.
Sá tími kom, og þó ekki fyr en
mann varði, er Heimastjórnarflokk-
urinn sagði skilið við fráfarandi
ráðherra, Einar Arnórsson, og gerði
upp skuldaskifti sín við hann. En
hinu áttu menn ekki von á, að
Heimastjórnarmenn sýndu jafn mikla
hreinskilni, jafn mikla sannleiksást
við uppgerð þrotabúsins, einsog
raun ber þó vitni í ritstjórnargrein
í i/Lögrjettu" 29. nóv. 1916.
Það er trauðla hugsanlegt, að
margir hafi vænst þess, að Heima-
stjórnarflokkurinn ótilkvaddur færi
að birta alþjóð loddaraleikinn —
hinn sjúka pólitíska sáttmála sinn
og fráfarandi stjórnar. Óheilindin
eru orðin svo megn í íslenskri póli-
tík, að menn hryllir við að horfa á
veruleik þeirra heitorða, sem stjórn-
málaflokkar vinna hver öðrum bak
við tjöldin.
i,Lögrjettu“-ritstjórinn lyftir blæ-
unni ofurlítið frá hinu holdfúna and-
Iiti síns eigin flokks; vjer tilfærum
hjer kafla úr áðurminstri grein hans
og hljóðar hann þannig: „Heima-
stjórnarflokkurinn hefir efnt vel lof-
orð sitt til Einars Arnórssonar. Á
þingi 1915 studdi flokkurinn hann
eftir þörfum, og þaggaði niður f
kyrþey þau lagafrumvörp hans og
aðrar tillögur, sem flokknum þótti
öldungis óstyðjandi (t. d. frv. um
fjölgun bankastjóra viö Landsbank-
ann, frv. um að hafa tyo ráðherra,
stóra fjárveitingu handa Ragnar
Lundborg o. fl.), án þess að gera
þetta að neinu háværu ágreinings-^,
efni. Og í framhaldi af þessu hafa
blöð Heimastjórnarflokksins einnig
síðan þingi sleit Iátið aðfinsluverðar
stjórnarathafnir hans liggja að mestu
í þagnargildi, enda óskaði enginn
eftir stjórnarskiftum fyr en að kosn-
ingum afstöðnum, úr því að þeirra
var ekki lengur að bíða. Hefir flokk-
urinn þannig greitt að fullu og vel
útlátna borgun þá, sem hann hafði
samið um að greiða fyrir björgun
þessara tveggja strönduðu stórmála.
(Hjer er átt við fána- og stjórnar-
skrármálið.) Og eru þar með allar
ástæður þær burtu failnar, sem
léiddu flokkinn til stuðnings við ut-
anflokksráðherra. Á aukaþingi því,
sem nú kemur saman, hefir Heima-
stjórnarflokkurinn öldungis óbundna
afstöðu."
„Rotterne forlader det synkende
Skib" segir danskur málsháttur. —
Eins virðist hjer og Heimastjórnar-
mönnum varið. Þeir senda út ofan-
nefnda yfirlýsingu á þeirri stundu,
er fullljóst er um afdrif fyrv. ráð-
herra. Þeir virðast jflýja hina fall-
andi stjórn einsog hrafnar pestsjúk-
an ærskrokk. En mikill er munur-
inn á mörinunum. Nokkrum dög-
um eftir útkomu ofangreindrar yfir-
lýsingar klínir fráfarandi ráðherra
sjer og eina trygga förunautnum
í þinginu utan á Heimastjórnar-
flokkinn.
Vöntun.
Óefað mun það vera, að keyrslu-
hestar á Akureyri þjást oft af þorsta,
þegar þeir eru í notkun, því bæði er
það, að notendur þeirra munu trauðla
nógu vakandi með að brynna þeim,
eins oft og með þarf, enda erfiðleik-
um bundið, þar sem þeir þurfa vatn
f hús að sækja, sem líka mundi tefja
keyrsluna mikið. A þessu verður því
aðeins bót ráðin með þvf að búa til
nokkrar vatnsþrær, víðsvegar um bæ-
inn og væri þá sjálfsagður staður
tveggja þeirra, sfn við hverja aðai-
bryggju bæjarins — Hafnar og Torfu-
nefs—-það væri því kærleiksverk, gegn
»þarfasta þjóninum«, að bæjarstjórn
Akureyrarkaupstaðar, sem allra fyrst
að hentugleikar leyfa, ijeti gjöra þess-
ar vatnsþrær. eins og gjört hefir ver-
ið f Reykjavfk, enda er það tiltöiu-
lega Iftill kostnaður, þar sem vatns-
veitan er fengin; þá mundu keyrar-
arnir óefað láta hesta sfna svala þorst-
anum, svo oft sem þörf gjörist. Kærar
mundu vatnsþrærnar einnig verða að-
komumönnum handa sfnum hestum.
Vona jeg hin háttvirta bæjarstjórn Ak-
ureyrarkaupstaðar, taki mál þetta til
athugunar og framkvæmda, svo fljótt
sem unt verður. Þó hestarnir þjáist af
þorsta, geta þeir ekki kvartað.
Undantekning er það, að f Reykja-
vfk sjáist keyrsluhestur stánda fyrir
vagni, án þess að poka með heyi eða
höfrum sje smokkað á höfuð honum,
sem hann svo getur jetið úr á meðan
verið er að taka af vagninum eða á
hann að láta og ættu keyrarar Akur-
eyrarkaupstaðar að temja sjer þá reglu,
þvf þó hestarnir sjeu ekki beinlfnis
svangir, þá kemur þeim vel að fá hey
eða hafra að glepsa f, á meðan þeir
standa aðgjörðalausir fyrir vagninum,
þeir hressast við það og verða kvik-
ari til dráttar.
Að hafa teppi eða dúk breiddan
yfir hrygg hestsins, sem nær ofan sfð-
urnar og aftur yfir lendina, þegar
veðrið erjkalt, svo kuidanæðingur ekki
leiki um þá, er nauðsynlegt; það sjá
allir að er þeim bæði ónotalegt og
óholt. Væri því æskilegt, að keyrarar
Akureyrarkaupstaðar, svo og allir aðr-
ir, sem keyrsluhesta nota, viðhefðu
þessa notasemi við hesta sfna.
Haukur.
Skammdegisnótt.
Þú skammdegisnótt!
Hve skinandi fögur i gimsteina gliti,
er geislanna perlur þú bindur t liti.
Oghöllinþín,drotning,erfannrósumfölduð,
fóðruð með ísi og mialldúkum tjölduð.
/ blikandi ró
stjörnurnar glitra og lofttjöldin lýsa,
líða til viðar og hefiast og rísa.
Bjartar og skœrar um bláhimins-sali
brósa þœr o’n yfir grundir og dali.
í geislandi blœ
norðljösabylgjurnar blossandi loga,
birtunni slá yfir hauður og voga.
Með regnbogakórónu rósjögur llða
þau rjett eins og hugur um blágeiminn viða.
Fölur á brá
glottandi mdninn í skýjamjöll skundar,
skotrar til augum og litur til grundar.
Á svipstundu getur hann silfrað upp klakann
sóllitað fjörðinn og gullmálað jakann.
Himneska dýrðl
Hve títt hef jeg lotið þeim alheimsins anda,
sem á þvllikt Ijósriki Jagurra landa,
og þakkað það alt, sem hann íslandi veitti
afyndisleik geimsins, ogfegurð það skreytti.
1 * *
*
Skammdegisnött!
oft ertu svona, — en svört ertu stundum,
svo sjest ekki fótlengd d stíg eða grundum.
Og bros þitt er geigvœnt og hrollkalt sem
Helja,
— þá.hikarðu’ ei dauðanum lifið að selja.
Og skammdegisnótt
er lika til innra t sálnanna sölum,
þaf sjást stundum myndir aj fannlögðum
dölum,
1. tbl.
•••••••
og lifsblómin eru und klakanum kalin,
og kœrasta rósin i snjódyngju falin.
* *
*
Ó, skammdegisnótt!
Ef œtti’ jeg að deyja við brosið þitt bjarta,
þá bið jeg þess eins, að þú vildir þjer
skarta
og sóium og Ijósum um salina tjalda —
þá sofnað' jeg hugrór við barminn þinn
kalda.
Jón Sigurðsson
frá Dagverðareyri.
Frá yUþingi.
4. janúar.
Stjórnin er eigi enn formlega sest
á laggirnar. Konungur hefir beðið
Jón Magnússon að mynda nýja
stjórn, en hann hefir eigi enn und-
irritað sína eigin útnefningu. Útnefn-
ing hinna ráðherranna er ekki komin.
Mál i nefndum. Nokkur stór mál
eru komin í nefnd t. d. bresku samn-
ingarriir.
Samkomulag er sagt fremur gott.
Pingið framlengt til 10. þ. m.
Laun ráðherranna. Forsætisráð-
herra á að hafa 10 þús. kr. föst laun,
auk 2 þús. kr. húsaleigustyrks, en
þar að auki 2 þús. kr. til risnu, og
rúm 2 þús kr. hefir hann þetta ár,
sera formaður bankaráðs íslands-
banka. Hinir ráðherrarnir eiga að
hafa 8 þús. kr. árslaun.
Tímaritið »Rjettur«.
Úr skálmöld frægri
skriföld er og skraföld orðin.
Sig. Breiðfjörð.
Mikið er ritað á landi voru. Ekki vant-
ar það. Blöðin eru nú orðin svo mörg, að
ekki verður tölu á komið. En fólksfjölgun
í landinu er minni. Tímarit eru líka óð-
um að fjölga. Vjer höfum nú Skírni, Eim-
reiðina, Iðunni, svo er Skinfaxi og Skóla-
blað og enn fleiri. Og nú bætist eitt við
enn, sem heitir »Rjettur«. Er það stofnað
af hinum mentagjörnu Mývetningum, eða
rjettara sagt Þingeyingum. Þo er skáldjöf-
ur þeirra, Ouðmundur á Sandi, þar ekki
með.
Tímarit þetta er auðugt að innihaldi og
mörgu er þar hreyft við, með æskufjöri
og áhuga. En allmikill Socialista-blær er
þar á öllu, sem sýnir sig á.því, að þarer
tekinn upp fyrirlestur eftir Þorstein sál.
Erlingsson, er hann hjelt fyrir Verkmanna-
fjelag Reykjavíkur, fyrir 4—5 árum síðan.
En það er líka margt í ritinu, sem þörf
er á að sje skoðað frá sem flestum hlið-
um, t. d. greinin um strandferðir og póst-
göngur. Hugmyndin um fyrirkoniulagið
er ágæt. En timinn núna er ekki hentug-
ur fyrir þesskonar bollaleggingar til fram-
kvæmda á meðan þetta veraldarstríð fer
versnandi og enginn veit hver endir
þar á verður, . .