Íslendingur

Útgáva

Íslendingur - 12.08.1921, Síða 1

Íslendingur - 12.08.1921, Síða 1
Afgreiðslumaður: Hallgr, Valdemarsson Jl3fnarstræ{i 84, Rit stjóri: Jónas Jónasson frá Flatey VII. árgangur. Akureyri, 12. ágúst 1921. 40. tölublað. Avextirnir at starfsemi samvinnufélaganna og skattfrelsi þeirra. VI. Fyrsta greinin í lögunum um samvinnufélög hljóðar þannig: »Lög þessi gilda um öll félög, er starfa á samvinnugrundvelli, með því mark- miði, að efla liagsæld félagsmanna', í réttu hlutfalli við þátttöku þeirra í félagsstarfinu, og hafa það verk- svið og skipulag, sem nánar er tek- ið fram í eftirfarandi greinum«. Hér ■ að framan hefir verið bent á, hversu heilbrigður grundvöllurinn er undir lögunum og virðist því næst að spyrja, hvort það sé alveg útilokað, að samvinnufélag megi stofna á heilbrigðum grundvelli? Að félögin séu stofnuð með því markmiði, að efla hagsæld félags- , manna, efast víst enginn um; það mun vera markmið flestra gróðafé- laga. Bæjarbúar, bæði í Reykjavík og Akureyri, hafa áreiðanlega fund- ið til þess á undanfarandi árum, að Sláturfélag Suðurlands og Kaupfélag Eyfirðinga hafa selt nýtt kjöt með það fyrir augum, að efla hagsæld félagsmanna og var því engin sér- stök ástæða til að taka það atriði upp í lögin. Önnur grein verður athuguð sér- staklega síðar í sambandi við versl- uuarpólitík samvinnuleiðtoganna. Fyrsti liður 3ju greinar getur átt við hvaða félag sem er. Um ann- an lið þriðju greinar eða samábyrgð- ina í kaupfélögunum hefir Björn Lín- dal lögmaður rætt og ritað nú fyrir skömmu og auðvaldsblaðið »Dag- ur« reynt að andmæla. Sú viður- eign er tæplega samvinnufélögunum í vil að dómi óvilhallra manna. Verð- ur hér látið nægja að vísa til þess, er þar er haldið fram með og móti. Þriðja atriði 3ju greinar, um jafna atkvæðisréttinn fyrir alla meðlimi kaupfélaganna, kemur framtíðin til að sýna hvað mikils virði er. Drátt- ur sá, er orðið hefir á útborgun úr stofnsjóði Kaupfélags Eyfirðinga til félagsmanna, sem samkvæmt lög- um þess félags átti að útborgast 1920, sem áréttað var með sam- þykki meiri hluta á aðalfundi — fulltrúafundi félagsins í fyrra, bendir til, að atkvæðisrétturinn sé ekki alveg skilyrðislaust jafn fyrir alla, Verður nánar vikið að því síðar. í þriðja kafla laganna, urh skrá- setrjingu félaganna, stendur í 11. gr.: »Félög, sem stofnuð eru áður en lög þessi öðlast gildi, hafa til- kynningarfrest frá fyrsta aðalfundi, sem tækifæri hefir haft til að breyta félagssamþyktum í það horf, sem lög þessi mæla fyrir«. Hve langan tilkynningarfrest slík félög hafa, stendur ekkert um í lögunum og getur það að sjálfsögðu valdið deil- um. Af greinargerðinni má þó ráða það, að meining flutningsmanna sé, að fresturinn sé einn mánuður, eins og lögin mæla fyrir að skuli vera tilkynningarfrestur nýrra félaga. Ver- ið getur þó, að þetta atriði- sé með vilja haft óákveðið og að það sé sett þannig inn með ákveðnu mark- miði fyrir 'augum. I fimta kaflanum, 25. gr., er talað um, hvernig peningum skuli safn- að í stofnsjóð og hvenær úr hon- um megi taka. Þar stendur meðal annars: »Stofnsjóðseign hversfélagsmanns er skylt að greiða: a. Við andlát hans. b. Við brottflutning af félagssvæði. c. Við brottrekstur úr félaginu. d. Verði hann fátækrastyrksþurfi«. í 19. gr. ,í lögum Kaupfélags Ey- firðinga stendur meðal annars: »Stof nsjóðseign hvers félagsmanns er skylt að greiða: a. Við dauðsfall hans eða brott- rekstur úr félaginu. b. Flytji hann svo langt burtu, að hann sýnilega getur ekki haft viðskifti við félagið áfram. c. Verði hann fátækrastyrksþurfi. d. Ef hann héfir skift við félagið samfleytt 15 ár og óskar þá út- borgunar. Síðan hefir hann jafnan rétt til að krefjast útborg- unar á 15 ára fresti. Pað fé, sem ekki er hafið úr sjóðnum \við lok hvers 15 ára tímabils, verður ekki hafið fyr en að loknu næsta tímabili«. Með samanburði á þessum laga- greinum er það auðsætt, að Kaup- félag Eyfirðinga verður að breyta d.-lið 19. gr. í sínum lögum til þess að komast undir verndarvæng sam- vinnulaganna hvað útborgun úr stofnsjóði viðvíkur. Sú breyting getur ekki orðið fyrri en á næsta aðalfundi Kaupfélagsins, og þá því að eins, að meiri hluti félagsmanna samþykki breytinguna. Fróðlegt verður að vita um stefnufestu og trygð kaupfélagsmanna við lög þess og samþyktir. Kaupfélag Eyfirðinga hefir verið álitin fyrirmynd annara kaupfélaga og menn verið ámintir um, að taka það til fyrirmyndar við stofnun ann- ara kaupfélaga á landinu. Að dómi leiðtoganna hefir það dafnað vel undir lögum þess og starfsháttum; en nú er ráðlagt að breyta til, Ef meiri hlutinn samþykkir breyt- inguna, sem vitanlega verður ekki nema fyrir fortölur leiðtoganna, þá lítur út fyrir, að stofnsjóðurinn verði kyrsettur, sá er útborgast átti í fyrra. Hvers virði er þá atkvæðisréttur þess meiri hluta, sem í fyrra sam- þykti, að stofnsjóðurinn skyldi út- borgast eins og lög mæltu fyrir? Og hvað verður um stofnsjóðseign væntanlegs minni hluta, ef meiri hlutinn felst á, að samrýma lög kaupfélagsins við samvinnulögin? Á þá að halda honum gegn vilja einstaklinganna og kúga þá undir samvinnulögin? Slíkt getur tæpast talist vottur um eftirbreytnisverða samúð eða bróðurkærleika. Ef meiri hlutinn verður félagi sínu og löguni þess trúr og lætur d.-lið 19. gr. standa óbreyttan, verð- ur ekki séð, að Kaupfélag Eyfirð- inga komist undir verndarvæng sam- vinnulaganna, og er það sennilega besta leiðin fyrir félagið, en þá hafa forkólfar sanivinnulaganna unnið $ óþarfa verkið tii lítillar ánægju fyrir sjálfa sig. Annars er þetta atriði laganna svo úr garði gert, að forkólfarnir hafa marga vegi til þess að fara eftir, ef svo býður við að horfa, sem alt of langt yrði að telja hjer upp eða minnast á. Flutningsmennirnir hafa varast að fara út á þá braut að skýra, hvernig þeir hafa hugsað sér að gömlu félögin breyti lögum sín- um og samþyktum þannig, að þau geti komist undir samvinnulögin, og er það auðskilið þeim, sem hefir dálitla hugmynd um, hvernig alt er í p.ottinn búið. Þetta er ofurlítið sýnishorn af, hvað samvinnulögin eru óskýr og villandi og að þau má teygja eins og hrátt sinn. oo /, U 11 a r m a t. í 25. blaði Tímans þ. á. er ritgerð um ullarmatið eftir hinn alþekta ágæt- ismann Stefán Stefánsson frá Varðgjá, sem er ullarmatsmaður hér Norðan- lands. Greinin er skemtilega skrifuð — eins og reyndar alt eftir þenna mann — en ýmsar ályktanir hans og staðhæf ingar, tel eg svo vafasamar, að eg vil gera nokkra athugasemd við grein- ina, án þéss þó eg vilji á nokkurn hátt sýna höfundinum persónulega óvild, að hnekkja áliti hans sem ullar- matsmanni. í inngangi greinarinnar er stutt en glögg yfirlitsskýrsla, er sýnir — með- al annars — ullarútflutning úr hverri sýslu á ullarmatssvæði greinarhöf. yfir J arðarför konunar minnar, Margrétar Sig- urfónsdóttur, er andaðist 5. þ. m., er ákveðið að fari fram frá heimili okkar þriðjudaginn þ. 16. þ. m. kl. 1 e. h. ' Kransar afbeðnir. Akureyri 10. ágúst 1921. Lárus /. Rist. þann tíma, sem hann hefir verið við starfið, og sömuleiðis sýnir hún hlut- fallið á milli nr. 1 og 2 á sama svæði og tíma. — Bað sem opinberast hjer, er því hvorki meira né minna, en það, að Suður-Ringeyjingar eru langt á undan öllum Öðrum, muð að verka ull sina og gera hana að 1. fl. vöru, því meðaltalið af 4 árum, sýnir að 83'73°/o af ull þeirra er nr. 1. Svo erum við Norður-Ringeyingar næstir, þá Eyfirðingar og Skagfirðingar en Húnvetningar lægstir með 47°/o. Nú vill ullarmatsmaðurinn leitast við að gera sér greip fyrir hverjar orsakir liggi til þessa msismunar, enda er hann svo mikill, að full ástæða virðist vera til þess, að rannsaka vandlega þetta mál. — En því miður hefir hinum ágæta ullarmatsmanni mistekist það að mestu eða öilu leyti í umræddri grein. Ullarmatsmaðurinn kveðst hafa átt tal við ýmsa um þetta mál, sam hafi haldið því fram, að hinn mikli mis- munur á ullargæðunum í sýslunum, sé aðallega til kominn af tveimur á- stæðum: 1. að matsmennirnir séu vandlát- ari í einni sýslu en annari. — 2. að staðhættir og náttúruskilyrði séu mjög misjöfn. En þetta vill ullarmatsmaðurinn ekki viðurkenna, en vill skella allri sökinni á bændurna, eða þá sem verka ullina. Á það víst að vera nokkurskonar við- urkenningj fyrir þá viðleitni, — sem fjölda margir bændur hafa sýnt undan- farin ár — að vanda vel verkun á ull sinní. Nei, ástæðan fyrir hinum mikla mis- mun á gæðum ullarinnar, er að mestu leyti afleiðingin al því að inatsmenn- irnir eru misjafnir í kröfum sínum, og staðhættir 'og náttúruskilýrði. eru ólík í þingeyjarsýslum og Vestursýsl- nm, enda þótt hinn ágæti ullarmáts- maður staðhæfi að svo sé ekki. Ullarmatsmaðurinn getur þess og það réttilega — að margt er það sem hefir áhrif á ullargæðin, og það hversu auðvelt er að verka hana. Nefnir hann

x

Íslendingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.