Íslendingur


Íslendingur - 03.03.1922, Síða 2

Íslendingur - 03.03.1922, Síða 2
36 ISLENDINOUR 10. tbl. Menn verða að spara sem mest á þessum tímum. En að neita sér um góða, ódýra bók í góðu bandi er enginn sparnaður. Hún eyðist ekki við lestur og margir geta haft sama gagn af henni. »VILLIBLÓMIЫ er ágæt og fróðleg saga, sem ungir og gamlir hafa gleði og gagn af að lesa. Fæst hjá bóksölum í bandi á kr. 1,50. >íslendingur< kemur út á hverjum föstudegi og aukablöð þegar ástæða er til. Argangurinn kostar sex krónur. Ojalddagi fyrir 1. júlí ár hvert. Uppsögn skrifleg, bundin við áramót, sé komin til afgreiðslu- manns fyrir 1. október. Auglýsingar og innheimtu annast rit- stjórinn. Skrifstofutími kl. 10—12 og 5—7. Afgreiðslumaður blaðsins er Hallgrímur Valdemarsson Hafnarstræti 84. »Fundurinn er mótfallinn því, að lengra sé gengið, en orðið er, í þá átt, að ríkið taki að sér einkasölu á aðfluttum vörum, og skorar á Al- þingi það, ér nú situr, að samþykkja engin ný einkasölulög.* og var hún samþykt með 240 atkv. gegn 63. Erlingur Friðjónsson bar fram þessa tillðgu: »Fundurinn skorar á Alþingi að hlutast til um, að ríkið taki að sér einkasölu á steinolíu svo fljótt sem kostur er á « en hún varfeld með 240 atkv. gegn 61. 2. Spánarsamningur. Frummælandi Jónas Jónasson cand. phil., bar fram þannig orðaða tillögu: »Fundurinn telur Iffsnauðsyn fyrir landið að sem hagkvæmastir samn- ingar takist við Spánverja, og telur rétt að vinna það til, að slaka eitt hvað til á bannlögunum, ef ekk- verður hjá því komist.< Kristján Karlsson barfram svohljóð- andi tillögu: »Fundurinn telur nauðsyn fyrir fyrir landið, að sem hagkvæmastir samningar takist við Spánverja, en litur þó svo á, að ekki geti komið til mál neinar breytingar á grund- vallaratriðum bannlaganna, nema þær séu bornar undir atkvæð þjóðarinn- sr til úrskutðar.« Ásgeir Pétursson kom með þannig orðaða tillögu. »Fundurinn skorar á þing og stjórn að gæta hagsmuna landsins í samn- ingum við Spánverja um saltfisk- markaðinn þannig að full trygging sé fyrir, að Iandið njóti hinna sömu sérréttinda sem undanfarið.« Tillaga Jónasar Jónassonar var feld með miklum atkvæðamun, en tillaga Kristjáns Karlssonar samþykt með mikl- um atkvæðamun. Tillaga Ásgeirs Péturssonar var ekki borin upp til atkvæða. 3. Frœðslumál. Sigurður skólameistari Guðmunds- son bar fram svohljóðandi tillögu: »Fundurinn skorar á Alþingi að fella hverja þá tillögu, er miðar að því að losa sambandið milli Gagnfræða- skólans á Akureyri og Mentaskólans í Reykjavík, meðan Mentaskóli er ekki settur á stofn á Norðurlandi,* og var hún samþykt í einu hljóði. , Karl Nikullásson bar upp þessa til- lögu: »Fundurinn skorar á Alþingi að sameina Verzlunarskólann og Sam- vinnuskólann í Reykjavík, og veita svo ríflegan styrk, sem fjárhagur rííkisins frckast lcyfir til citis góðs verzlunar- skóla í Reykjavik. Pessi tiilaga var samþykt með tnikl- um meiri hluta atkv. 4. Tollmál. Pessi tillega ftá Ásgeir Pétuiesyni: »Fundurínn skorar á þing og stjórn að lækka útflutningsgjald af síld inn- lendra manna niður í 50 aura af tunnu, einnig að afnema auka inn- flutningsgjald af kolum og salti. var samþykt með öllum atkvæðum. 5. Landsverzlun. Einar Reynis bar fram þessa tillögu: »í samræmi við meðferð síðasta Alþingis í máli þessu, skorar fundur- inn á Alþingi það, er nú er háð, að leggja Landaverzlun niður og gjöra ráðstafanir til þess, að vörubirgðum hennar vérði sem fyrst komið f verð, og útistandandi skuldir innheimtar.« Samþykt með öllum atkv. gegn 1 (Gísla Magnússonarý. Pess skal getið, að þá er 3. mál á dagsskránni var lokið fór mikill meiri hlut fundarmanna af fundi, enda var klukkan langtgengin tvö, Fundargjörðin upplesin og samþykt með öllum atkvæðum. Fundarstjóri fyrri fundarins var Jón Sveinsson bæjarstjóri og skrif- arar Jón Guðlaugsson og Guðm. Pétursson. Fundarstjóri síðari fund- arins, Ragnar Ólafsson konsúll, skrif- arar Karl Nikulásson og Lárus J. Rist. Lauk fyrri fundinum um mið- nætti en hinum tveim stundum síðar. Verkamaðurinn er illur út af iniða þeim, sem boðendur fyrri fundar- ins létu útbýta um bæinn og til- kyntu frestun hans til mánudags, kallar blaðið það hrekkjabragð kaup- manna til að aftra mönnum frá að sækja fimtudagsfundinn, sem ekki hafi verið af þeirra (kaupnianna) sauðahúsi. Vitanlega er þetta hin mesta fjarstæða. Kaupmenn voru ekki boðendur fundarins og höfðu ekkert með hann að gera, og naum- ast er hægt að kalla handverksmenn bæjarins undirtyllur þeirra, en það voru einmitt menn úr þeirri stétt, sem boðuðu til fundarins sem frest- að var og ákváðu frestunartímann, voru þeir þar í sínum fulla rétti. Og hvað því viðvíkur, að legið hafi á að halda fundinn áður póstar fóru suður, svo hægt væri að senda sam- þyktirnar til Alþingis, eins og Verka- maðurinn segir, þá sýnist það skrít- ið, að fundargjörð fimtudagsfundar- ins sem einmitt var haldin að til- hlutan manna, sem nákomnir eru Verkamanninum og Degi, var ekki send suður, hvorki með Fálkanum eða sunnanpósti. Skyldi það hafa verið því valdandi, að fundurinn gekk í aðra átt en þetta sambands- lið hafði ætlast til? Alleinkennileg er einnig sú staðhæfing Verkam. að hávaðinn af kjósendum fimtu- dagsfundarins hafi ekki greitt at- kvæði sökum þess að frestunarmið- inn hafi hleypt illu blóði í menn. Venjulegast mundi hið gagnstæða eiga sér stað undir svipuðum kring- umstæðum. Pá er skríltal Verkam. nokkuð broslegt, því sé með því höggvið nærri nokkrum, þá er það einmitt hans nánustu, og kurteis framkoma á opinberum fundum hefir aldrei verið sá eiginleiki er áberandi hefir verið hjá helsta foringjanum. En um það erum vér Verkam. sam- mála, að ólæti á fundum, sem hindra ræður — eiga ekki að líðast. Símfréitir frá útlöndum. Rvlk i gœr. Fulllrúi brezku sijórnarinnar i Kairo á Egyftalandi hefir tilkynt, að vernd Breta yfir Egyftalandi sé upphafin og landið sé héðan í frá fullveðja ríki. Hverskonar stjórnarfyrirkomulag Egyftar œtla sér, cr enn þá óvist. Búist við þeir setji yfir sig soldán, likt og Tyrkir hafa. Stjórnarskifti hafa orðið á Italíu. Heitirsá Facta, sem myndað hefir stjörn og er áhangandi Gioletti, er stjórnar- formaður var slðustu striðsárin. Pólland hefir gengið i litla-þrivelda- sambandið og kallast það nú fjör- veldasambandið. María prinzessa, döitir Bretakon- ungs, giftist t gœr Lacasse greifa, og var þá óvenju mikið um dýrðir i Lundúnum. Hjónavígslan fór fram i Wesiminster-kirkjunni og gaf biskup- inn af Canterbury brúðhjónin saman. Fýzkt-spanskt flugfélag er myndað, sem hefir það markmið, að koma á föstum fólksflutningaferðum með loft- förum milli Spánar og Ameriku. Ferð- irnar eiga að byrja að ári og á þá fyrsta loftfarið að vera tilbúið. Á það að taka 100 farþega og ffytja póst að auki. Samkomulag milli Poincare og Lloyd George um, að slaka ekki til á Ver- sala-samningunum á Genúa-fundinum. Rússar koma á fundinn skilyrðislaust, þrátt jyrir mótmœli Bandarikja- stjórnar. Frakkar, Bretar og Italir halda fund i Paris 8. þ. m. til þess að ræða um skaðabötakröfur ogviðreisnarmálin. 03 Innlendar símfregnir. Rvik i gœr. Fyrsta tillaga sparnaðarnefndar neðri deildar er, að afnema allan styrk tit alþýðufrœðslu (barnaskóla, unglingaskóla o, s. jrv.). *Gullfoss* fór frá Friðrikshöfn á- leiðis til Islands 25. febr. ilsland* liggur enn þá i Kaup- mannahöfn vegna verkbannsins, en búist við, að samningar takist nœstu daga. ' 'Goðafoss* liggur i Friðrikshöfn. PJANO til sölu. R. v. á. Hertur Steinbítur — ódýr — iæst í Tuliniusarverzlun. Einar Árnason, Eyrarlandi, form. Kaupfél. Eyfirðinga. I. (Framh.) Þá fárast formaður félagsins yfir því að eg hafi sagt að félagið hafi fengið timburfarm í sumar. Petta lýsir E. Á. ósatt, og segir að félagið hafi ei fengið timbur í meir en hálft ann- að ár, og bætir svo við að tap á þessu timbri sé bull. Flestum, ef ekki öllum, félagsmönn- um er kunnugt um það, að Kaupfél. Eyf. tók á móti stórum timburfarmi á síðastliðnu sumri, og átti þó mikið fyrir af timbri. Timburfarm þennan var sagt að Samband íslenskra sam- vinnufélaga ætti, það hefði átt þennan forða frá árinu áður. Látum svo vera að þetta væri rétt, þá virðist það eng- inn gróðavegur að taka við miklum birgðum af trjávið til sölu fyrir S. í. S. þar eð nægur trjáviður var fyrir, og þar sem búast má við miklu tapi á þessum farmi, þar eð trjáviður er seld- ur nú með niðursettu verði, og von á honum ódýrum með vorinu, þá er gef- inn hlutur að sambandið tapar miklu fé á þessutn farmi. Pað sem er tap á sam- bandinu verður tap á þeim félögum, sem í því eru, þrált fyrir það þó E. Á. hrópi að þatta sé ósatt. Einar Árnason hefir fyr en nú hróp- að til mín að eg færi ekki með rétt mál. Eg ætla að minna menn á það sem hann sagði á fundi á Grund 1916. Þegar hann kom heim af þingi, og fór að skýra fyrir mönnum þingsálykt- unartillögu sem samþykt var á þing- inu um dýrtíðaruppbót embættismanna. Hann bar þar á móti því að eg skyldi tillöguna rétt, og hrópaði til mín að það væri ösatt að skilningur minn á henni væri réttur. En hvernig fór: Reynslan sker úr að eg fór með rétt mál en hann með rangt, og eins mun verða í þessu máli. Pað eru svo mörg vitni sem geta sannað það, að það sem framkvæmdarstjóri og E. Á. sögðu um skuldir félagsmanna, deildarskipun, vörupöntun og ábyrgð deildarstjóra m. m. er rétt skýrt frá í grein minni, en rangt hjá formanni Kaupfél Eyf. Mér dettur í hug fóstra Porbjörns Önguls sem risti rúnir á trédrumbinn, og þuldi yfir honum galdra sína. Sag- an getur þess að trédrumbur þessi hafi orðið hetjunni Grettir að fjör- tjóni. Er sama sagan að gerast hér? Er formaður félagsins að rista rúnir ósannindanna í 6. tbl. Dags? Er hann með þessum skrifum síuum að eyði- leggi3 Þá litlu tiltrú sem ýmsir félags- menn eru farnir að hafa á Kaupfél. Eyf. undir stjórn formanns félagsins? Er þelta ekki fjörráð við félagið sein trédrumburinn forðum daga við Grettir Ásmundsson? Pessum spurningum ættu kaupfé- lagsmenn að spara, þvf lífsspm'smál cr að þeir sem stjórna jafn þýðingai''

x

Íslendingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.