Íslendingur


Íslendingur - 03.03.1922, Blaðsíða 3

Íslendingur - 03.03.1922, Blaðsíða 3
10. tbl. ÍSLENDINOUR 37 Verzlunin „ B r a 11 a h I í ð “ gefur 25--50°|0 afslátt til 15. þessa mánaðar af skótaui, ýmsum sortum og mörgu fl. Notið Tækifærið! 2. Marz 1920. Brynjólfur E. Stefánsson. Sjómenn! gera bezt kaup í verzlun jóns E. Bergsveinssonar á Veiðarfærum, Sjófötum, Gúmmíbússum og öðru, sem þar fæst til útgerðar. Verzlunin „Brattahlíð“ er vel birg af flestum matvörum svo sem: kaffi, export, sykur, hveiti, haframjöl, hrísgrjón, sagó- grjón, hálfbaunir, rúgmjöl, skonrok, kex, mysuost, sveskjur, mjólk, magarine o. fl. Sanngjarnt verð. Brynjólfur E. Stefánsson. Frá 5. þ. m. tekur undirritaður að sér allskonar skuldainnheimtu, jafnt í smærri sem stærri stíl. Ennfremur málafærslu, sanmingsgerðir o. fl. þ. h., alt gegn mjög sanngjörnum ómakslaunum, daglega að hitta kl. 2—3 í nr. 3 í Brekkugötu og auk þess flesta aðra tíma dagsins á skrifstofu Asgeirs Pétursson í nr. 100 í Hafnarstræti. Sveinn Bjarnason. miklum málum héraðsins sem kaup- fébgsskapurinn er fyrir þorra manna, að það séu þeir menn sem stjóriia fél.igsskapnum er skýra rétt frá málum en villa eigi mönnum sýn með orð- mælgi sem ekki hafa við nein rök að styðjast. II. Áður en eg geng lengra að hrekja ósMinindi formanns Kaupfél. Eyf., ætla eg að minnast á niðurlagsorð grein- ar;miar, þar sem hann fer að brýna nvg á því, að félagsstjórn kaupfélags- ins hafi gert mér smán með því, að víkja mér brott úr kaupfélaginu. Eg vil nú spyrja hina heiðruðu stjórn: Fyrir hvað var mér vikið brott? Eftir sögusögn þriggja úr stjórn kaupfélags- ins við mig sjálfan, gáfu þeir upp, að það væri fyrir fréttabréf, sem eg skiifaði í Morgunblaðið á síðastl. vetri, og sem eg lét svo endurprenta í ís- lending, svo félagsmönnum gæfist kostur á að sjá, hvaða goðgá eg hafi átt að fremja á hendur kaupfélagsins með því bréfi. í bréfinu er ekkert annað en það, sem satt er, um Kaup- fél. Eyf. og stjórn þess, en annað mál er, að þeir herrar þoldu eigi að heyra sanileikann, þoldu eigi þá »krítik«, sem í bréfinu stóð. Engu einasta at- riði í bréfinu hafa þeir hnekt og hefði þó málgagn þeirra, Dagur, ekki lát'ð það ógert, ef hann hefði treyst séi til þess. Bréfið stendur í íslend- ing og ber eg fulla ábyrgð á hverju orði, sem í því stendur, fyrir hverjum helzt dómstóli, sem kaupfélagsforkólf- arnir vildu stefna mér fyrir. En á hverjum lendir þá smánin, að víkja mér úr félaginu? Ekki á mér, heldur þeim, seni valdir voru að brottrekstrinum. Jafnframt þessu er formaður félagsins að brýna mig á því, að eg hafi ei leitað réttar míns á íéttum vettvangi. Hver er hinn rétti vetlvangur? Eru það ekki dómstól- arnir? Veit formaður félagsihs nokk- uð um það, hvort eg hlífi stjórn Kaupfél. Eyf. við málsókn? Eggeymi rétt minn, og hvott eg nota hann eða ekki, er E. Á. aigi fær að dæma um, eins og hann mun ekki hafa neitt dómsvald í því máli. Alt raus hans um þelta er því ekkert annað en heimskubull. Það mun vera viðurkend regla gætnra og góðra stjórnenda, sem geta nofað sér lög þau, sem þeir eru settir yfir að framfylgt sé, hvort það eru landslög eða lög ýmsra félaga, að vera sjálfir vandir að því, að fram- fylgja lögunum stranglega við sjálfa sig, áður en þeir fara að ráðast á aðra, sem undir þá eru gefnir og eru lögunum háðir. Vandlæting við aðra á illa við á þeim sviðum, þar sem stjórnendurnir sjálfir eru berir að brot- um við lög þau, sem bæði þeir og aðrir eiga að framfylgja. Nu er svo með lög Kaupfél. Eyf., að énginn hefir brotið þau jafn átakanlega sem framkvæmdarstjóri félagsins og stjórn þess. Retta er nú þung ákæra, en þó skal eg færa orðutn mínum stað, úr því formaður féiagsins fór að hælast yfir, að stjórn kaupfélagsins vék mér brott úr félagitiu. Eg ætla cigi að fara út í öll lagabrot stjórnarinnar að þessu sinní, en að eins að biHa fyrír félagsmönnum 22. gr. félagslaganna, sem hljóðar svo: »Framkvæmdarstjóri skal vinna að því eftir megni, að kaup og sala á vörum félagsins fari fram gegn borgun út í hönd. Þó hefir hann heimild til að lána áreiðanlegum viðskiftamönnum milli kauptíða, en heimtað getur hann hverja þá trygg- ingu, er hann telur bezt við eiga, fyrir því, að lántakandi standi í full- um skilum, og útistandrndi skuldir félagsins að fullu greiddar 31. des- ember ár hvert.« Svo mörg eru þessi orð lagabók- stafsins. Nú geta kaupfélagsmenn séð, hvernig framkvæmdarstjóri hefir fram- fylgt þessari lagagrein, og hvort for- maður félagsins ásamt stjórninni hefir látið þelta gott heita, eða finst stjórn- inni með formann í broddi fylkingar að framkvæmdarstjórinn »hafi eftir megni reynt, að kaup og sala á vör- um félagsins fari fram gegn borgun út í hönd«? Finst stjórninni, að fram- kvæmdarstjórinn hafi einungis lánað áreiðanlegum viðskiftamönnum milli kauptíða? Og finst henni síðast og ekki sízt, að lántakendur standi í full- um skilum og útistandandi skuldir fé- lagsins séu að fullu greiddar 31. des- ember ár hvert? Þessum spurningum ætti formaður félagsins og stjórnin að svara króka- laust. Félagsmenn geta sjálfir dæmt um, hvernig þessari lagagrein hefir verið framfylgt í félaginu, og eg hygg, að það særi hvern einasta félagsmann, að framkvæmdarstjórinn ásamt for- tnanni félagsins hafi ei gengið betur að framfylgja lögunum en raun hefir gefið vitni, og þeir hafa ekki reynst neinir »afburðamenn« á sviði kaupfé- lagsstjórnarinnar og lög félagsins hafa orðið þeim ofurefli. (Framh.). E. S. co í gær andaðist að heimili sínu, Mjóadal í Húnavatnssýslu, bænda- frömuðurinn Ouðmundur Eriends- son lireppstjóri, faðir Sigurðar skóla- meistara — um sjötugt. oo Úr heimahögum. Simasamband milli Akureyrar og Heykja- víkur hefir ekki náðst í morgun. Síniinn sagður bilaður um Hvalfjörð. Jón E. Bcrgsveinsson yfirsíldarmats- maður hefir verið kosinn formaður Fiski- félags íslands, og mun flytja búferlum héðan í vor og setjast að í Reykjavik. Er bænum að honum hin niesta eftirsjá. Mannalát. Þann 20. febr. andaðist að þórustoðum í Kaupangssveiti Páll Jónsson fyrv. bóndi að Litlu-Tjörnum í Ljósavatns- skarði, bróðir Halldórs heitins banka- gjaldkera og þeirra sistkyna. — Látinn er 20 ícbr. að Halldórsstöðum í Lagsárdal, bóndinn þórarinn Jónsson 56 ára gatnall. Jarðarför Páls Jónssonar frá þórustöð- um fer fram þaðan n. k. fimtudag kl. 12 á hádegi. Bar/iaveikin á einum bæ í Saurbæjar- hrepp, Oilsí' Leikhúsið. Leikfélag Akureyrar sýndi 3 smáleiki í satnkomuhúsi bæjarins s.l. sunnu- dagskvöld, hétu leikirnir »Bónorð Sem- ings,« íslenzkur leikur cftir Pál Stein- grímsson, »KvöIdið fyrir kóngsbænadag, og »Litli hermaðurinn,« báðir eftir danska höfunda. Fyrsttaldi leikurinn var lang veigamestur og yfirleitt bezt leikinn. Er efni hans tek- ið úr skuggahverfi hins íslenzka þjóðlífis, og sýnir drykkfelda kerlingu, dóttir hennar Iausláta, og einfaldann en bálskotinn ung- lingspilt sem fengið hefir ást á dóttirinni, þrátt fyrir það að hún er 12 árum eldri en hann og er á hversmanns vörum fyrir lausung sína. Myndir þessar eru allar skýrt dregnar af höf. og leikendunum tekst ágætlega að færa þær í liina réttu búninga, sérstaklega var kerlingin, frú Ouðrún Indriðadóttir, og dóttirin, frú Þóra Hallgrímsdóttir vel leiknar. Sem- ingur var mikið laglega leikinn af Jón Norðfjörð. »Köldið fyrir kóngsbænadag* er leikur setn lítið er i varið, þó sýndi Haráldur Björnsson þar spaugilega kcrlingu. Eins er »LitIi hermaðurinn fremur léttvægur leikur en laglegur, og mun lengi minst sökum aðdáanlegs leiks frú Quðrúnar á aðal hlutverkinu. Skjaldarglíma fór fratn hér í Samkomu- húsinu þriðjudagskvöldið og varð skjald- arhafi undanfarinna 2 ára Garðar Jónsson hlutskarpasiur að nýju og vann skjöldinn til eignar. Oullpeninginn vann Oskar Antonsson og siliurpening yngstaj fl. Ouðm. Ásgrímsson i annað sinn. Fegurðar- glímuvsiðlaunin hlaut Konráð Jóhannsson. Góð skerntun. Chr. Möller hefir nú sungið gamanvísur sinar tvívegis fyrir troðfullu húsi í bæði skifíiti. Syngur aftur í kvöld. Þykir góð skemtun. Misprentanir í skýrslu Hlífar í siðasta blaði, hjúrunar fyrir hjúkrunar, bóndi i Ameríku fyrir landi í Ameríku og Man- úsd. fyrir Magnúsd. Nýkomið Tuliniusarverzlun Vindlar margar teg. Cigarettur Brjóstsykur. Sultutau og mikið af ýmiskonar niðursoðnum mat. Ennfrentur: Hálslín — brjóst, kragar Bindislyfsi, margar teg. Skótau og skóhlífar o. fl. Nýtt nautakjöt — verð 1,40—1,50 kg. — fæst í dag og á morgun í Verzlun Sn. Jónssonar.

x

Íslendingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.