Íslendingur - 14.07.1922, Page 2
112
ÍSLENDINOUR
29. tbl.
Höggvinn sykur
Strausykur
Kandíssykur
Hveiti
kemur með »Lagarfoss«.
Nathan & Olsen.
takast megi enn betur að hagnýta sér
jarðeldana.
3 gjósandi eldfjöll eru þar í landi,
Etna, Vesúvíus og Stromboli. 011
þessi eldfjöll gjósa vanalega samtímis.
Margt bendir á, að eldar þeirra stafi
frá sömu rótum. í hvert sinn sem
eitl gýs færast einnig hin í aukana.
Etna og Vesúv us gjósa að vísu að
eins með löngum millibilum. Nafn-
frægasta eldgos úr Vesúvíus var árið
79 e. Kr. í margar aldir þar á undan
hafði Vesúvíus aldrei gosið og var á-
litinn kóltfaður, í eitt skifti hafði her
Gladiatoranna nndir forustu Spartakusar
notað gíginn fyrir vígi, en við eld-
gosið 79 grófust borgirnar Herculon-
eum og Pompej í ösku.
Stromboli er sígjósandi. í nánd
við hann eru eyjarnar í kring alsettar
smágfgjum, leirhverum og vatnshver-
um. Að sjálfsögðu mætti hér með
borum hagnýta mikla orku.
Merkur amerískur jarðfræðingur,
Henry Washington, hefir látið þá skoð-
un í Ijós, að auðgerr mundi, ef fé
væri fyrir hendi, að bora til eldstöðva
í nánd við hin og þessi eldfjöll, og
hefir hann sérstaklega bent á eldfjall-
ið Kilauca á Sandvíkureyjunum og
ýms sígjósandi eldfjöll í Suður-Ame-
ríku.
Auðmaður einn í Kalíforníu hefir
þegar farið að ráðum hans, og er nú
að láta bora niður í jörðina á hvera-
svæði einu í Kalífornfu f því skyni að
fá nægilega gufu til að framleiða raf-
magn fyrir sveitina í kring.
Til skamms tlma hefir þótt ókostur
hverju landi, að mikið væri um jarð-
elda, Eftir þvf að dæma, sem hér er
ritað, virðist þetta síður en svo.
Við íslendingar megum fara að hafa
andvara á okkur, og ættum hið skjót-
asta að senda njósnarmenn til ítala
til að kynnast þeirra fjölkyngi.
Hver veit nema að komi að því, að
jafnvel jarðskjáiftar verði taldir með
hlunnindum?
Sigr. Matth.
OO
Símfréitir frá útlöndum.
Rvlk i gcer.
Morð Rathenau’s œtlar að hafa
alvarlegar afleiðingar fyrir Pýzkaland.
Hafa upphlaup og manndráp verið
daglegir viðburðir siðan og óhug
miklum slegið á almenning. Hafa
þœr fregnir flogið sem eldur i sinit,
að morðvargaklikan œtli einnig að
láta myrða þá Wirth kanzlara og
Scheidemann og ýmsa fleiri af leið-
togum núverandi stjórnarfyrirkomu-
lags. Er keisarasinnum borið á brýn,
að þeir-séu valdir að morðunum, og
eru þeir hershöfðingjarnir Hindenburg
og Ludendorf ásakaðir um, að vera
með i ráðum. Markið hefir fallið
stöðugt vegna óaldarinnar og er nú
115 mörk í krönu.
Stjórnarherinn írski hefir gersigrað
uppreistarmennina i Dublin og hand-
samað leiðtogana, nema De Valera,
sem tökst að flýja til Suður-Irlands.
Æsir hann menn þar . til uppreistar
og heldur borgarasiyrjöldinni áfram.
Bráðabirgðarstjórnin biður um sjálf-
boða til að bœla uppreistina niður.
Tjónið af uppreistinni i Dublin nemur
60 miljónum króna.
Norðmenn hafa ekki getað fengið
framltnging á samningunum við Spán-
verja og verða þvi að sæta hámarks-
tolli frá 15. þ, m.
Hœstirétiur Rússa hefir dœmt 11
af æðstu prelátum rússnesku kirkj-
unnar til dauða og 53 iil margra ára
fangelsis, fyrir að neita að gefa upp
eignir kirkjunnar i hendur stjórnar-
innar, svo sem hún hafði krafist.
Hungursneyð á Krim. 90°lo ibú-
anna svelta.
Lloyd George fer þess á leit, að
Versala-samningarnir séa endurskoð-
aðir, og að allar þær þjóðir, sem
þar eiga hlut að máli, komi að nýju
saman.
Grafir rússnesku keisaranna hafa
verið opnaðar til að leita dýrgripa í
þeim.
Lenin farinn til Kaukasus sér til
heilsubótar. Ekki búist við, að hann
taki við stjórn að nýju.
00
Innlendar símfregnir.
Rvik í gœr.
Sig. Eggerz forsœtisráðherra kom-
inn heim. Öll lög síðasta Alþingis
staðfest af konungi.
Grasspretta sunnanlands mjög rýr.
Nokkrir togarar að búa sig norð-
ur á sildveiði.
oo
„Yfirlýsinng"
raforkunefndarinnar.
Grein mín í 26. tbl, íslendings með
yfirskriftinni »Fyrirspurn til bæjarstjórn-
arinnar® hefir borið þann árangur,
sem eg ætlaðist til, og geta húseig-
endur nú vonandi fljótlega, — sam-
kvæmt loforði raforkunefndar í síðasta
blaði, — fengið að sjá þá samninga,
sem bæjarstjórnin gerði í vetur iira
innlagningu raftauga í hús bæjarins.
— Petta er nú gott og blessað og um
það ekki meira að segja að sinni.
Að öðru leiti er »yfirlýsing« raforku-
nefndar mjög »þunn«, en þar sem
höfundur þessarar virðulegu *yfilýsing-
ar« gerist svo rausnarlegur, að riðja úr
sér nokkrum hryssings-ónotum til mín,
þá finn eg ástæðu til að athuga mála-
vöxtu dálítið frekar.
í fyrstu grein yfirlýsingarinnar stend-
ur m. a. * Og verður í þessu sambandi
hrakinn „ósannindaþvæltingur“, sem
Jón S. Espholin reit i 26. tbl«.*) o.
s. frv. -- Orðið »ósannindaþvœttinguro.
er ódýr vara og klunnalegt sóðaorð,
sem fæst fyrir ekkert hjá sumum mönn-
um, sérstaklega þegar þeir hafa vond-
an málstað að verja og skortir rök,
enda get eg ekki séð, að raforkunefnd-
in hafi getað eða muni geta hrakið
svo mikið sem eitt einasta atriði af
því, sem eg sagði í grein minni. En
þá verða þessi stóru orð hennar dá-
lítið hlægileg »vindhögg« eða máske
betra: »fúlegg«.
Pá er útboðið á verkinu. Eins og
eg hefi sagt áður, þá hefir hvorki
innlagning né annað af verki eða efni
til rafstöðvarinnar verið boðið út op-
inberlega eða á þann hátt, sem bæjar-
stjórninni bar siðferðisleg skylda til.
— Ef bæjarfulltrúarnir í alvöru vilja
telja sjálfum sér og öðrum trú um að
kák hennar í þessu efni hafi verið
nokkuð í þá átt að geta kallast opin-
bert útboð eða »Licitation«, þá eru
þessir menn í meira lagi fáfróðir um
syo einfalda hluti og hafa sjáanlega
enga huginynd uni það, hvernig heið-
arlegt opinbert útboð þarf að vera.
Annars leyfir pfássið mér ekki að fara
frekar út í þetta atriði nú, en eg býst
við að fá tækifæri til þess fljótlega í
sérstakri grein.
Pá eru samningar bæjarstjórnarinnar
við innlagningamennina. — Eg hefi
komið samtals eitthvað átta sinnum á
á skrifstofu bæjarstjóra, bæði um það
leyti, sem eg skrifaði fyrri grein mína
og svo nú eftir að yfirlýsing raforku-
nefndar kom í blaðinu síðast, en aldrei
hefi eg getað fengið nokkurn skapað-
an hlut að vita um þetta mál þar.
Pað er annars einkennilegt með þessa
skrifstofu og bæjarstjórann, hann er
svo að segja aldrei þar sjálfur og eng-
inn veit þar neitt. Hvað gerir maðurinn
og fyrir hvað fær hann um 7500 kr.
árslaun af fé bæjarbúa? Væri ekki
óhætt að hafa launin dálítið hóflegri.
Eða þarf hann svo há laun fyrir ekk-
ert? — Sá partur af yfirlýsingu raf-
orkunefndarinnar, sem hún ætlast til
að sé einskonar skýring á aðalefni samn-
inganna, staðfestir fyrst og fremst alt
það, sem eg hafði áður skrifað, en
sem hún samt sem áðurkallar »ósann-
indaþvætting*, en um leið ber þessi
skýring með sér, að nefndin finnur
það sjálf, að hún er að Jjverja vondan
málstað, og gerir það mjög klaufa-
lega, reynir að klóra yfir jjalt saman
með barnalegri »agitation« eins t. d.
með »messingkúpuna« o. fl. í yfirlýs-
ingunni stendur meðal annars: »Raf-
taugarnar kosta frá 14,50 — 19,50 pr.
eitt lampastæði með einföldum slökk-
ara. Er það »vulkaniseruð« leiðsla inn-
lögð í stálrörum«. Nefndin heldurvíst
að hún segi einhver ósköp með því
að nota orðið »vulkaniseruð« leiðsla.
Veit nefndin sjálf hvað meint er með
*) Allar auðkenningar eru gerðar af mér.
þessu? Eg efast um að hún hafi haft
hugmynd um það, það þýðir sem sé
ekki annað en það, að utan um sjálf-
an leiðsluþráðinn sé einangrunarhimna
úr hálfhertu gúmmí. Ef samningarnir
ekki hafa frekari ákvæði um gerð og
efni leiðsluþráðanna, þá gætu þeir alveg
eins verið vulkaníseraður járnþráður!
(Með þtssu meina eða segi eg þó auð-
vitað ekki, að innlagningamennirnir
noti járnþráð.)
Raforkunefndin hvetur í yflrlýsing-
unni húseigendur til þess, að útvega
sér og kynnast þeim innlagningaregl-
um, sem gilda í Reykjavík. Er það
meiningin, að hver og einn eigi að
panta þær frá Reykjavík? eða er þeim
útbýtt á skrifstofu bæjarstjóra hér? —
Annars væri tilhlýðilegast, að Akur-
eyrarbær hefði sjálfur prentaðar reglur
fyrir sig, en sniðnar eftir þeim reyk-
vísku að því ieyti, sem til bóta gæti
orðið.
Raforkunefndin minnist ekki einu
«r#i á greiöstuskilmálaíia og hvCrsvegna
hún hefir flanað að því að veita ein-
okun á innlagningunum. Pessi tvö at-
riði eru þó einhver þau þýðingarmestu
fyrir bæjarbúa, en fyrir báða samn-
ingsaðila munu þetta vera viðkvæm
mál.
Allir heilbrigðir menn munu vera
mér samniála um að frjáls samkepni
í hverju sem er, sé nauðsynleg og til
góðs, en hversvegna hefir þá bæjar-
stjórnin v«it einokun á innlagningun-
um ? Hefir hún trygt sér nokkur þau
veruleg hlunnindi á móti, sem ekki
hefðu fengist án einokunar og með
frjálsri samkepni? Hefir bæjarstjórnin
t. d. trygt húseigendum greiðslufrest
eða afborgunarskilmála, (NB. án óþæg-
inda fyrir bæinn) sem þó eru nauð-
synlegir mörgum ef þeir eiga að geta
ráðist í að taka raftnagn til notkunar?
— Hreint og klárt svar við þessu vilja
víst flestir húseigendur fá sem fyrst.
Ef bæjarstjórnin hefir ekki trygt
húseigendum þessi hlunnindi, sem eru
sjálfsögð og nauðsynleg, þá hefir hún
hlaupið á sig, gert óheppilega samn-
inga og bundið bæjarbúa á einokun-
arklafa algerlega að ástæðulausu og án
þess að hafa haft siðferðislega heim-
ild til þess.
fón S. Espholin.
oo
Úr heimahögum.
Landskjörið á Laugardaginn var illa
sótt um land alt. Munu tæp 40°/o af þeim
er á kjörskrá stóðu, hafa neytt atkvæðis-
réttar síns. Hér á Akureyri kusu 450 eða
tæpur helmingur, og í Reykjavík voru um
3000 atkvæði greidd, sem mun vera ná-
lægt helmingur höfuðstaöarkjósendanna.
Á Siglufirði kaus 7“ hluti, á Séyðisfirði
60°/o og 70°/o í Vestmannaeyjum. Aftur
berast þær fregnir víða úr sveitum að
aðeins hafi kosið 20°/o og jafnvel færra
sumstaðar. Tómlætið mun meira í sveitum
en í bæjunum. Kosningafróðir menn og
athugulir herma úr höfuðstaðnum að A-
og D-listarnir hafi þar fengið álíka mörg
atkvæði frá 1000 til 1200 hver. Hvenær
atkvæðin verða talin og hin endanlegu
úrslit kunn, er ennþá óvíst.
Sumarskemtunin í Vaglaskógi sl. Sunnu-
dag var ágætlega sótt, enda var veður
hið bezta allan daginn. Var þar margt til
sketntana. Ræöur, upplestur, söngur, glímur
og aðrar íþróttir. Skemtu menn sér ág*t'
lega og var glaðværð mikil á ferðúm.