Íslendingur - 01.09.1922, Blaðsíða 3
35- tbl.
ISLENDÍNGUR.
137
artöflm
nvkomnar í eru verzl. Brattahlíð.
brekku, þegar véliu bilaði, svo að vagn-
arnir runnu undan brekkunni, eníþví
koin hin lestin á eflir og rendi aftan
á þá, sem fyrir var.
Myrkur var á, þegar slysið vai ð, og
bitur kuldi. Leið langur tími áður en
hjálparvagnar koinu með lækna og
hjúkrunarvagna, og vr.r unnið að björg-
unarstarfi það sem eftir var nætur og
allan næsta dag. Farþegarnir voru óg-
urlega lemstraðir og þótti sjónarvott-
um ægileg aðkoma að þessu átakan-
lega slysi.
5000 menn fórust
nýlega í fellibyl, sem æddi yfir kín-
verska hafnarbæinn Swatow. Veðrið
hófst að kveldi dags og stóð 7 klukk-
stuudir. Afskapleg rigning fylgdi felli-
bylnum og sjór gekk langt á land upp.
Fjöldi skipa sökk eða laskaðist á höfn-
inni en sum hin minni bárust langt á
land upp með sjáfarflóðinu. Flest hús
f borginni skemdust og inörg hrundu
til grúnna. Símastaurar brotnuðu eins
og eldspýtur og tré sviftust upp með
rótum. I9eir sem fórust, voru nær allir
Kínverjar.
Friðar-hreyfing.
Sunnudaginu 30 júlí voru haldnar
mjög fjölmennar samkomur í öllum
helstu borgum Bretlands, Bandaríkj-
anna, Frakklands og Þýzkalands til
þess að vinna að því, að engar styrj-
aldir verði háðar héðan í frá. Frum-
kvæði að þessum fundarhöldum álti
aljojóða friðarþirig, sem nýlegavar hald-
ið í London. En þessi dagur var val-
inn af því, að þann dag og næstu
viku 1914, komst alt í bál og brand
hér í áifunni. — Fessum friðarsam-
komum var líkt hagað í öllurn borg-
um. Fólk kom saman á einhverjum
tilteknum stað, t. d. torgi eða skemti-
garði, og þar voru hin og þessi fél-
ög tneð fána sína og áletranir svo sem:
»Engar styrjaldir framar!«, eða eitt-
hvað á þá leið. Fjölda margir ræðu-
stólar voru reistir upp og margar ræð-
ur flutlar jafnsnemma, en að gefnu
merki báru allir ræðumenn fram eina
og sömu tillögu, þar sem allir hétu
samvirinu við Bandaríkin og önnur
lönd til þess að afstýra styrjöldum.
Um líkt leyti sem þessu fór fram,
fluttu margir merkir menn á Bretlandi
ræður, seni fóru fram í svipaða átt.
Einna tilkomumest af þessum ræðum,
þótti sú, sem Lloyd George flutti fyrir
kirkjumönnum í London, þar sem hann
kemst m. a. svo að orði:
»Eg mun helga það, sem eftir er af
starfskröftum mínum til þess að koma
í veg fyrir að mannkynið þurfi á ó
komnum tímum að ganga gegnum eld
og ógnir, þjáningar, voða og eymd
styrjaldanna.®
Mr. Ford og Mexico.
Mr. Henry Ford, sem allir kannast
við af bifreiðum hans, er einn mesti
athafnamaður, sem mí er uppi íheim-
inum og svo stórhuga, að liann á fáa
sína líka, Honum er mjög ant um,
að heimurinn bafi sem mest gagn af
starfssemi sinni og er sífelt að ráðast
í ný og ný fyrirtæki. — Nú er sagt,
að hann hafi hug á að verða Mexíkó-
ríki að liði. Far eiu sífeldar innanlands
skærur og uppreisnir, og liata lengi
verið, en Ford er þeirrar skoðunnar,
að þessar deilur verði helzt leiddar til
lykfa með því að »láta starfsmenn
starfa« og láta þá vera svo önnum
kafna við nytsamleg störf, andleg og
líkamleg, að þeir »fái engan tíman til
að berjast«. í því skyni ætlar hann
að setja á stofn bifreiðaverksmiðju í
fylkinu Coahuila og ef fyrirtækið bless-
ast, verða samskonar smiðjur reistar
víðsvegar um landið. þar verða bif-
reiðarnar settar saman, en- einstakir
hlutar þeirra smíðaðir í Delroil og
sendir suður. Ætlar hann að útvega
fjölda manns atvinnu og koma á stofn
skólum handa verkamönnum sínum og
börnum þeirra, svo að hver maður í
þjónustu hans geti komist til nokkurs
þroska. — Ford hefir að undanförnu
haft marga Mexíkómenn í vinnu í verk-
smiðjum sínum í Detroit, og eru [jeir
nú orðnir þaulvanir hverju handtaki,
sem lítur að samsetning bifreiða. þeir
hafa samið sig að siðuni Bandaríkjanna
í lifnaðarháttmn og vinnubrögðum og
hefir Ford blásið þeim í brjóst áhuga
og eldmóði til þess að skapa »nýtt
Mexíkó«- Er mælt að þeim leiki mik-
ill hugur á að komast heim til þess
að hrinda hugsjónum gamla mannsins
í framkvæn d hið allra bráðasta.
Kosningar í Manitoba.
Nýlega eru um garð gegnar kosning-
ar til fylkisþingsins i Manitoba í Can-
ada, og fóru þær svo að Norrisstjórn-
in sem þar sat að völdum beið mikinn
ósigur og tapaði völdunum. Bænda-
flokkurinn varð hlutskarpastur og náði
26 þinsætum; 9 stjórnarsinnar, 7 íhalds-
tnenn, 5 alþýðuflokksm. ogi2 flokkleys-
ingjar náðu kosningu. Fjórir íslending-
ar voru í kjöri, og náði einn þeirra
kosningu, Skúlt Sigfússon kaupm., í
St. Geórge kjördæminu. Hon Thomas
H. Johnson, er til skams tíma var
dótnsmálaráðherra og helzta máttarstoð
stjórnar-flokksins, bauð sig ekki fram
að þessu sinni. Leiðtogi bændaflokks-
ins sem nú myndar stjórn, heitir John
Bracken, og er prófessor við landbún-
aðarháskóla fylkisins.
OO
Or heimahögum.
Söngskerntun. Ungfrú Helga Bjarnadótt-
ir frá ^ Húsavík, skemti bæjarbúiim nieð
söng sínum á Mánudagskvöldið. Ungfrúin
hefir niikla og viðfeldna rödd, og var
söngur liennar yfirleitt góður. Á söng-
skránni voru 10 lög, bæði eftir íslenzk
og útlend tónskáld. Bezt þóttu takasl
>Nótt« cftir Árna Thorsteinsson og >f
Skoveu flyvcr glenten onu eftir danska
tónskáidið Lange Möller, sérstaklega var
síðara lagið mjög vel sungið.
Málvcrkasýningu hafði Freymóður Jó-
hannsson í barnaskólanum, Laugardaginn,
Sunnudaginn og Mánudaginn. Var sýn-
ingin fremur laklega sólt og var það illa
farið, því þar mátti líta mörg fyrirtaks
falleg málverk. Freymóður ætlar að sýna
málverk sín á Siglufirði næstu daga og
síðar víðar á landinu. Má vænta að sýn-
ing hans fái hvarvetna góða aðsókn.
Gestir. Meðan »Gullfoss« stóð hér við
var hér margt gesta, m. a. Einar Bene-
diktsson skáld, þorsteinn Gíslason ritstjóri,
E, Nielsen framkvæindastj., Böggild sendih.,
Jón Laxdal stórkaupm. og tónskáld, þórð-
ur J. Thoroddsen læknir, Jóii Auðunn
Jónsson bankastjóri á ísafirði og frú og
Jónas Jónsson frá Hrifiu.
Skipsbruni. Á Mánudaginn kom síld-
veiðaskipið »Osnæs« inn með annað
norskt skip »Ladas« er það hafði hitt úti
á Grímseyjarsundi í björtu báli; Hafði
kviknað í vélarrúmi skipsins og hafði eld-
urinn gert þungar bússifjar, er »Osnæs«
kom að og fékk hann slöktan. Sjópróf
standa nú yfir og þykir tvísýnt að »Ladas«
verði dæmt sjófært svo mikill er skaðinn.
»G«/(/bss« fór héðan suðurum á Þriðju-
daginn með fjölda farþega. Héðan tóku
sér far m. a. Kristján Jónsson hæstaréttar-
dómstjóri, Morten Hansen skólastjóri, Vilh.
Knudsen fulltrúi, Jón Guðmundsson frá
Gufudal, Jón Þórarinsson fræðslumálastjóri
og ungfrúrnar, Kristjana Blöndal, Rósa
Árnadóttir, Anna Einarsdóttir, Karítas
Guðmundsdóltir og Solveig Árnadóttir.
Alt liafði fólk þetta verið hér gestkomandi
um lengri eða skemri tíma, að Solveigu
undanskilinni, sem stýrt hefir Brauns
Verzlun hér um tíma, er nú alfarin til
Reykjavíkur.
>Goðafoss« kom snemma í morgun frá
útlöndum. Meðal farþega hingað voru:
Brynjólfur Bjarnason frá Þverárdal, frú
Sigríður Sveinsdóttir, frú Hedvig Skapta-
son, Ásgeir Bjarnason rafmagnsfræðingur
og frú hans (þýzk), Gísli Lárussou sím-
ritari og frú frá Seyðisfirði.
Landhelgisgœslan. »Þór« er nú búinn
að taka 12 útlenda síldveiðara í landhelgi
og mótorbáturinn »Geir« 2 að því er vér
bezt vitum, en »Fálkinn« danski engan
meðan hann hafði gæsluna og »Fylla«
síðan hún kom hefir engu betur gert.
Liggur hún mest altaf á höfnum inni og
hefst ekki að. Hér hefir hún Iegið alla
þessa viku. Má af þessu nokkurn veginn
ráða hvernig að laiuihelginnar hefði verið
gætt, hefðu dönsku varðskipin verið eiu
um hana.
Dýr liestlán. Á Sunnudaginn var voru
nokkrir hestar láuaðir ofau úr Kræklinga-
hlíð mönnum hér á Akureyri, og var riðið
uokkuð fram fyrir Saurbæ, ferðin stóð
yfir 'í 12 tíma, og voru hestarnir vel úllít-
andi að henni lokinni. Er átti að fara að
borga heimtuðu hesteigendurnir 20 krónur
fyrir livern hest og þessutan ankaborgun
fyrir að koma með þá og sækja þá. Þeir
sem hestana höfðu Ieigt neituðu að borga
þetta okurverð og er búist við að verði
málsókn úr öllu saman. Til samanburðar
má geta þess að nýlega voru 5 hestar
fengnir franian úr Saurbæjarhreppi og rið-
ið á þeim austur í Vaglaskóg, voru þeir
að heinian frá því á Laugardagskveld til
Mánudagsmorguns, og kostaði aðeins 8
krónur leigan á hverjuni hesti. Þetta er
nú líklega fullódýrt, en 10 krónur virðist
ekki ósanngjarnt fyrir hestlánið yfir daginn.
Opinberun. í gærkveldi opinberuðu trú-
lofun sína, ekkjufrú Rósa Pálsdóttir frá
Grund í Eyjafirði og Einar Stefánsson
skipherra á Goðafoss. íslendingur óskar
til hamingju.
Hjúskapur. Nýlega voru gefin saman í
hjónaband, ungfrú Lovísa Albertsdóttir frá
Páfastöðum í Skagafirði og Sig. Skagfeldt
söngvari.
Strákapör. í nótt hefir einhver náungi
unnið sér það til frægða, að mölva stóra
glerrúðu á Hótel Oddeyri og blómstur-
pott mikinn er var í glugganum. Hver
sökudólgur er hefir enn ekki vitnast.
Blómasala. Hjálpræðisherinn selur blóm
á morgun 2. Septcmber, til styrktar líkn-
arstarfseini sinni, sem nú er orðin mikil,
þar sem hann hefir bygt sjóinannaheimili
á fjórum stöðum á landinu og auk þess
sjúkrahús í Hafnarfirði og gamalmenna-
hæli á ísafirði. Allir bæjarbúar þurfa að
kaupa þessi blóm. Þau eru ekki dýr. Þeir,
sem vilja taka að sér að selja blómin, eru
beðnir að gefa sig fram á Laxamýri.
Fjölgun lögregluþjóna. Bæjarstjórnin
samþykti á síðasta fundi sínum, að veita
lögreglustjóra heimild að ráða 2 lögreglu-
þjóna, í alt að 2 mánuði til eftirlits í
bænuin.
Prentvillur nokkrar höfðu slæðst inn í
smágrein um málverkasýningu Freyinóðs
í síðasta blaði. — Þessar helstar: — Blá-
fjöll í frainsýni fyrir »BIáfjaII í framsýn,«
og »síðar eru myndirnar af Goðafoss«
fyrir góðar eru ntyndirnar o. s. frv.;
þessa er höf. beðinn velvirðinga á.
GO
Til athugunar.
Víð nýafstaðnar landskosningar hafa
2982 kjósendur aðhyllst stéttastríðstefnu
Jónasar frá Hriflu, sennilega aðallega
sainvinnumenn. Ágæt auglýsing á nú-
verandi þýðingu orðsins »samvinna«
Tvær duglegar stúlk-
ur óskast í vetrarvist hér í
bænum. Gott kaup í boði,
R. v. á.
MUN IÐ
eftir að borga
Islending.
Fjáreigendur!
Vegna sétstaklega heppilegra innkaupa get eg nú boðið Dougals baðlyt,
setn niuri vera eitthvað allra bezta baðlyfið, fyrir mjög lágt verð.
Baðlyfið verður selt á þessum stöðum:
Heima á Grund.
í Verzluninni „Eyjafförður“ á Akureyri.
og í Höeptners verziun s. st.
Virðingarfylst.
Magtiús Sigurðsson,
Grund.