Íslendingur - 23.01.1925, Page 1
Talsími 105.
Ritstjóri: Gunnl. Tr. Jónsson.
Strandgata 29.
XI. árgangur.
Akureyri, 23.
janúar 1925.
5. tölubl.
Pingmálafundur
Akureyrar.
Eins og auglýst var í síðasia
blaði, boðaði þingmaður kaupstað-
arins, Björn Líndal lögmaður, til
þingmálafundar í Samkomuhúsi bæj-
arins síðastl. mánudagskvöld kl. 8.
Setti hánn fundinn, eins og tilstóð,
og var þá kominn húsfyllir. Lagði
þingmaðurinn dagskrá fyrir fundinn
og voru á henni 18 mál. Gat hann
þess um leið, að leitað hefði verið
samkomulags viðhelztu menn stjórn-
málaflokkanna í kjördæminu um
það, að framsögumaður og aðal-
andmælandi í hverju aðalmáli töl-
uðu hvor um sig í 15 mínútur, en
aðrir ræðumenn í 5 mínútur. Bæri
nauðsyn til að takmarka umræður
á þennan hátt, þar sem svo mörg
mál væru á dagskránni. Mótmælti
þessu enginn og ákvað þá þing-
maður þetta fundarsköp. Pá til-
nefndi þingmaður fyrir aðalfundar-
stjóra Steingrím Jónsson bæjarfó-
geta og varafundarstjóra Þorstein
M. Jónsson kennara og samþykti
fundurinn þá báða. Skrifarar voru
þeir valdir Karl Nikulásson konsúil
og Vernharður Porsteinsson kennari.
Áður en gengið var til dagskrár-
innar, talaði þingmaðurinn um helztu
mál hennar og lýsti afstöðu sinni
til þeirra. Fjárhagsmálin væru enn-
þá aðalviðfangsefnið. Fjárhagur
ennþá slæmur, þó horfinu væri nú
breytt í rétta átt, og til þess að
halda því horfi og miða nokkuð á
leið, mætti ríkissjóðurinn ekki við
því, að missa nokkuð af tekjum
þeim, seni honum væru nú ætlaðar.
Afkoman síðastliðið ár hefði orðið
sú, að fjármálaráðherranum hefði
tekist að greiða allar skyldugreiðsl-
ur ríkisins og þess utan rúma milj-
ón króna af föstum skuldum og
milli 300 þús. og 400 þús. af Iaus-
um skuldum ríkissjóðs. Skuldir rík-
isins væru því ennþá um 20 rnilj.
kr. Verðtollslögin vildi þingmað-
urinn !áta endurskoða; þau hefðu
verið flaustursverk hjá þinginu og
hann skammaðist sín fyrir, hvernig
þau væru úr garði gerð, en knýj-
andi ástæður hefðu legið til þess’
að þeim varð að flýta svo mjög í
gegnum þingið. Innflutningshöftin
vildi þingmaðurinn algerlega afnema
og kvað atvinnumálaráðherrann liafa
í framkvæmdum þeirra brotið mjög
í bága við vilja meiri hluta þings-
ins. — Um steinolíueinkasöluna
hafði þingmaðurinn það að segja,
að hann væri því algerlega mótfall-
inn, að ríkið gerði að nýju einka-
sölusamning með líkum hætti og
fyrv. stjórn hefði gert við British
Petroleum Co., en gæti hins vegar
felt sig við, að ríkið héldi áfram
steinolíusölu, ef það væri gert í
frjálsri samkepni við kaupmenn og
kaupfélög og það yrði ríkinu ekki
að byrðarauka. — Tóbakseinkasöl-
una vildi þingmaðurinn afnema við
næstu áramót, nema það sannaðist
við rannsókn, að ríkið hefði meiri
nettó-tekjur af henni en líkindi þættu
að næðist með tollum og frjálsri
verzlun. Ástæðuna fyrir því, að
hann hefði ekki verið því fylgjandi
á síðasta þingi, að tóbakseinkasal-
an yrði lögð niður við síðustu ára-
mót hefði verið sú, að þá hefði
hún haft svo mikið fyrirliggjandi af
vörubirgðum, dýru verði keyptum
og miður góðum, að fyrirsjáanlegt
hefði verið, að landið mundi ekki
geta losað sig við þær nema með
stórtapi hefði verzlunin þá - verið
gefin frjáls. — í stjórnarskrármálinu
kvaðst þingmaðuiinn eiga fremur
samleið með Framsóknarflokknum
en meiri hlutanum úr sínum eigin
flokki, vilja þinghald annaðhvort ár,
en ekki fækka ráðherrum. Annars
myndi á næsta þingi koma fram
frumvarp frá Jóni Magnússyni, ekki
þó sem forsætisráðherra, heldur sem
»privat«-þingmanni, þar sem farið
væri fram á ýmsar breytingar á
stjórnarskránni, m. a. um algerða
breyting á kjördæmaskipun landsins.
Kvað þingmaðurinn núverandi kjör-
dæmaskipun afar-óréttláta og því
nauðsyn á nýrri og réttlátari. En að
henni mætti ekki kasta höndunum
og samþykkja fyrirhyggjulítið. Betra
að bíða með stjórnarskrárbreyting-
una eitt árið enn, heldur en að sam-
þykkja hana með nýrri kjördæma-
skipun, sem þjóðinni hefði ekki gef-
ist kostur að segja álit sitt um, eða
með þeirri gömlu, þar sem vitan-
legt væri, að henni yrði breytt á
næstunni. Og árlegar stjórnarskrár-
breytingar væru óráðlegar og lítt
sæmandi þroskaðri þjóð. Betra að
bíða um stund og byggja traust og
til frambúðar. — Heilsuhælismálið
— að koma upp heilsuhæli hér á
Norðurlandi fyrir berklaveikt fólk,
taldi þingmaðurinn mesta nauðsynja-
mál þessa landshluta, og hét því
öruggu fylgi sínu, þegar hann sæi
það kleift fjárhagsius vegna. Taldi
litlar líkur, að takast mundi að fá
fjárveitingu á þessu ári, þar sem
fjáraukalög myndu alt annað en vel
séð í þinginu, en vonbetri um, að
það mundi takast á næsta ári, gengi
alt skaplega með fjárhaginn. — Pá
mintist þingmaðurinn á landhelgis-
sjóðinn, sem nú mundi vera um
900 þús. krónur á pappírnum, en
sem fyrv. stjórn hefði tekið óleyfi-
lega að láni til ríkisins þarfa. Vildi
að honum yrði skilað sem fyfst
aftur, helzt fyrir næstu áramót, og
drög að því lögð, að bygt yrði
fyrir haun skip til landhelgisvarna.
Á önnur mál dagskrárinnar drap
þingmaðurinn stuttlega og bað menn
að síðustu að lengja ekki fundinn
um of með óþarfa ræðuhöldum.
Var því næst gengið til dagskrár.
1. Fjdrhagstnál: Framsöguinaður,
Rsgnar Ólafsson, bar upp svohljóðandi
tillögu
»Fundurinn lýsir ánægju sinni yfir
tilraunum síðasta þings, er það gerði
til þess, að rétía við fjárhag ríkissjóðs,
og skorar á þing og stjórn, að halda
AKUREYRAR BIO
6SLDRAN.
Laugardagskvöldið: kl. 8l * * * 5 6/2
Sunnudagskvöldið: kl. 8l/2
6 þátta kvikmynd frá Alaska, afarspennandi, í síð. sinn.
Miðvikudagskvöldið kl. 8^/2:
Baráttan um ástir konunnar.
7 þátta kvikmynd, mjög hugþekk og efnisrík. Aðalhlut-
verkið leikur hin góðkunna enska leikkona
D a i s y R o h i s o n .
sömu tilraunum áfram. Sérslaklega Hlíðar hafði framsögu og bar fram
leggur fundurinn áherzlu á, að gætt svolátandi tillögu:
verði hinnar ítrustu sparsemi á fé
ríkisins«,
og var hún samþykt með 148 atkv.
gegn 108, en breytingartillaga, frá
Porsteini M. Jónssyni, við fyrri hluta
aðaltillögunnar, þannig orðuð:
sPar sem fundurinn lítur svo á,
að tilraunir núverandi stjórnar og
síðasta þings hafi að ýmsu leyti ver-
ið mislukkaðar, þá skorar hann á
næsta þing, að gæta sín betur í
þessu efni«,
var feld með 126 aikv. gegn 89.
2. Veröiollur og innflutningshöfi:
Franrsögumaður, Steingrímur bæjarfó-
geti Jónsson, bar upp þessa tillögu:
»Fundurinn skorar á þing og
stjórn, að endurskoða verðtollslög-
in frá 1. apríl 1924, þar sem það
hefir komið í Ijós við framkvæmd
þeirra, að þau eru óbilgjörn í ýms-
um greinum. Auk þess skortir þar
alimjög t samræmi og orkar nokkuð
tvímælis um skilning á þeirn. Telur
fundurinn sjálfsagt, að taldar verði
upp í lögunum allar þær vörur,
sem verðtollskyldar eru. En þar
sem búast má við, að ríkið m ssi
meira í tekjum við endurskoðun
þessa, en það getur án verið, þá
skorar fundurinn á þingið að afnema
öll innflutningshöft og leggja frekar
verðtoll á þær vörur, sem nú eru
bannaðar*,
og var hún samþykt með 127 atkv.
gegn 95.
3. Steinoliueinkasala: Frummælandi,
Einar J. Reynis, bar fram þsnnig orð-
aða tillögu:
»Fundurinn lýsT ánægju s:nni yfir
því, að stjórnin hefir sagt upp stein-
olíueinkasamningunum við British
Petroleum Company, og skorar fast-
lega á þing og stjórn að binda rík-
ið engum slíkum einkasölusamning-
um framvegis',
og var hún samþykt-með 140 atkv.
gegn 73, en svohljóðandi viðaukatil-
laga frá G. Bárðarsyni:
»Pó þegar hafi verið sagt upp
olíusamningunum við British Petro-
legum Co., væntir fund. rinn þess,
að þingið samþykki, að ríkissölu
verði haldið áfram á olíunni í ein-
hverri mynd*,
var feld með miklum atkvæðamun.
4. Tóbakseinkasala: Sigurður E,
»Fundurinn skorar á Alþingi að
rannsaka ítarlega allan fjárhag og
rekstur tóbakseinkasölnnnar og leggja
hana niður frá næstu áramótum,
nema að full vissa fáist fyrir því,
við þessa rannsókn, að ríkið hafi
svo rniklar og ábyggilegar tekjur af
henni, að ekki þykji líklegt, að eins
miklar tekjur fáist með tollum og
frjálsri verzlun*.
Tillaga þessi var samþykt með 103
atkv. gegn 1.
Pegar hér var komið, var kl. orðin
talsvert yfir 3 um nóttina, og var því
tekið það ráð, að fresta fundinutn til
næsta kvölds, og halda dagskránni
þá áfram.
Fundi frestað.
Pingmálafundurinn var settur aftur
þriðjudagskvöldið kl. 8'/2. Aðalfund-
arstjóri var hinn sami og ritarar, en
varafundarstjórinn, Porsteinn M. Jóns-
son, sagði af sér í byrjun fundarins
og var þá Hallgr. Daviðsson verzlun-
arstjóri kvaddur til að vera varafundar-
stjóri í hans stað.
Dagskránni var svo haldið áfram og
5. mál tekið fyrir.
5. Hellsuhæli á Norðurlandi: Hafði
Vald. Steffensen læknir framsögu og
bar frarn svolátandi tillögu:
»Fundurinn skorar á Alþingi, að
beita sér af aiefli fyrir því, að reist
verði fullkomið heilsuhæli á Norð-
urlandi á þessu ári. Heilsuhælið
rúmi minst 35 sjúklinga, en helst
ait að 50. Yfir hælið skal settur
sérfræðingur í berklaveiki*.
»Pað er vitanlegt, að berklaveikin
fer sífelt í vöxt, og eigi verður séð,
að berklalögin komi að neinu veru-
legu haldi í þeirri mynd, sem þau
nú eru, og eins og þeim er beitt;
væri því eigi úr vegi, að þau yrðu
endurskoðuð«.
Tillagan var samþykt f einu hljóði.
6. Sijórnarskrármál: Bæjarfógeti,
Sleingrímur Jónsson hafði framsögu,
lagði hann fram svohljóðandi tillögu:
»Fundurinn lýsiryfir óánægju sinni
útaf meðferð síðasta þings á stjórn-
arskrármálinu. Jafnframt skorar fund-
urinn á Alþingi að leggja aðaláherzlu
á þær einar breytingar á stjórnar-
skránni, að reglulegt þing verði að
eins haldið annaðhvort ár og þing-
mönnum fækkað niður f þrennar