Íslendingur


Íslendingur - 30.10.1925, Page 2

Íslendingur - 30.10.1925, Page 2
2 ISLENDINGOR Bió lœkkar aðgöngueyrir. Með sýning- unni á morgun hefst nýtt verðlag á að- göngumiðunum í Bíó, og lægra en verið hefir, Almenn sæti kosta kr. 1.00, betri sæti (6 öftustu bekkirnir) kr. 1.50, aðgang- ur að svölum kr. 1.75 og barna sæti 0.50. Gildir verðlag þetla fyrst um sinn. HESSIAN ísl. vonast eftir, að svörin verði skýr og ótvíræð. Á þessum hlutföllum, sem hér hefir verið drepið á, og öðrum þeim líkum, er krafan um breytta kjör- dæmaskipun bygð. Háðglósur ritstj. Dags um að ritstj. Verkamannsins og ritstj. ísl. hafi fallist í faðma í þessu máli, dilla að sjálfsögðu fagurlega í eyrum sjálfs hans; öðrum mun finnast þær auðvirðilegar. Því þó að ritstj. Vm. og ísl. séu pólitískir andstæðingar, þá mætti það- kallast furðulegt, ef þeir gætu aldrei átt samleið um nokkurt mál. Og iágt er pólitíkin komin, ef að það eitt nægir að breyta skoðun manns, að pólitísk- ur andstæðingur er sömu skoðunar, og hann á málinu. Ritstj. Vm. og ísl. eru sammála um það, að nú- verandi kjördæmaskipun sé óréttlát og að öll sanngirni mæli með því, að koma kjördæmaskipulaginu og kosningafyrirkoinulaginu í réttlátara horf en nú á sér stað. Þeir eru báðir þeirrar skoðunar, að kjósenda- talan eigi að vera grundvöllurinn undir kjördæmaskipuninni en ekki landafræðisleg takmörk eða þúfna- fjöldinn í einstökum hreppum. Og þessarar skoðunar munu allir þeir vera, sem hugsa af sanngirni um málið. En það gerir ritstj. Dags sýnilega ekki. co Símskeyti. (Frá Fréttastofu íslands.) Rvík 29. okt. Utlend: Frá Damaskus er símað, að borg- arbúar hafi gert uppreist gegn Frökk- um, og ér tilefni hennar Drússa- uppreistin á Sýrlandi. Frakkar hafa skotið á borgina og hefir fjöldi bygginga hrunið og brunnið. Menn drepnir í þúsundatali. Frá Oenf er símað, að Alþjóða- bandalagið hafi skipað Grikkjum og Búlgurum að hætta stríði innan 24 klukkustunda. Hafa báðir aðilar lofað að hætta að berjast. Nefnd verður skipuð til þess að rannsaka hvor beri sökina. Frá París er símað, að Painleve- ráðuneytið hafi sagt af sér í þeim tilgangi, að losna við Caillaux fjár- málaráðherra. Reynir Painleve nú að mynda stjórn með öðrum ráð- herrum. Sennilegt talið, að Caillaux og Herriot verði í því. Frá Mosul er símað, að Tyrkir hafi í hefndarskyni við Breta rænt 8000 kristnum manneskjum, strá- drepið marga, svívirt konur og selt í kvennabúr. Frá París er símað, að franska stjórnin hafi gefið upp, að Mar- okkóstríðið hafi kostað Frakka 1300 miljónir franka þá 9 mánuði, sem það hefir staðið. Um 2000 manns hafa fallið og 8000 særst. Frá London er símað, að fellibyl- ur hafi nýlega geysað yfir persiska flóann. Um 7000 perlufiskarar druknuðu, Innlend: Sáttasemjarinn í kaupgjaldsdeilun- um milli sjómanna og útgerðar- manna gerði um helgina uppkast að samningum milli málsaðila. Upp- kastinu haldið leyndu, þar til at- kvæðagreiðsla beggja aðila hefir fram farið. Útgerðarmenn samþyktu miðlun sáttasemjara á þriðjudaginn. Á fundi á miðvikudaginn samþyktu þeir, að láta togarana hættaveiðum jafnharðan og þeir koma inn, ef sjó- menn ganga ekki að uppkastinu. Atkvæðagreiðsla sjómanna hefir farið á þann veg, að þeir hafa hafnað uppkastinu með miklum meiri hluta. Allar líkur benda til, að togaraflot- anum verði lagt í höfn um mán- aðamótin. »lslands Falk« hefir tekið 3 þýzka togara í landhelgi fyrir Suðurlandi. Samtals sektaðir um 32 þús. kr. Frá ísafirði er símað, að bæjar- stjórnin hafi afgreitt fjárhagsáætlun kaupstaðarins í gær. Áætlaðar tekj- ur 384 þús. kr., þar af útsvör 161 þús. kr. í fyrra voru þau 149 þús. krónur. C9 Ör heimahögum. Klrkjan. Messað kl. 2 á sunnudaginn, Einar Gunnarsson verzlunarstjóri var kosinn í niðurjöfnunarnefnd kaupstaðarins í stað Halldórs Friðjónssonar bæjarfull- trúa. Aðeins 1 Iisti kom fram. Kosningin gildir til eins árs. Kvöldskóli Einars Olgeirssonaar verður settur á morgun. Veitti bæjarstjórnin á síðasta fundi sínum 300 kr. til hans. Hafði auk þess áður samþykt að Ieggja honuin til húsnæði, ljós og hita. Dómar. Nýlega er fallinn dómur í Hæstarétti í máli því, er Jónas Þorbergs- son ritstj, höfðaði gegn verkafólki Höepfn- ersverzlunar útaf ummælum, er það hafði haft um hann í yfirlysingu, er það gaf nokkru fyrir kosningarnar 1923 útaf að- drót^unum J. P. í garð verzlstj. Hallgr. Davíðssonar. Féll dómur Hæstaréttar á þá leið að hin umstefndu ummæli væru meið- andi og skyldu því marklaus vera, og dæmdi hina stefndu i 30 kr. sekt hvern og 250 kr. málskosnað alla til samans, auk málskosnaðar fyrir undirrétti er nam 125 kr. Undirréttardómurinn hafði fallið á þann veg, að stefnandanum var dæmdur málskostnaðurinn og hin umstefndu orð ómerk, en sektarhegning engin. Um líkt leyti hafði Hallgr. Davíðsson höfðað 2 mái á hendur J. Þ. fyrir meiðyrði og féll und- irréttardómurinn á þá Ieið, að J. Þ. var dæmdur i 70 kr. sekt í öðru og 100 kr. málskostnað, en í hinu 50 kr.' sekt og 50 kr. málskostnað, og hin umstefndu um- mæli dauð og marklaus í báðum málun- um. Þeim málum áfrýjaði J. Þ. ekki. Trúlofun sína hafa nýlega opinberað ungfrú Margrét Ragúels, héðan úr bænum, og Conrad Hansen verzlunarmaður frá Yderslev í Danmörku. Hjúskapur. Á laugardaginn var voru gefin saman í hjónaband hér í bænum ungfrú Gróa Hertevig og Hjörleifur Árna- son vélstjóri. „Esja“ er væntanleg í lcvöld. Kemur austan fyrir. Konscrt heldur frú Jóhanna Sigurbjarn- ardóttir í Bíó kl. 5 á sunnudaginn. Ungfrú Hermína Sigurgeirsdóttir aðstoðar. Skemtun, með fyrirlestrum, hlutaveltu og dans verður haldin i Gagnfræðaskól- anum á sunnudagskvöldið, til ágóða fyrir framhaldsnámið í skólanum. Bókasafnið verður opnað á þriðjudag- inn. Útlán verða aðeins á laugardöguni frá kl. 4 til 7 og miðvikudögum (eftir pöntunum) kl. 6 til 7. Lestrarsalurinn op- in öll kvöld nema laugardags- og mánu- dagskvöld, frá kl. 4 til 7. lslenzk uppfynding. B. Kr. Grímsson vélfræðingur á Stokkseyri hefir fyrir nokkru gert uppfyndingu, sem öll líkindreru til að komi mótorbátaútveginum að góðum notum, er það „aflauki“ fyrir mótora. Aflaukinn er þegar kominn á markaðinn og hefir reynst vel, eykur hann gang mótora um 20—50°/o, Verksmiðjan Steðji Rvík. smíðar aflaukann. Ólöglegt rjúpnadráp. Bóndi einn úr Bárðadal var nýlega sektaður af sýslu- manni Þingeyinga um 600 kr. fyrir að hafa skotið rjúpur fyrir hinn lögleyfða tíma, og maður á Húsavík, sem lceypti rjúpurnar, hlaut sömu sekt, Rjúpurnar voru 60 og er sektin 10 kr. fyrir hverja rjúpu. Bóndinn kom með rjúpurnar tilHúsavíkur daginn áður en leyfilegt var að skjóta þær, -iT<- Kveðjusending Stórtemplars. í októberblaði Templars sendir Stór- templar ritstj. ísl. stuttorða kveðju. Hann virðist, sá góði maður, taka til sin mest af því, sem stóð í grein Ist. um *áfengismdlið', þó vitanlega væri þar aðallega stefnt að Stórritara^ og skrifum hans í Verkamanninum. Þau nöfn, sem hneyksla hinar viðkvæmu velsæmistilfinningar þessa virðulega Regluforingja, áttu flest við undirfor- ingja hans, Stórritarann, og þykist ísl. hafa fært svo góð og gild rök fyrir þeim, að fáir munu efa að sannnefni séu. Aftur er það rétt, að ísl. sakaði hinn virðulega Stórtemplar um, að hann væri farinn að gera bannmálið, að pólitísku flokksmáli, flokki þeim í hag, sem hann tilheyrði, þó Stórritari væri þar talinn honum sekari. Ritstj. ísl. hélt bér hinu sama fram og Sig. Eggérz hélt fram á fundi þeim, er hann hélt hér nýlega, þó að S. E. nefndi engin nöfn, heldur aðeins bardagaað- ferð núverandi forvígismanna bannmáls- ins. Má vera, að ritstj. ísl. hafi skjátl- ast í dómi sínum um Stórtemplar í þessu efni, en framkoma hans undan- fariö bæði í ræðu og riti hefir gefið tilefni til þeirrar ályktunar, er gerð var í blaðinu. Og allir vita, að herra Brynleifur hefir löngun til þess að komast á þing, jog má mikið vera, ef bannmálsforystan verður ekki það helzta sem hann telur sér til ágætis við kjós- endurna, sjái hann sér fært að gerast frambjóðandi. Hvað Stórritara viðvíkur, þá játar Stórtemplar, að markmið hans með skrifum sínum um bannmálið sé pöliiiskt; hann hafi skrifað greinarnar sem >pólitiskur ritstjöri i andstöðu við náverandi stjórn«. Sé ásökuu rit- stjóra fsl. þung í garð hins virðulega Stórtemplars, þá er staðhæfing hans í garð undirforingja síns, Stórritarans, ennþá þyngri, þar sem hún kemur frá samherja, sem tengdur er honum órjúf- andi böndum »bróðurkærleikans«. — Síðast orða segir Stórtemplar, að hann Hreinar flöskur kaupir Áfengisútsalan, Akureyri. Öllum, þeim sem heiðruðu út- för sonar míns, Svafars Sigur- jónssonar, á einn eða annan hátt votta eg mitt innilegasta þakk- Iseti. Sérstaklega vil eg þakka O. C. Thorarensen lyfsala og frú hans rausn þeirra og höfðingskap í hans garð, bæði fyr og síðar; bið eg algóðan guð að launa þeim kærleiksverk þeirra. Pálína Björnsdóttir. Jarðarför föður og tengdaföður okkar, GuðmundarlKristjánssonar, sem andaðist 23. þ. m. er ákveð- in laugardaginn 31. og hefst með húskveðju kl. 1 e. h. frá heimili okkar Strandgötu 15 Rósfríður Guðmundsdóttir Halldór Halldórsson. Áskorun! Þeir menn hér í bæ, sem eg heft Iánað þessar bækur: Óðinn, 3 bækur, 4 árg. í hverri, Ensk íslenzk orðabók G. Zoega, Brynjólfur biskup, Jón Vídalín, Valdemar munkur, Leyndarmál her- togans, Kynlegur þjófur, Hjaltalíns kenslubók í Ensku, Hjaltalíns Enskt íslenzkt orðasafn, Týnda stúlkan, Paa Jagt efter Mennesker, Hans Dödsfjende, The Tiger, skili þeim tafarlaust. Akureyri 29. okt. 1925. Friðbjörn Bjarnarson. Tanngerfi vönduð að efni og snúði, sel ég fyrir 100 kr. á báða góma. Særi tanngerfin laga eg þau ókeypis svo oft sem menn vilja og þurfa. Aðgerðir á skemdum tönnum traust- ar og afar ódýrar. Á vinnustofu minni eru tvær raforku- vélar af nýjustu gerð til tanniækninga og tannsmíða. Útdráttur tanna eða hreinsun góma með deyfingu ókeypis fyrir þá sem geta notfært sér það, og ætla sér að fá tennur hjá mér. Iggjjjp- 5 ára ábyrgð átðnnum. Friðjón Jensson. Hlýjustu, beztu og þó ódýrustu vetrarnærf Ht. Kaupið þau í hamborg. Nokkrir kassar af vindlum sem hafa þornað, verða seldir á kr. 4.00 pr. V2 kassi. Verzl. Geysir. ætli sér ekki að hefja ritdeilur við rit- stjóra ísl., önnur leið sé opin til að jafna viðskiftm og hana ætli hann sér að fara. Við þeíta er ekkert að athuga. Ritstjóra ísl. stendur svo hjartanlega á sama, á hvaða vettvang hann mætir Brynleifi Tobiassyni.

x

Íslendingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.