Íslendingur


Íslendingur - 29.01.1926, Page 1

Íslendingur - 29.01.1926, Page 1
\ i i Skólakerfið. Kostnaðarhliðin. Fyrir skömmu flutti ísl. tillögur Jóns yfirkennara Ófeigssonar um íslenzkt skólakerfi. Var þar tilhög- un þess lýst allnákvæmlega. En skýrsla yfirkennarans er yfirgrips- mikil og kemur víða við. Fer hér á eftir sá hluti hennar, er'fjallar um kostnaðarhliðina. Eru þá meginþætt- irnir í tillögum J. Ó. koninir fyrir augu lesenda blaðsins: »Lærðir skólar, kennaraskóli og sjómannaskóli séu landsskólar og séu þeir stofnaðir og starfræktir að öllu leyti af ríkinu. Peir aðrir fram- haldsskólar, sem taldir eru í tillög- um þessum, gagnfræðaskólar og héraðsskólar, skyldu lúta þeim á- kvæðum, sem hér skal greina: Fræðsluhéraðið skyldi koma upp að öllu leyti af eigin rammleik, án til- styrks ríkisins, öllum þeim húsum, ásamt útbúnaði, setn þyrfti til skóla- haldsins, og leggja til öll áhöld, sem þörf væri á, önnur en kenslu- áhöld. Ennfremur skyldi fræðsluhér- aðið standa straum af þeim hluta árlegs reksturskostnaðar, sem staf- aði af viðhaldi húsa, þjónustufólki, ræstingu, upphitun og ljósurn. Hins vegar skyldi ríkiðlbera allan kostn- að af hinum andlega rekstri, laun- um fastra kennara allra og tíma- kennara; ennfremur leggja til kenslu- áhöld öll, svo sem söfn, og kosta nauðsynlega aukningu þeirra. Verzl- unarskóli skyldi stofnaður með sama hætti, verzlunarstéttin tæki á sig skyldur fræðsluhéraðs bæði um hús og hluta hins árlega rekst- urskostnaðar. Til þess að létta af fræðsluhér- aði þeim hluta reksturskostnaðar- ins, sem á því muni hvíla, ætti að heintila skólanefnd að taka hæfileg skólagjöld af nemendum, og þá nokkru hærri af utanhéraðsmönnum. Sömuleiðis ætti henni að leyfast að nota’skólahúsin þann tínia, sem skólarnir starfa ekki, til annars þess, sem ekki stofnar heilsu nemanda í hættu. Pað, sem þannig áskotnað- ist, og gjafir, sem kynnu að berast, skyldi lagt í skólasjóð. Skólasjóður ætti fyrst og fremst að vera til þess, að greiða þann hluta reksturskost- aðarins, sem hvíldi á fræðsluhéraði, en ætti hins vegar einnig, ef hann væri þess megnugur, að færa niður eða fella burt skólagjöld og styrkja fátæka nemendur. Pær^ tiilögur, er eg nú hefi gert, miða að því að þrískifta kostnaðin- um við skóiaog skólahald: 1) Fræðslu- hérað kosti hús og áhöld, 2) ríkið allan andlegan reksturskostnað og 3) notendur og skólasjóður önnur árleg útgjöld. Ef þessi stefna væri tekin upp, mundi þetta meðal annars vinnast: Allar deilur um fjárframlög af hálfu ríkisins og þar til heyrandi hrossa- kaup, mundu vera úr sögunni, þar sem nú væri skýrt ákveðið, hvað hver málsaðilji ætti að annast. Ríkið slyppi við stórupphæðir, sem það hingað til hefir oftast greitt í stofn- kostnað.upphæðir, sem koma óþægi- lega við fjárhagsáætlanir, af því að þær eru breytilegar og oft óvæntar. í þess stað fengi ríkið jöfn árleg útgjöld af hverjum skóla, sem stofnaður yrði samkv. þesum ákvæð- um. Virðast mér þess konar út- gjöld fara betur í búreikningum ríkisins en stofngjöldin breytilegu. Fræðsluhéruðin ættu altaf upptökin að stofnun skólanna og yrðu að inna veruiega kvöð af hendi, áður kæmi til kasta ríkisins. Þegar svo fræðsluhérað kæmi til ríkisstjórnar og færði sönnur á, að það gæti að öllu leyti komið upp skólahúsum í samræini við þær kröfur til fjár- framlaga, sem húsameistari ríkisins teldi hæfilegar, kæmi til kasta Al- þingis að yfirvega, hvort ríkið gæti tekið á sig sinn hluta kostnaðarins eða yrði af einhverjum ástæðum að fresta málinu að sinni. Alþingi hefir alt af .úrskurðarvaidið uni það, hvenær skóli yrði settur á stofn, jafnt þó- skólinn væri talinn í skóla- kerfinu. Hugsast gæti, að einhverjum fræðsluhéruðum stæði stuggur af þeim hluta reksturskostnaðarins, sem eg geri þeim að annast. En sá kvíðbogi mundi reynast ástæðu- laus. í sveitum mundu menn að sjálfsögðu reisa skólana þar, sem jarðhiti væri, og spara þannig skól- anum dýra upphitun, og ekki æfti þjónustufólk að gera mikinn kostn- að, því að vel mætti venja ungling- ana á að ræsta herbergi sín og skólastofur. Kostnaöurinn yrði þá aðallega viðhald og ljós, en þau gjöld gæti skólasjóður vafalaust borið. í kaupstöðum yrði kostn- aður meiri, en þó lítill í samanburði við það, sem vera mundi eftir því lagi, sem nú tíðkast helzt. Eg ætlast ekki til, að ríkið taki skólagjöld, heldur fræðsluhéruðin, og aðeins vegna árlegra útgjalda. Og sjálfsagt virðist, að utanhéraðs- menn greiði hærra skólagjald, rétt- látt, að hjnir njóti verka feðra sinna, er hafa stofnað skólann með mikl- um fjárframlögum, sem fræðsluhér- uðin fá aldrei endurgreidd béinlínis. Þessi tilhögun tíðkast erlendis og sjálfsagt víðar en eg hefi haft spurnir af. Rakst eg fyrst á þessa skift- ingu kostnaðar eða svípaða í ýms- um sænskum skólum. Pannig er t. d. ákveðið, að kostnaðurinn við sænsku framhaldsskólana (forsát- tningsskolan) skiftist svo,að fræðslu- héruðin leggi til hús og áhöld, en ríkið kennara og launi þeim. Mikill meiri hluti hinnar dönsku menta- málanefndar, sem eg hefi áður nefnt, gerir tillögu um, að skifta kostnaði við a 11 skólahald þar í landi á svip- aðan hátt. Af þessu má sjá, að fordæmin vantar ekki. Pessar tillögur ná aðeins til þeirra skóla, sem eg hefi talið í skóla- kerfi mínu, og þessi ákvæði ættu AKUREYRAR BIO Laugardags- og sunnudagskvöldið kl. 8^2: Undravegir kærleikans. Stórfengleg kvikmynd í 6 þáttum, eftir hinni heimsfrægu skáld- sögu »Nju« eftir Ossip Dúnows. Aðalhlutverkin leika: EMIL JANNINGS, ELISABETH BERGER, CONRAD VEIDT. Petta er mynd sem allir verða að sjá. Miðvikudagskvöldið kl. 8^2: Unglingar stórbæjarins 7 þátta kvikniynd, eftirtektaverð og tilkomumikil. aðeins að gilda fyrir þá skóla, sem Alþingi að lokum ræður af að hafa í skólakerfinu. Allir aðrir skólar, t. d. ýmiskonar skemri framhalds- skólar, þarfir og óþarfir, kæmust ekki í upphafi inn undir þessi á- kvæði, þótt alis ekki væri loku fyrir það skotið, að samþykt yrði síðar að bæta einhverjum þeirra í skóla- kerfið og hafa um þá sömu eða svipuð ákvæði. Svo langt gekk ósvífni Windischgrátz fursta, að hann bauð Austurríki stór lán, til þess að fá víðtækari markað fyrir hina fölsuðu seðla, og stóð f samningum um lánið, er fölsunin var uppvís. Seðlarnir þykja ágætlega gerðir, svo engin munur sézt á gerð þeirra og ófalsaðra seðla, en psppírinn var ekki nákvæmlega eins, og var haun orsökin að fölsunin varð uppvfs. Um 40 manns hafa verið hand- teknir f sambandi við þetta mál. Utan úr heimi Stórkostlegt hneykslisniál. í símfregnum til blaðanna hér, stutlu eftir áramótin, var getið um stóifelda seðlafölsun í Rumeníu er ollað hefði alheims-hneyksli. Hér hefir málunum einhvern veginn bland- ast, því það er í Ungverjalandi sem þessi tíðindi gerðust. Og er svo að sjá, af nýkomnum útlendum blöðum, að þetta hneykslismál muni ætla að hafa miklar og alvarlegar afleiðingar. Við seðlafölsunina sýnast vera riðnir ýmsir helztu aðalsnienu Ungverja, jafnvel konungborið fólk, háttsettir embætiismenn og trúnaðarmenn ríki- sins. Opinberar stofnanir voru not- aðar til þessarar iðju. Rað voru franskir frankár, sem falsaðir voru, alt í 1000 franka seðlum, og voru 40,000 þeirra komnir í umsetningu. Seðla- fölsunin byrjaði fyrir ári síðan, og voru jafnaðarlega pientaðir 500 til 800 seðlar á dag. Höfuðmaðurinn í þessari seðlaföls- un en Windischgrátz fursti, en við hana er mikið bendlaður Albrecht erkihertogi, er tilkall gerði til konungs- dóms á Ungverjalandi. Álti seðla- fölsunin bæði að styðja hann til valda, en einkum og sér í lagi var marknriðið með henni, að því er Windischgrálz hefir játað fyrir réttinum, að eyði- *eg&Ía gengi franska frankans, og koma Frökkum með því í slíkt fjár- hagslegt öngþveiti, að þeir yrðu einskis megnugir út á við, og þar með hefði Ungverjaland færi á að komast undan oki Trianon-samningsins, — friðarsamningsins, er bandamenn gerðu við Austurrík'smenn og Ungverja. Upp og niður. Dónrar. Andstæðingablöðin þrusa nú uni þing- málafundinn og víta framkomu þingmanns- ins. Er það engin nýlunda. Björn Líndal er þyrnir í þeirra augum og þeirra helzta kappsmál er, að hafa niður af honum skóinn, og meðulin, sem til þess eru notuð, hirða þarj eigi um hver eru. Hon- urn er fundið alt til foráttu, bæði það sem hann gerir og ekki gerir. Er þessi ofsókn blaðanna gegn B. L. bezta sönnun þess að liann er enginn meðalmaður í þeirra augum, á pólitíkst dauðýfli og þingónytj- unga eyða blöð ekki púðri sínu. Rögnin er þeirra hlutskifti venjulegast; fæstir meta slíka þingmenn þess, að amast við þeim. En undarlegt má það kallast, í sambandi við árásir Verkamannsins og Dags á B. L.,rað þau liggja honutn hvað mest á hálsi fyrir það, sem þau hafa dásamað hjá leið- togum sínum. Olafur Friðriksson, Jónas frá Hriflu og Magnús J. Kristjánsson hafa gert sig þráfaldlega seka um alt það,{sem B. L. er víttur fyiir, en vandlætingavönd- urinn !á þá óhreyfður á bak við búrkist- una, og þéim kyrjuð — í stað umvönd- unar — Iofdýrð og þökk. Svona er nú samræmið í dómunum. Hefði mátt bíða. Verkamaðurinn, fyrstur allra blaða utan höiuðstaðarins, hefir fundið köllun hjá sér til þess að gera sér mat úr ógæfu, er komið hefir fyrir þingmann einn úr íhalds- flokknum, ógæfu, sem hver og einn góður drengur mundi telja skyldu sína að bæta úr eftir niætti, en ekki auka á. Síðara hlut- skiftið velur ritstj. Verkamannsins sér, og fetar þar í fótspor Hriflu-Jónasar og Al- þýðublaðsritstjórans. Aðrir hafa ekki á þetta mál minst í blöðunum. Hér á þing- málafundinum sló megnurn óhug á menn, er tilraun var gerð til þess að koma þessu máli þar að, og samþykti fundurinn 1 einu hljóði, að geta þess livergi í fundargerð- inni. Um mál þetta hafa spunnist hinar L

x

Íslendingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.