Íslendingur - 01.10.1926, Side 3
3
JSLFNDINGUR
\
Hvað eigum við með
Grænland að gera?
Eftir Jón Duason.
(Framh.)
Hvað eiga islenzkir kaupmenn að
gera með Grœnland?
Nu er íslaud ofhlaðið kaupmönnum
og verzlunarmönnum.
Á Grænlandi búa ca. 15 þúsund
manns, en það land á enga verzlunar-
stétt. Búðarlokur einokunarinnar á Græn-
landi eru ekki kaupmenn, og hafa enga
kunnáttu í verzlun, enda mundu þeir
óðara flýja landið, ef það væri opnað
fyrir samkepni.
Fað er ekki hægt að gera sér neina
hugmynd um verzlunarmagn Græn-
lands í framtíðinnl af núverandi verzl-
unarmagni, sem byggist á því, að
landsmenn fá 1 '/3— 4°/o af markaðs-
verði afurða sinna.
Örskjótt eftir að Grænland hefir
verið opnað, má búast við því, að
verzlunarumsetning þess verði ekki öllu
minni en Reykjavíkur nú. Á Græn-
landi er þannig meira en nóg starfs-
svið fyrir sérhvern verzlunarmann, sem
þykir þröngt nm sig á íslandi.
Hafnirnar á vesturströnd Grænlands
frá 62° n. br. og norður að heim-
skautsbaug eru hafíslausar og lagís-
lausar.
Fyrir norðan heimskautsbaug leggur
allan Baffinsflóann. Ennfremur leggur
alt hafið fram með Labrador og alt
suður á Newfoundland, og lokast þar
með allar siglingar og samgöngur við
Hudsonsflóa lön'din, og alt N. Canada.
íslenzkir kaupmenn á vesturströnd
Grænlands geta þar á móti staðið
stöðugt í siglinga-sambandi við um-
heiminn, og er Baffinsflóinn er lagður,
geta þeir þeyst á hreyfisleðum og
snjóbíium vestur yfir Baffinsflóann,
vestur yfir Baffinsland, og vestur um
allar slétturnar fyrir norðan Canada-
skógana, og haft þannig alla verztun-
ina við þessi lönd að vetrinum. En
þegar vorar og ísa Ieysir af sundunum
f Norður-Canada, geta íslenzkir kaup-
menn í Vestribygð verið komnir á
skipum sínum til Norður Canada og
búnir að fylla þessi löndaf vörum, áður
en Bretar geta verið komnir til Græn- •
lands með varning sinn, á leið til
Norður-Canada. Það þarf því ekki
að spyrja um það, hverjir verði hlut-
skarpastir í að ná þessari verzlun.
Og lítum svo ofurlítið lengra fram
í tímann. Næstum því alt Canada eru
óbygðir barrskógar. Fyrir austan
Mackenziefljótið hallar öllu þessu mikla
landi út að Hudsonsflóa, svo að allar
ár falla þar til sjávar. Þegar farið
verður að fella þessa miklu skóga, er
eini útflutningsmöguleikinn á viðnum
sá, að fleyta honum ofan eftir ánum,
og flytja hann síðan á skipum yfir á
fslenzku hafnirnar á Grænlandi, þá
tvo mánuði sumarsins, sem Hundsons-
sundið er fært skipum. Pessa sömu
leið á allur þungavöruflutningur frá
og til Norður- og Vestur-Canada að
ganga, og þess verður ekki langt að
bíða, því að nú er Canadastjórn að
láta byggja feikna mikla járnbraut frá
hveitilöndunum í Vestur-Canada norður
að Hudsonsflóa. Heimsverzlunarborgir
Norður- og Vestur-Canada eiga með
öðrum orðum fyrir höndum að rísa
upp við íslausa firði á vesturströnd
Grænlands, fyrir norðan 62° n. br.,
líklega helzt í Vestribygð.
Hafa íslenzkir kaupmenn og verzl-
unarmenn ekkert að gera n.eð að
tryggja sér og íslenzku þjóðinni þessa
afskaplega miklu framtíðarmöguleika?
(Nl.)
Allskonar
n ý t í z k u
Ullar-Kjólatau, Kjólaskraut, Ball-
kjólatau, Morgunkjólatau, Tvist-
tau, Sængurveraefni, Lakaléreft,
hvítt Léreft, landsins bezta
boldang og afarfjölbreytt úrva!
af prima Flonel, nýkomin til
Baídvin Ryel.
Athugið!
Ágæt Kven-Nærföt á kr.
3,90 settið, Pr/ónaskyrtur,
Sokka allskonar, karlm. og
drg. Peysur, kven- og barna-
Svuntur, fyrirtaks Lífstykki
frá kr. 4,00-13,75. Stærð frá
60 — 90 ctm. Prima Tricotine-
Nærföt og Silki-Langsjöl
fœst nú í fjölbreyttasta úrvali hjá
Baldvin Ryel.
A L L I R, sem eiga hjá mér að-
gerðardót, verða að vera búnir að taka
það fyrir 15. október 1926.
Höskuldur Árnason,
gullsmiður.
Blómlaukar
nýkomnir, beint frá Hollandi, f
Ryels B-deiid.
Hefi í umboðssölu
erfðafeslulönd og eignarlóðir, sem
eru á beztu byggingarstöðum í
bænum.
Magnús Jónsson, bókbindari.
Nýkomið:
Manchettskyrtur, Khakiskyrtur,
Milliskyrtur, fallegar Sparibuxur
á aðeins kr. 9,75 parið, Bindi,
Axlabönd, príma fóðraðir Skinn-
hanzkar, nýkomið í fjölbreyttu
úrvali.
Baldvin Ryel.
Mótor-
Cylinder-
Olíur
Mikið og fjölbreytt úrval affyrsta
flokks ameriskum Mótor-cylinder-
O L í U M.
Verðið sanngjarnt!
Jón E, Sigurðsson.
Verzl. hamborg.
Ný tegund, er
Fílsplástur heitir,
hefir rutt sér braut
um víða veröld.
Linar verki, eyðir
gigt og taki. Fæst í
Lyfjabúðum.
Amtsbókasafnið á Akureyri.
Amtsbókasafnið á Akureyri verður opnað 'priðjudaginn 5. október n.k.
Lestrarsaiurinn er opinn alla daga vikunnar frá kl. 4—7, nema
mánudaga og laugardaga.
Utián frá kl. 4—7, laugardaga og miðvikudaga.
Safnið er lokað alla mánudaga.
Bókavörður.
Lögtak.
*
Ogreidd gjöld til Akureyrarkaupstaðar, aukaútsvör, vatns-
skattur, lóðargjöld, holræsa- og gangstéttagjöld, rafveitugjöld og
hólmaleigur, fallin í gjalddaga 1. apríl þ. á. og áður, verða, sam-
kvæmt beiðni bæjargjaldkerans, tekin lögtaki eftir átta daga frá
birtingu þessarar auglýsingar.
Skrifstofu Eyjafjarðarsýslu og Akureyrar 1. okt. 1926.
Bæjarfógetinn.
Nærsveitamenn,
sem skulda yfirstandandi árg. Islendings eða jafnframt eldri ár-
ganga eru vinsamlega beðnir að gera blaðinu full skil nú í slátur-
tíðinni. •— Blaðið má borga til þessara manna:
Hallgr. Valdemarssonar, Guðjóns Manasessonar,
Sveins Sigurjónss., Jóns Porvaldss. (við Höepfnersverzlun)
og á skrifstofu blaðsins í Strandgötu 29.
Laukur
fæst í
Höepfnersverzlun
Góð eldavél
til sölu.
Fríðjón fensson.
Vetrarstúlku
vanlar mig. Gott kaup í boði.
Margrét Magnúsdóttir,
Túngötu 1.
gera menn bezt kaup á edikssýru
og allskonar kryddi hjá okkur.
Ennfremur á citronolíu, vanilledropum,
möndludropum, anísdropum, karde-
tnommur, ger- og eggjadufti og öðru
kryddi, er til brauðgerðar þarf.
Lyfjabúðin.
Kensla.
Eins og síðastliðinn vetur tek eg
börn og unglinga til kenslu. Einnig
getur komið til mála, að eg gangi í
hús til kenslu.
Mig er að hitta heima f Gránufé-
lagsgötu 19, Akureyri.
Pórir Guðjónsson.
Fæðiogþjónustu
geta 8 — 10 manns (hefir námspiltar)
fengið fyrir kr. 80,00 á mánuði.
Komið gæti til mála um húsnæði á
sama stað. R. v. á.
VinÉYlian Qurora
hentar stórbýlum til sveita. Vandað-
asti og ódýrasti rafmagns mótorinn
á Norðurlöndum. Eins kílóvatfs-
mótor (fyrir fimtíu 16 ljósa lampa)
kostar nú ásamt rafmagnshlöðu (accu-
mulator) fob Kaupm.höfn 2400 (tvö
þúsund og fjögur hundruð) krónur.
— Nánari upplýsingar hjá undir-
rituðum.
Akureyri 1. sept. 1926.
Frímann B. Arngrimsson.
BÆNDUR
til sveita og sjávar, sem ekki hafið
efni á að kaupa sement til húsa, né
til að kaupa útlendan tilbúinn áburð,
notið tækifærið nú í haust, til að safna
beinum, fiskúrgangi og einnig þangi
og þörungum, sömuleiðis sjávarskeljum,
einkum stórum skeljum, þar sem þær
er að finna. fsland geymir öll þau
áburðarefni, er landsmennn þurfa, ef
þeir kunna og nenna að nota þau.
Stórar sjávarskeljar eru 90°/o kolsúrt
kalk, en 509/o hreint kalt, úr þeim
má með litlum tilkostnaði vinna alt
það kalk, sem þarf í steypu fyrir
haugstæði og safngryfjur og með lítið
meiri fyrirhöfn sandkalkstein, sem gef-
ur múrsteini lítið eftir til bygginga.
Aðsjálni fjárveitinganefndarinnar hefir
ekki leyft mér tvö síðustu og leyfir
mér ekki þetta ár að ferðast kringum
landið, til að athuga birgðir af þess-
um efnum. Óska því, að bændur til-
kynni mér skriflega, hvar tiltækilegast
sé að byggja kalkofn, svo brenna megi
50 til 100 smál. af kalki á ári. Góður
ka kofn kostar í Pýzkalandi 5000 mörk
gulls. Mundi kosta nokkuð meira hér
uppkominn. Nánari upplýsingar ef
óstað er.
Akureyri 31. ágúst 1926
F. B. Arngrímsson.
Skólafólk!
Hedebo leikfimisskór eru þeirbeztu,
verðið lækkað, fást í öllum stærðum.
Sent gegn póstkröfu.
M. H. Lyngdal.