Íslendingur - 29.10.1926, Side 2
2
ÍSLENDINOOR
hafa fyrirliggjandi:
Hveiti Baunir Kaffi ,
Hafragrjón Maismjöl Kaffibætir L. D.
Hrisgrjón Hafrar Kakao
Sagogrjón Hænsafóður Súkkulaði
Kartöflumjöl Lybby’s mjólk Qerduft.
fyrir doðanum. Rannsóknir þess-
ara Svía hafa leitt í Ijós, að hið
mikilvæga efni, sem doðakýr vantar,
sé drúusykur eða Glycose. Þess
vegna halda þeir því fram, að doð-
inn stafi af því, að blóðið missi
nauðsynlegt drúusykurmagn sitt
vegna hinnar öru mjólkurmyndunar
rétt eftir burðinn. Það er vitanlegt,
að mjög alvarleg sjúkdómseinkenni
koma í Ijós, þegar sykurmagn blóðs-
ins minkar að mun. Ameríkumað-
urinn Mann færði heim ’sanninn hér
að lútandi. Hann tók lifrina úr hund-
um á nýjan og skjótan hátt. Skömmu
síðar minkaði sykurmagn blóðsins
meir en menn höfðu áður séð, og
dýrin urðu mátt- og meðvitundar-
laus. En af þessum dvala var hægt
að vekja þau aftur, er dælt var drúu-
sykri inn í blóðstrauminn, og þau
virtust frísk, þar til sykurmagnið
þvarr á ný. Samskonar einkenni
gera vart við sig, þegar hormóni
brisins, Insulini, er dælt inn í blóðið.
Það veldur örari brenslu drúusyk-
ursins í vefum líkamans* sem um
leið rýrir sykurmagn blóðsins að
miklum mun. Þegar það rýrnar um
helming frá því venjulega, sem er
0,08%, í rottum, músum og svín-
um, koma í Ijós magnaðir krampar,
síðar meðvitundarleysi og loks dauði.
í hundum og mönnum ber minna
á krömpunum, en þar á móti koma
lamanir og meðvitundarleysi fyr til
greina. Verkunum Insulinsins er
hægt að eyða með því að dæla inn
drúusykri. Það er eftirtektarvert, að
mjólkursykur eða Lactose hefir ekki
sömu áhrif og drúusykurinn. Get-
ur þessi sykurtegund því ekki komið
í stað hinnar. Til sönnunar .þess-
ari kenningu sinni, dældu þeir In-
sulini inn í tvær kýr og í Ijós komu
nákvæm doðaeinkenni að nokkrum
klukkustundum liðnum. Þegarþeim
var slátrað nokkrum klukkustundum
síðar, var sykurmagn blóðsins fallið
úr 0,084 niður í 0,030 og 0,037%.
Margar athuganir benda til þess,
að drúusykur sé nauðsynlegur til
mjólkursykurmyndunar í júgrinu.
Við mjólkurframleiðsluna þarf júgrið
því mikið af drúusykri frá blóðinu.
Drúusykurmagn blóðsins minkar
hlutfallslega við mjólkurvöxtinn.
Nautgripir, sem fóðraðirvoru með
sykurrófublöðum og þeir höfðu til
rannsóknar, sýndu eftirfarandi með-
allag:
Mjólkurmagn Sykurmagn
1 kg. í */»•
Kvíga 0,081
Geldkýr 0,076
6 0,061
8 0,058
10 0,057
14- 0,057
18 0,053
blóðsins
Þessar athuganir sýna, að nythá-
ar kýr hafa hættulega lítið sykur-
magn í blóðinu. Iðulega sést það,
að nytháar kýr, sem ekki hafa alt
of megnt fóður, hafa nálægt 0,040%
sykurmagn í blóðinu, en Insulin-
tilraunirnar sýndu, að doðaeinkennin
komu í ljós við ýfið lægri hundr-
aðstölu (0,030—0,037%). Þá er eftir
að vita, hvort drúusykurmagn blóðs-
ins í doðakúm er eins lítið og syk-
urskortseinkennin heimta. Og mæl-
ingar þeirra hafa sýnt, að svo muni
vera.
Að því er lækninguna áhrærir,
þá áleit Schmidt, eins og áður er
tekið fram, áríðandi að stöðva eit-
urmyndunina, sem hann hélt að
stæði í sambandi við broddinn.
Hann leitaðist við að minka mjólk-
urframleiðsluna með inndælingu í
júgrið og tilganginum varð náð og
reyndist ágæt lækning.
Nú segir próf. Widmark, að þessi
aðferð eigi einmitt heima við sína
kenningu og tekur þar til stuðnings
máli sínu eftirfarandi mælingar próf.
Bang’s. Ef maður dælir lofti inn í
júgur á hraustri og nythárri kú,
eykst drúusykurmagn blóðsins að
miklum mun rétt á eftir.
Undan loftinndæl. 0,046°/o sykur I blóð.
Rétt á eftir — 0,087 -
15 mín. — — 0,089-
30 — — — 0,130-
45 _ _ _ 0,060-
60 - — - 0,062-
75 - — - 0,062-
90 - - — 0,062-
Loftinndælingin er þannig eftif
verkun sinni að dæma hliðstæð inn-
dælingu drúusykurs í blóðið. Sam-
kvæmt þessari skoðun ætti þá drúu-
sykur, sem dælt er inn í blóðið, að
gera sama gagn og loftinndæling f
júgrið. Tilraunir þeirra próf. Wid-
mark’s og Carlsen’s hafa þá og sýnt
og sannað, að svo er, meira að segja
virðist drúusykursinndælingin hafa
skjótari áhrif, því að kýrnar hafa
staðið upp innan klukkutíma frá
inndælingu.
Þegar hér er komið, álítur próf.
Widmark ekki ómögulegt, að í fram-
tíðinni sé hægt að koma í veg fyrir
doða. Hann segist geta hugsað sér,
að ráðin til þess yrðu þau:
í fyrsta Iagi að sjá um, að síð-
ustu dagana fyrir og fyrstu vikurn-
ar eftir burð fái nytháar kýr auð-
melt kolvetni í ríkum mæli, með því
að gefa þeim sykurrófur eða ca. 50
gr. drúusykurs daglega. í öðru
lagi gæta þess, að nythæðin aukist
ekki of hratt fyrstu dagana eftir
burðinn og er það bezt með gæti-
Iegum mjöltum.
Sig. Ein. Hlíðar.
<§><§>
Símskeyti.
(Frá Fréttastofu íslands.)
, Rvík 28. okt.
Útlend:
Frá London er símað, að Bald-
win forsætisráðherra hafi í þing-
ræðu sinni lýst því yfir, að hann
teldi þýðingarlaust, að stjórnin gerði
nýja sáttatilraun í kolanámudeilun-
um og vonlítið væri, að friður kæm-
ist á bráðlega. Kvaðst óánægður
með framkomu beggja málsaðila.
% miljón manna vinna nú í nám-
unum.
Frá Brussel er símað, að stjórnin
hafi ákveðið verðfesting gjaldeyrisins.
Hefir hún tekið 100 miljón dollara
verðfestingarlán og lögleitt nýja
gullmynt, kallaða »belga«, er jafn-
gildir 5 frönkum.
Frá London er símað, að enskt
herskip hafi farist Lofsaveðri við
Bermudaeyjar. Druknuðu 84.
Innlend.
Fiskverð fer hækkandi á Spáni.
Fiskbirgðir litjar.
Þór tók nýlega þýzkan togara í
Iandhelgi. Fékk hann 12,500 króna
sekt og afli og veiðarfæri upptækt.
ísfiskssala fer batnandi.
Opna feréfifi
Dags-ritstjórans.
Þau undur gerðust hér kosninga-
dagsmorguninn, að ritstjóri Dags gaf
út »Opið bréf til útgefenda
fslendings«. Aðal-tilefni til þess-
arar bréfs-útgáfu voru ræðukaflar þeir,
er birtust í íslendingi deginum áður
og eignaðir frambjóðandanum Jóni á
Yztafelli. Segist ritstjóri Dags hafa átt
símtal við Jón og hafi hann Iýst kafl-
ana »uppspuna*. Ber rilstjórinn svo
ritstj. ísl á brýn r i < f a 1 s, er sé svo
stórvægilegt, að gangi næst »skjala-
f a 1 s i«. Sé það virðingu(I) sinni
ósamboðið að ræða málið við mann,
sem slíkt verk fremji, og snui hann
sér því til útgefendanna, og heimti
staðfesta heimild ummæianna.
Nú telja útgefendur ísl. það virð-
ingu sinni ósamboðið að e'ga orða-
stað við mann eins og ritsljóra Dags,
— mann, sem ekki svífist að gera til-
raun til mannorðsmorðs og Ijúgi upp
sökum á andstæðinga sína, er' honum
byði svo við að horfa, eins og t. d.
því, að andstæðingar Magnúsar Krist-
jánssonar hafi borið honum (M. Kr.)
á brýn í kosningunum 1923, að hafa
stolið úr sjálfs síns hendi fé Lands-
verzlunar. Maður, sem þannig berjist,
verðskuldi ekki annað en fyrirlitningu
og hana djúpa og ómengaða.
En þar sem það er nú einu sinni
verksvið ritstj. fsl. að gera Degi skil,
eftir því sem ástæður þykja, og með
því að hann hér er ærumeiðandi sök-
um borinn, verður ekki komist hjá
því, að svara »opna bréfinu*. En
að þessu sinni verður það aðeins slutt
bráðabirgða-svar til þess að skýra
aðstöðu blaðsins til »ræðu kaflanna«.
Blaðinu voru sendir þessir ræðu-
kaflar af mætum og merkum Þingey-
ing og hafði það ekki hina minstu
ástæðu til að efast um sannleiksgildi
þeirra og gerir það ekki enn. Það
hefir komið oftar en einu sinni fyrir,
að menn hafa látið orð falla í ræðum,
sem ,þeir svo eftir á vildu ekki kann-
ast við, er þeir urðu þess áskynja, að
þau rnyndu baka þeim óþægindi. —
íslendingur á nú með Esju von á gögn-
um í málinu frá heimildarmanni sín-
um. Hvað svo sem þau koma til að
sýna, þá munu þau að minsta kosti
sanna það, að ræðukaflarnir eru ekki
búnir til af ritstj. ísl. og að bann er
alsaklaus af rit- og skjalafals-aðdróttun-
um Dags-ritsjórans.
Og enginn blaðamaður er ámælis-
ve^ður fyrir það, þótt hann láti blað
sitt flylja punkta úr ræðum manna,
frásagnir af fundum, fréttir og annað
því um likt, sem honum kann að ber-
ast, frá mönnum sem hann skoðar
trúverðuga og hefir ekki reynt að
öðru en góðu, þó ekki fylgi jafnframt
staðfest vottorð um, að satt og rétt sé
hermt.
í næsta blaði mun »opna bréfinu«
svarað nánar.
Með e. s. Island kom:
Appelsínur
Epli
Perur
Vínber
í Söluturninn á Oddeyri.
Taurúlla
með tækifærisverði fæst hjá
E. Einarssyni.
Tricotine deiiiulijólaiiir
ódýru — margeftirspurðu, eru nú
komnir aftur í
Gudmanns Eftirfl. verzlun.
Radiomóttakari
með öllu tilheyrandi er ti[ sölu með
tækifærisverði. R- v. á.
SaltaðurfuglfráGrímsey,
Sigluneshákarl,
saltfiskur og margt fleira, sem gott
er fram að reiða, fæst hjá
E. Einarssyni.
Tóbaksvörur
Reyktóbak, margar teg.,
Neftóbak,
Munntóbak
er bezt að kaupa í
Bröttuhlíð.