Íslendingur


Íslendingur - 12.08.1927, Page 1

Íslendingur - 12.08.1927, Page 1
XIII. árgangur. Akureyri/ 12. ágúst 1927. 35. tölubl. Geir SæMundsson vígslubiskup. Fæddur 1. sept. 1867. — Dáinn 9. ágúst 1927. Hann lézt á heimili sínu hér á Akureyri kl. ÍO'A á þriðju- dagsmorguninn, eftir rúmlega tveggja vikna legu í hjartasjúkdómi. — Dagana næstu á undan hafði heyrst, að hann væri á góðum batavegi og kom því fráfall hans flestum á óvart. Geir Stefán — svo hét hann fullu nafni — Sæmundsson var fæddur í Hraungerði í Árnessýslu 1. september 1867 og vantaði því 3 vikur upp á að vera sextugur, er hann lézt. Foreldrar hans voru Sæmundur Jónsson prðfastur í Hraungerði og kona hans Stefanía Sigurgeirsdóttir prests á Skeggjastöðum Pálssonar. — Hann kom í Reykjavíkurskóla 1881 og var útskrifaður þaðan 1887 með 1. einkunn. Sigldi samsumars til háskólans og tók próf í heimspeki árið eftir með 1. eink. og hebrezkupróf sama ár einn- ig með 1. eink. — Prófi í guðfræði lauk hann 1894 með II, betri einkunn. Hvarf svo heim til íslards og var við kenslustörf í Reykjavík og Seyðisfirði þar til honum var veittur Hjaltastaður í Eiðaþinghá 23. jan. 1897 og var hann prestvígður þangað 11. maí s. á. — Akureyrarprestakall var honum veitt 8. júní 1900 og fluttist hann liingað þá um sumarið og hefir heimilið verið hér síðan. Prófastur í Eyjafjarðarsýslu var hann skipaður 8. júní 1907 og kjörinn vígslubiskup af prestum hins forna Hólastiftis 1909. Var hann vígður til þess enibættis í Hólakirkju 10. júlí 1910 af Pórhalli biskup Bjarnarsyni. — í skólanefnd Akureyrar átti séra Geir sæti um mörg ár og var jafnan formaður hennar. Hann var bæði riddari af Dannebrog og Fálkaorðunni. — Kvæntur var hann Sigríði dóttur Jóns háyfirdómara Péturssonar. Eignuð- ust þau 3 börn, — hið elsta, Sæmundur, dó 1904, sjö ára gam- all, en hin tvö, Heba og Jón stúdent, eru uppkomin og voru við banabeð föðursins. Konu sína misti séra Geir 23. okt. 1923, eftir langvarandi vanheilsu. Séra Geir var mætur maður og merkur. Flann var annál- aður söngmaður og sönglistin var yndi hans og sæla, þótt ástæð- urnar leyfðu ekki, að hann helgaði henni lífsstarf sitt. Hér á Akureyri var aðal-lífsstarf hans unnið í prestsembættinu og hér mun minning hans geymd með virðing, aðdáun og hlýhug, Hann var kennimaður góður og rækti köllun sína með stakri samvizkusemi. Fáir kunnu sem hann að fagna rneð fagnendum og hryggjast með hryggjendum; — mannúð, ljúfmenska og drenglund voru meginþættirnir í líferni hans, — og það lýsti af honum hvar sem hann var. Pess vegna er bjart yfir minningu fians. Gullskráning skulda og inneigna. Eftir Sigurjón Jónsson lœknir. i (Niðurlag.) Eg sé ekki betur, en að þetta fyairkomulag hafi aðalkosti stýfing- ar eða verðfestingar, en sé laust við hennar miklu ókosti, sem áður hafa verið nefndir. Pað mundi að vísu ekki bæta úr því ranglæti, sem þeg- ar er orðið í skuldaskiftum manna, en það mundi stýfingin ekki heldur gera. En það mundi, eins og stýfing- in, koma í veg fyrir frekara rang- læti en orðið er, og það mundi, eins og hún, koma í veg fyrir óeðlilega gengishækkun af völdurn erlendra gróðabrallsmanna. Mótbárur þær, sem komu fram móti þessu fyrir- komulagi, er eg hélt því fram á fram- boðsfundum hér nýlega, voru flestar ótrúlega léttvægar og iýstu miklu trausti á þroskaleysi kjósenda. T. d. sú, frá ritstjórá Dags, er elíi frambjóðendur Framsóknarflokksins á fiesta fundina (sbr. »eltir hvern, sem gefur honum«) og fékk þar fyrir bænastað sinn að auglýsa fá- visku sína og mont, að fjármála- fræðingar á Norðurlöndum væru ósammála um ýms atriði, er snerta gengismálið, og meðan svo stæði, væri ekki til neins að ræða það. Önnur höfuðmótbára hans var sú, að þessi hugmynd væri upphaflega frá Vilhjálmi á Bakka; það er satt, að Vilhj. skrifaði grein um gengis- málið, er kom í Degi um jólaleytið í hitteð fyrra og mér hafði sést yfir,. en þar var lagt til, að reikna allar þáverandi skuldir og inneignir með því gengi, er var á hverjum tíma þegar til þeirra var stofnað; þetta er nokkuð annað en hér er lagt til, og að vísu næðist með því enn fyllra réttlæti, en það yrði því miður víst. alveg óframkvæmanlegt. Annars er ekki vel skiljanlegt, að það væri gild ástæða gegn nokk- urri hugmynd, þótt hún væri frá Vilhj. á Baklca, því að hafa skal holl ráð hvaðan sem þau koma. Pá var það ein mótbáran, að með þessu væri gengismálið ekki Ieyst til hlýtar. Mér sýnist sú mótbára álíka viturleg og ef því væri haldið fram, að ekki væri til neins að kemba ull né spinna, af því að það bætti ekki til hlýtar úr fatnaðarþörfinni. Pessar og þvílíkar mótbárur koma í rauninni ekki ná- lægt kjarna málsins. Nær sanni, en lítiisvirði þó, er sú mótbárá, er má hugsa sér frá skammsýnum innstæðueigendum, að þetta fyrirkomulag svifti þá þeim gróða, sem þeir gætu haft afgeng- ishækkun. En til þess gróða hafa þeir ekkert unnið, svo að þeir yrðu engum réttmætum gróða sviftir. Og alveg eins og gullskráningin mundi svifta þá óréttmætum gróða af gengishækkun, mundi hún firra þá óréttmætu tapi, ef gengið'skyldi lækka. Pá er sú mótbára hugsanleg af hendi skultíunauta, að gullskráningin kæmi í veg fyrir skuldalækkun, ef gengið skyldi lækka. Vitanlega, ekki verður bæði slept og haldið. En skuldalækkun vegna gengis- lækkunar er jatn óréttlát og skulda- hækkun vegna gengishækkunar. Pess ber og vel að gæta, að ef gengi lækkar, þýðir það að öðru jöfnu hækkað afurðaverð, svo að framleiðandinn þarf ekki að eyða meiru en ella af búsafurðum sínum til að borga skuld, er hækkar að nafninu til vegna gengislækkunar, ef raunverulegt gildi hennar er óbreytt. Annars eiga báðar þessar mótbárur alveg eins við stýfingu, ef hún tækist, því að henni er ætlað að koma í veg fyrir röskun inn- eigna og skulda vegna gengis- breytinga. Priðja teljandi mótbáran er sú, að þeir fái samt óréttmætan gróða, sem eiga fé inni frá þeim tíma, er gengi var lægra en nú, og þeir verði fyrir ranglátu tapi, sem tóku lán á sama tíma. Satt er það, en sama yrði uppi ef stýft væri. Og jeg býsí við, að ókieift verði, að róta svo í gömlum skuldaskiftum, að alt rétt- læti verði uppfylt, En að ekki megi hætta við rangindin og reyna að að gera rétt framvegis aí því, að áður hafi einhverjir verið órétti beittir, sem ekki er unt að bæta úr — það er mótbára, sem tæpast verður gert ráð fyrir, að neinn haldi fram í alvöru. Pá mótbáru hefi eg enn heyrt, að ríkið muni tapa á lánum þeim, sem það hefir nýlega tekið erlendis til að kaupa ræktunarsjóðsbréf og veð- deildarbréf, ef gullskráning kæmist á. Já, víst mundi það tapa og ætti að tapa þeim óréttmæta gróða, sem það fengi vegna gengishækkunar á kostnað skuldunautánna að núver- andi ásíandi óbreyttu, en engum eyri mundi það tapa af fé því, er það hefði fengið lánað eða ábyrgst, svo framarlega sem gengi íslenzkrar krónu væri ekki lægra, þegar guil- skráning hefst en þegar útlenda lánið var tekið. Setjum enn, að gengið sé 80 þegar lánið var tekið. Til þess að kaupa jarðræktarbréf eða bankavaxtabréf fyrir 1000000 ísl. seðlakrónur, þarf þá ekki ríkið að fá lánaðar nema 800000 guilkrónur eða þeirra virði í útlendum gjald- eyri, og jafnvirði þessara 800000 gullkróna í ísl. seðlum fær ríkið borgaðar hjá lántakendum, ef bréf- in eru skráð með gullverði — annars 1000000' seðlakrónur, sem enginn veit hvers virði eru, geta orðið jafnvirði sömu upphæðar í gulli, og þá ranglátur og þungbær skattur á lántakendum, en geta líka orðið minna virði í gulli en lánið var upphaflega, og þá yrði ríkið fyrir óverðskulduðu tapi, er mundi leiða til aukinna álaga á Iandsmenn yfirleitt. Pá er sú mótbára, að bankarnir mundu tapa á gullskráningunni. Nú starfa bankarnir aðallega með

x

Íslendingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.