Íslendingur - 25.05.1928, Page 1
Talsími 105.
XIV. árgangur.
Ritstjóri: Gunnl. Tr. Jónsson.
Akureyri, 25. maí 1928.
Strandgata 29.
22. tölubl.
akureyrar bio
2. hvítasunnudagskvöld kí. S1/?:
ENDURGJALDIÐ.
7 þátta kvikmynd, tilkomumikil og afburðavel leikin.
Aðalhlutverkin Ieika:
Mary Prevost og Monte Blue.
Samtök alpfðunnar.
Verkamaðurinn síðasti er að fræða
lesendur sína á því, að þegar íhaldið
út um heiminn og hjer heima tali
um kommúnista og bolsa, þá eigi
það við »samtök og samstarf al-
þýðunnar*. — Petta er afar-villandi
staðhæfing. Að sva miklu leyti sem
kommúnista-samtökin geta kallast
samtök alþýðunnar, er þetta rjett,
en alrangt, ef gengið er út frá því,
að þetta sje flokkun íhaldsins á sam-
tökum og samstarfi alþýðunnar yfir-
leitt. Yfirgripsmestu samtök verka-
lýðsins eruutan kommúnista-samtak-
anna: jafnaðarmannaflokhar hinna
ýmsu landa, er vilja engin mök við
kommúnista eiga og hafa þurkað
þá af sjer. Við þá verklýðsflokka,
sem starfa á þingræðisgrundvelli á
bolsa- eða kommúnista-nafnið ekki;
— aðeins þá flokka, sem bylta vilja
núverandi þjóðskipulagi án þess að
fara þingræðisleiðina.
Og þegar litið er til annara landa,
þá sýnir það sig, að hvarvetna þar,
sem verkalýðssamtökin eru Iengst
á veg komin, á kommúnista-hreyf-
ingin örðugast uppdráttar, og þótt
hún í svipinn hafi náð nokkurri út-
breiðslu, hefir hún gengið í sig aft-
ur og má sín nú lítils í þeim lönd-
um öllum. Svo er það f Svíþjóð,
Danmörku, Bretlandi, Þýskalandi og
Frakklandi. — Orð hins spaka jafn-
aðarmannaforingja Svíanna, Hjalmars
heitins Brantings, að »kommúnism-
inn væri eiturnaðra á þjóðfjelags-
Iíkamanum« hafa í Ijósi reynslunnar
sýnt sig hafa sígildan sannleika að
færa. Og hvergi á alþýðan við öm-
urlegri kjör að búa en þar, sem
kommúnisminn hefir náð völdunum
og hvergi ríkir önnur eins harð-
stjórn. — Jarðvegurinn fyrir kom-
múnismann hefir verið bestur þar,
sem fáfræðin og kúgunin hefir verið
mest, — í lýðfrjálsum siðmenning-
arlöndum hefir jarðvegurinn verið
ófrjór. — En Alþýðuflokksleiðtog-
unum íslensku finst samt sem hjer
ætti að vera góður jarðvegur fyrir
hann og telja hann heillavænlegustu
j>samtök alþýðunnar*. Er svo að
sjá, sem þeir álíti, að rússnesk stjórn-
arfarsfyrirmynd henti þjóðinni best,
og að henni hæfi best að skipa
bekk með fáfróðustu og kúguðustu
þjóð álfunnar — o'g hlíta ríkisfor-
sjón í öllu.
Vkm. birtir tvær frjettaklausur úr
Morgunblaðinu, þar sem sagt er frá
viðleitni tveggja ríkjastjórna til þess
að stemma stigu fyrir útbreiðslu
kommúnismans f ríkjunum. M. a.
er sagt frá því, að gríska stjórnin
ráðgeri að svifta þá embæltismenn
ríkisins embættum, sem reki erindi
kommúnista. Þetta kallar Vktn. »of-
sóknaræði íhaldsins gegn umbóta-
mönnum þjóðanna«. Öllu má nafn
gefa, en þess verður að gæta, að
flestum enibættum er þannig hátt-
að, að starfsvið þeirra er að við-
halda ríkjandi þjóðskipulagi. — Em-
bættismennirnir eru helstu stoðirn-
ar, sem löggjafarvaldið setur til að
halda því uppi. Finst mönnum það
nú ódæði, þótt þeim embættismanni
sje vikið frá embætti, sem þverbrýt-
ur svo embættiseið sinn, að hann
gengst fyrir að bylta því þjóðskipu-
lági, sem hann hefir tekið að sjer
að þjóna?
Þótt einkennilegt kunni að þykja,
er svo að sjá, sem Vkm. með þess-
um tilvitnunum sínum í ráðagerðir
grísku og japönsku stjórnanna við-
víkjandi kommúnistum, sje að leiða
fram samanburð milli þeirra og rík-
isstjórnarinnar íslensku, og vilji
rjettlæta gerðir hennar með ásetn-
ingi hinna. Það, sem blaðið vill
með berum orðum segja, er þetta:
Er það nokkuð meira, þótt Jónas
frá Hriflu og meðstjórnendur hans
ofsæki andstæðinga sína, boli þá úr
stöðum og sýni hlutdrægni í em-
bættaveitingum, heldur en að íhalds-
stjórnir Grikkja og Japana ofsæki
kommúnista og svifti þá stöðum.
Langt er seilst eftir samanburðin-
um, og það til þjóða, sem ekki hafa
orð á sjer fyrir tiltakanlega frjáls-
legt stjórnarfar. En þó er munur-
inn mikill. íslenska stjórnin er eið-
bundin að halda uppi núverandi
þjóðskipulagi ogandstæðingar henn-
ar, íhaldsmenn, því einhuga fylgj-
andi. — Stjórnir Grikkja og Japana
eru eiðbundnar að halda uppi þar-
ráðandi þjóðskipulagi; kommúnistar
vilja bylta því. — Af íslenskum í-
haldsmönnum í embættum getur
þjóðskipuiagi því, sem stjórnin á að
varðveita, ekki stafað hætta, heldur
traust.; af kommúnistum í embætt-
um á Grikklandi eða Japan stafar
þjóðskipulagi þeirra landa hætta.
Hjer er því ólíku saman að jafna.
Framkoma Jónasar frá Hriflu verð-
ur ekki rjettlætt með dæmum nær
eða fjær. Því þó að harðstjórnar-
höfðingjar hafi farið líkt að ráði sínu
bæði fyr og síðar, þá hefir fslenska
þjóðin ekkert haft af því að segja
nú um langan aldur, og úr stjórn-
arfarssögu hennar á að sækja for-
dæmin, en ekki til Rússa eða
Portúgala.
oo
Síldareinkasalan.
Verkamaðurinn, 40. tbl., skýrir frá
því, að til >Einkasölu íslands< hafi
verið tilkynt söltun og kryddun, sem
nemur 360 þús. tunnum.
Þetta telur blaðið sem fullgilda sönn-
un þess, að útgerðarmenn beri gott
traust til einkasölunnar.
En slíkt er alls ekki. Meiri hluti
síldarútvegsmanna er algerlega á móti
einkasölunni. Þeir bera hið mesta
vantraust til hennar og horfa mjög
kvíðandi til sutnarsins.
Vantraust útgerðarmanna byggist á
því, meðal annars, að einkasalan hefir
erigan umráðarjett á síldarverksmiðjum
,og eigi heldur reksiursfje.
Ennfremur að meiri hluti nefndar-
innar og framkvæmdastjóranna eru
menn, sem eru mjög lítt vanir síldar-
sölu, síldveiðum eða síldarverkun.
Vali meiri hluta þessara manna hefir
að mestu ráðið stjórnmálaskoðanir
þeirra, en þekking og reynsla, sem
nauðsynleg er þessum störfum þeirra,
hefir minna verið um hirt.
Hin rjetta og sjálfsagða undirstaða
hefir því hjer alls ekki verið lögð til
grundvallar. Og þegar slíkt á sjer
stað og það um jafn þýðingarmikið
mál se*m' þetta, þá er alls ekki við
góðu að búast.
Það virðist sem svo, að það sje
næst skapi meiri hluta nefndarinnar,
að virða að vettugi óskir síldarútvegs-
manna. Meiri hluti nefndarinnar hefir
neitað þeirri beiðni fjölda síldarútvegs-
manna, að ráða hr. útgerðarm. Ás-
geir Pjetursson sem framkvæmdastjóra.
Fullgildar ástæður fyrir þessari synjun
meiri hlutans munu verða vandfundnar.
Síldarútvegsmenn' fá hjer alls engu
ráðið. Þeir verða að standa og sitja
eins og nefndinni þóknast," nefndinni,
sem þeir verða þó að mestu að greiða
og standa sem ábyrgingar fyrir. Á
kostnað síldarútvegsmanna er nefndinni
mjög Ijúft, að ráða framkvæindastjóra
fyrir 12 og 15 þús. kr. árslaun. En i
að taka tillit til vilja þeirra er henni
óljúft.
Þeir, er að mestu bera alla ábyrgð-
ina, fá engu ráðið. Hinir, sem alls
enga ábyrgð bera, fá öllu ráðið. Hjer
gefur á að líta lítilsháttar spegilmynd
af hinu ríkjandi rjettlæti jafnaðarmanna.
Þegar jafn mikið órjettlæfi og ósann-
girni á sjer stað sem hjer, þá getur
engan undrað, þótt síldarútvegsmenn
beri lítið traust til einkasölunnar.
Svo ramt hefir að vantraustinukveðið,
að sá útgerðarinaður, er hefir staðið
við hlið jafnaðarmanna og barist með
þeim til að koma einkasölunni á, felur
sig ekki geta greitt sama verð fyrir
síld t'l söltunar sem alment samnings-
verð í fyrra.
Tilboð hans í söltunarhæfa síld er
20°/o lægra en alment samningsverð
síðastl. ár.
Eiigum mun þó vera kunnugra um
sölumöguleika einkasölunnar en ein-
mitt þessum manni. Þetta bendir ekki
til þess, að byrlega blási.
En það eru fleiri en útgerðarmenn,
er vantreysta einkasölunni. Og sem
dæmi skal þess getið, að Siglufjarðar-
kaupstaður hefir nú þegar leigt út sölt-
unarstöðvar sínar fyrir alt að helmingi
lægri leigu en undanfarin ár. Sú á-
stæða, er liggur til grundvallar fyrir
hinni mjög svo niðurfærðu leigu, er
óttinn við litla söltun og kryddun.
Og enn bíða söltunarstöðvar á Siglu-
firði óleigðar.
Það, sem orsakar hið mikla fram-
boð til einkasölunnar, sem Vkm. gum-
ar svo mjög af, stafar ekki af tiltrú út-
gerðarmanna til hennar, heldur af á-
stæðum þeim, sem hjer greinir:
Útgerðarntenn, er stunda ætluðu síld-
veiðar í sumar, höfðu aðallega um
tvent að velja, fram að þeim tíma, er
framboðsfrestinum til einkasölunnar
lauk: Það var að salta sjálfir og til-
kynna einkasölunni söltun sína eða þá
að láta fyrirberast úti á hafinu og selja
þar veiði sína eða salta. — Um sölp
á nýrri síld var ekki að ræða, svo að
teijandi gæti talist. Engin síldarbræðslu-
verksmiðja var farin að birta kauptil-
boð í síld og óafráðið, hve margar
þeirra yrðu starfræktar. Í þrefi miklu
stóð með Krossanesverksmiðju og að-
eins vissa fyrir um eina verksmiðju á
Siglufirði, sem yrði starfrækt. Um
verksmiðjurnar á Dagverðareyri og Rauf-
arhöfn benti alt til, að þær yrðu ekki
starfræktar.
Þegar því aðallega var um þetta
tvent að velja, tóku flestir útgerðar-
menn þann kostinn, að salta sjálfir og
fela sig forsjá einkasölunnar, — en
nauðugur mun margur þeirra hafa
gert það.
5. J. Hjaltalín.
oo
IBIBII Nýja Bíó ■■■■■!
2. hvítasunnudagskv. kl. 8'/s:
Svika-miðlarnir.
7 þátta mynd. Aðalhlutv. leika:
Aileen PringleosConway Tearle
Mynd þessi hefir vakið fram-
úrskarandi eftirtekt.þar sem hún
hefir verið sýnd. Er afarspenn-
andi og tilkomumikil.
Margskonar dularfull fyrirbrigði
úr andaheimi.
Aukamynd
í 2 þáttum,
Litli og Stóri,
sprenghlægileg að vanda.