Íslendingur - 31.05.1929, Page 1
ISLENDINGUR
Talsími 105.
Ritstjóri: Gunnl. Tr. Jónsson.
Strandgata 29.
XV. árgangur.
Akureyri, 31. maí 1929.
22. tölubl.
Akureyrar Bíó
Sjálístæðisflokkur. | Auglýsingin
á 3
íhaldsflokkurinn og Frjálslyndiflokkurinn
sameinast undir einu merki.
Jslatid fyrír íslendinga."
Rað hefir orðið að samkomulagi milli þingmanna íhaldsflokks-
ins og Frjálslyndaflokksins að ganga saman í einn flokk, er beri
nafnið Sjdlfstœðisflokkur. — Aðal-stefnumál flokksins eru:
1. Að vinna að því, að ísland taki að fullu öll sín mál í sín-
ar eigin hendur og gæði jandsins til afnota og umbóta
fyrir landsmenn eina, jafnskjótt og 25 ára samningstíma-
bil sambandslaganna endar.
2. Að vinna í innaniandsmálum að víðsýnni og þjóðlegri
umbóíastefnu á grundvelli einstaklingsfrelsis og atvinnu-
frelsis, með hagsmuni allra stjetta fyrir augurn.
Flokkurinn hefir fyrirfram trygt sjer stuðning fjölmargra áhrifa-
manna utan þings úr Frjálslyndaflokknum og íhaldsflokknum og
leyfir sjer að óska eftir, að þeir kjósendur úr báðum flokkum,
sem ekki hefir náðst til, vilji veita Sjálfstæðisflokknum stuðning
sinn.
Málefnum flokksins milli þinga stýrir sjö manna miðstjórn,
og skipa hana: Jakob Möller, Jón Olafsson, Jón Porláksson,
Magnús Guðmundsson, Magnús Jónsson, Ólafur Thors, Sigurð-
ur Eggerz. — Innan miðstjórnarinnar starfar þriggja manna
framkvæmdarráð, þeir: Jón Þorláksson, Magnús Guðmundsson,
Sigurður Eggerz.
Reykjavík, 25. maí 1929.
Björn Kristjánsson Einar Jónsson Halld. Steinsson
1. þm. GuIIbr. & Kjós. 1. þm. Rang. þm. Snæfellinga.
Ingibjörg H. Bjarnason Hákon Kristófersson
2. landskjörinn. þm. Barðstrendinga.
Jakob Möller Jóh. P. Jósefsson Jóh. Jóhannesson
bankaeftirlitsm. þm. Vestmannaeyja. þm. Seyðfirðinga.
Jón Auðunn Jónsson Jón Ólafsson Jón Sigurðsson
þm. N.-ísf. 3. þm. Reykv. 2. þm. Skagf.
Jón Þorláksson Jónas Kristjánsson
3. landskjörinn. 5. landskjörinn.
Magnús Guðmundsson Magnús Jónsson Ólafur Thors
1. þm. Skagf. 1. þm. Reykv. 2 þm. G. & Kjós.
Sigurður Eggerz Pjetur Ottesen
þm. Dalamanna. þm. Borgfirðinga.
Eins og getið hefir verið um hjer
í blaðinu áður, samþykti Landsfund-
ur fhaldsmanna að breyta um nafn
á íhaldsflokknum, en fól að öðru
leyti miðstjórn flokksins að annast
málið. Var helst búist við, að
nafnbreytingin gæti ekki komist í
framkvæmd fyr en á næsta Lands-
fundi flokksins, en eins og tilkynn-
ingin að ofan ber með sjer, hefir
þetta orðið fyr en varði — og á
þann hátt sein best mátti verða:
sameining flokksins við Frjálslynda-
flokkinn undir nafninu Sjálfstæðis-
flokkur.
ísl. er það óblandin ánægja að
þessi urðu málalokin — sameining-
in og nafnið. Undanfarið hafa það
frekar verið mennirnir en málefnin,
sem skildu flokkana, og er það
vissulega vel farið, að gamlar vær-
ingar hafa verjð látnar falla niður
fyrir nauðsyninni til samtaka, — og
nafnið g?t ekki verið ákjósanlegra.
— Sjátfstæðisflokkurinn gamli barð-
ist fyrir pólitísku sjálfstæði þjóðar-
innar, Sjálfstæðisflokkurinn nýi berst
jafnframt fyrir sjálfstœði einstakling-
anna í þjóðfjelaginu. Flokkurinn
vill að Iandsmenn fái notið sem
fullkomasts frelsis til verslunar og
hverskonar annars lögmæts atvinnu-
reksturs og að einstaklingsframtak--
ið fái að geta notið sín sem best,
en þær stefnur vaða nú uppi í land-
inu, sem gera einstaklingana ómynd-
uga og ófrjálsa í þessum efnum,
verði þær ofan á. — Á móti þeim
ófagnaði berst Sjálfstæðisflokkurinn.
Hann vill að hjer búi frjálsir og
sjálfstæðir menn í frjálsu og sjálf-
stæðu landi, en ekki ófrjáls og ó-
myndug hjú eða þý, er lúti ríkis-
forsjóninni í öllu og alveg upp á
hana komin, eins og er vilji þjóð-
nýtingarmanna, — jafnaðarmanna-
burgeisanna.
Verkamanninum er meinilla við
flokkasameininguna og þó einkum
nafn flokksins. Óskapast blaðið
mjög út af því og segir, að nafnið sje
»stolið« og að flokkurinn hafi framið
»Iíkrán«, er hann tók sjer það. —
Framsóknarflokkurinn tók sjer nafn
er gömlu Valtýingarnir báru. Eftir
kenningu Vkm. hefir flokkurinn
við nafntökuna framið bæði »stuld«
og »Iíkrán« og hefir þó enginn orðið
þess var, að það hafi orðið flokkn-
um til álitshnekkis, en nú hefir
Sjálfstæðisflokkurinn hvorki »stolið«
eða »rænt« nafni sínu, heldur hafði
til þess fylsta rjett, svo að Vkm.
hefir enga átillu fyrir brigslyrðum
sínum.
Pví það er ekki einasta að nafn-
ið er rjettnefni á flokknum, sakir
stefnu hans, heldur er honum gefið
það af þeim mönnum, er umráða-
rjettinn höfðu yfir því, foringjum
Sjálfstæðisflokksins gamla. Sigurður
Eggerz var leiðtogi flokksins um
10 ára tímabil, og Jakob Möller einn
af helstu mönnum flokksins frá
stofnun hans; 10 af þeim 18 mönn-
um, er undirrita tilkynninguna hjer
að ofan, eru gamlir Sjálfstæðismenn.
Pess utan má benda á það, að af
hinum kjördæmakosnu þingmönn-
um flokksins sitja allir, nema einn,
á þingi fyrir gömul Sjálfstæðiskjör-
dæmi. Sjálfstæðisflokkurinn er því
rjettilega borinn til nafnsins.
Pá heldur Vkm. þeim staðlausu
ósannindum fram, að flokkurinn sje
myndaður af fámennri »yfirstjettar«-
klíku f Reykjavík. Allur þingflokk-
ur íhaldsins og fulltrúar Frjálslynda-
flokksins standa að flokksmyndun-
inni, eins og tilkynningin ber með
sjer, og fjöldi áhrifamanna úr báð-
um flokkunum út um land hafa
verið í vitorði og ráðum með, í því
er gerðist. — Sjálfstæðisflokkurinn
ber hagsmuni allra stjetta þjóðar-
innar fyrir augum; ekki einnar eða
neinnar sjerstakrar klíku.
Og þess þykist ísl. fullviss, að
þjóðin íslenska fagnar þessari flokks-
myndun. Hún veit, að þar er merki
reist og borið fram, sem hún getur
örugg fylkt sjer undir, gegn þeirri
skaðsemdarstefnu, sem siglir undir
hinum rauða fána byltingarinnar og
— ófrelsisins.
Vertíðarlok.
Yfirlit yfir þingstörfin.
(Framh.)
Fjárlögin fyrir árið 1930 sýna að
nafninu til kr. 22,175,00 tekjuafgang.
Eru tekjurnar reiknaðar kr. 11,929,-
600,05, gjöldin kr. 11,907,424,05, en
raunverulega er gjaldabálkurinn
miklu hærri, því að í 23. gr. fjár-
laganna eru ýmsar upphæðir heim-
ilaðar til útborgunar, sem ekki eru
teknar með í niðurstöðutölunum,
nema þær um 600 þús. kr., og þar
sem gera má ráð fyrir að þær flest-
ar verði notaðar, er raunverulegur
tekjuhalli á fjárlögum sem nemur
um V2 milj. kr. — Á fjárlögunum,
sem nú eru í giidi, voru tekjurnar
áætlaðar kr. 10,883,600,00, en gjöld-
in kr. 10,850,957,92, er því um fullr-
ar miljón króna hækkun að ræða
bæði á gjöldum og tekjum. Pannig
hafa lækkunar-efndir Framsóknar-
stjórnarinnar reynst.
Tekjuáœtlun fjárlaganna lýtur
þannig út:
Fasteignaskattur kr. 250,000,00
Tekju- og eignaskattur — 1,200,000,00
Lestagjald af skipum — 40,000,00
Aukatekjur — 450,000,00
Erfðafjárskattur — 30,000,00
Vitagjald — 350,000,00
Leyfisbrjefagjöld — 10,00,00
Stimpilgjald — 325,000,00
Skólagjöld — 15,000,00
Bifreiðaskattur — 60,000,00
Útflutningsgjald — 1,075,000,00
Áfengis- og öltollur — 350,000,00
NÝJA BÍÓ
Laugardagskvöld kl. 8V2 og
Sunnudagskvöldið kl. 8V2S
Kátarsystur
Gamanmynd í 6 löngum þáttum.
Leikin af svenskum og þýskum
úrvals leikurum.
í aðalhluverkunum:
Ivan Hedquist,
Betty Balfour,
Willy Fritsch,
Anna Lísa Ryding
og STINA BERG.
Hugþekk og skemtileg mynd.
BarnaleikvöIIurinn
verður opnaður á morgun. Eru öll börn
í bænuin, 4—12 ára, velkomin þangað.
Völlurinn opinn frá kl. 9 f. h. til 6 s.d.
Sunnud. kl. 5: Alþýðusýningl
Harald Lloyd í
ATVINNULEIT.
Sprenghlægileg mvnd.