Íslendingur - 16.08.1929, Side 2
%
ÍSLENDINGUR
T-I'M'B'D'R
fæst hjá
Tómasi Björnssyni.
Hjer og þar.
Mikill er Erlingur.
Vkm. segir að Síldareinkasalan
sje verk Erlings Friðjónssonar —
»þessi óbreytti alþýðumaður« hali
knúð hana fram »gegnum alla boða
og brim«, og að Alþingi hafi verið
svo hrifið af honum fyrir dugnað-
inn, að það hafi lagt viðreisn síldar-
útvegsins í hans hendur, en Ólafur
Thors og hans líkar dæmdir óhæfir
til að hafa afskifti af þeim málum.
Já, það er ekki oísögum sagt af því,
hvílíkt mikilmenni við eigum i þing-
manninum okkar — að sjálís hans
dómi.
Tunnuleysið.
Erlingur »síldarútvegsbjargvætt-
ur« lætur Vkm. lýsa það uppspuna
einan, að tunnuskortur hafi orðið
hjá Einkasölunni, og færir því til
sönnunar, að Pjetur Ólafsson hafi
gefið upp, að komnar væru inn í
landið — »með því, er til var fyrir
í landinu* — yjir 140 þús. tunn-
ur, og von sje á 8 þús. tunnum
næsta dag, — sem raunar er ekki
nema eins dags forði, að því er
blaðið segir — og 27 þús. tunnum
síðar í mánuöinum. Nú segir blað-
ið að búið sje að salta um 90 þús.
tunnur. Eftir því hefðu um 50 þús.
tunnur átt aö vera ónotaðar í landi
á þriðjudaginn, þegar blaðið kom
út. En hvar eru tunnurnar? Hjer
í Akureyrarumdæmi hefir verið
tunnuskortur í viku hjá flestum síld-
arsöltunarstöðvunum. Skip hafa þess
vegna neyðst til að fara með síld
sína í bræðslu, og sum talið þýðing-
arlaust að fara út. Einn síldarsaltari
varð að kaupa 1000 saltfullar tunn-
ur hjá Kaupfjelagi Eyfiröinga og
annar 500 tunnur, losa úr þeim salt-
ið og baka sjer með því óþarfa ó-
þægindi og útgjöld. Á Siglufirði
hefir einnig verið tunnuskortur hjá
flestum, og hafa síldarverksmiðjurn-
ar notað sjer það til að lælcka síld-
arverðið á bræðslusíld niður í 3 kr.
málið. Ekki hafa þessar 50 þús.
tómu tunnur Einkasölunnar verið
sýnilegar þar. Má vera, að »síldar-
útvegsbjargvætturinn« geymi þær í
pakkhúsi verslunar sinnar og telji
það »bjargráð« fyrir útveginn að
fela þær — eða lýgur hann að les-
endum blaðs síns? En víst er það,
að þessi tunnu-ráðsmenska Síldar-
einkasölunnar mælist illa fyrir, og
ekki síst hjá sjómönnunum, því þeim
þykir lítill fengur í því, freknr en
útgerðarmönnum, að geta ekki kom-
ið veiðinni af höndum sjcr, þegar
þeir koma með hana í höfn. Og
ekki fara horfurnar batnandi á næst-
unni, fyr en þá að þessar 27 þús.
tunnur koma eða 50 þús. »földu«
tunnurnar eru dregnar fram í dags-
ljósið.
Leiguþý auövaldsins.
Vkm. segir að socilademokratar
sjeu leiguþý auðvaldsins. — Jón
Baldvinsson og Hjeðinn hafa báðir
lýst því yfir, að þeir væru social-
demokratar, — og Erlingur skinnið
jafnvel lika.
Frá Halldóri Kiljan Laxness.
Eins og fregn frá FB hermdi í
vor, reis deila í ísl. blöðunum vestra
út af smágrein, sem H. K. L. birti
í Alþýðublaðinu, Reykjavík, í janúar
A T V I N N A .
Ungur maöur, sem hefur starf-
að að járnsmíði, getur fengið fram-
tíðaratvinnu við að setja upp mið-
stöðvareldavjelar. Þarf að fara til
Danmerkur og læra hjá verksmiðj-
unni, sem býr til eldavjelarnar, og
fær hann styrk til þess.
Verslunarmaður getur fengið
atvinnu við heildsölu og skrifstofu-
störf.
Lysthafendur snúi sjer til undirritaðs.
Jón Stefánsson.
Akureyri. — Sími 23.
s. 1. um Upton Sinclair. Gegn H.
K. L. skriíuðu þeir O- T. Johnsson,
Richard Bcck, G. T. Athelstan og
ýmsir fleiri. En þegar H. K. L.
ætlaði að svara fyrir sig, var dálk-
um beggja ísl. blaðanna í Winnipeg
lokað fyrir honum, samkvæmt skip-
un frá eigendum þeirra. Síðan tóku
ýmsir Vestur-íslendingar sig saman
og kærðu H. K. L. íyrir yfirvöldun-
um í Washington; sýndu fram á, að
hann væri hættulegur maður fyrir
frið og viðgang Norður-Ameríku, og
heimtuðu að honum yrði refsað fyr-
ir greinina um Upton Sinclair, ell-
cgar vísar úr landi. Sem afleiðing
af kærum þessum voru lögreglu-
menn settir til höfuðs H. K. L., og
honum skipað að gefa skýrslu af
ritum sínum.
H. K. L. fjekk einn af frægustu
lögmönnum Los Angeles-borgar,
John Beardsley, til þess að annast
fyrir sig varnir, og eru riú allar lík-
ur á, að málið muni detta niður.
Los Angeles-blöðin hafa haft viðtöl
við H. K. L. í sambandi við þetta
mál, sum þeirra birta mynd hans
og æfiágrip, en kærur Vestur-íslend-
inga á hendur honum mælast held-
ur illa fyrir. Upton Sinclair segir
svo í brjefi til H. K. L., dags. 29.
júní: »Jeg hefi pantað nokkur
hundruð eintök af greininni um mál
yðar í Open Forum, sem jeg læt
klippa út og senda til blaða um all-
an heim. öruggasta ráðið til að berja
Innilegt þakklæti vottum við
öllum þeim, sem sýndu oklc-
ur samúð við fráfall og jarð-
arför föðurs og tengdaföðurs
okkar, Jónasar Sigurðssonar.
Húsavík, 14. ágúst 1929.
Guðlaug Porkelsdóttir.
Jón Jónasson.
niður slíkan málarekstur eru víðtæk-
ar, opinberar umræður.«
H. K. L. hefur tilkjmt, að hann
muni skrifa nákvæma tímaritsgrein
til Islands um ofsóknir þessar innan
skamms.
Símskeyti.
(Frá Fróttasfofu (slands).
Rvik 15. ágúst 1929.
Útlend:
Frá Khöfn: Fregnir frá Moskva
herma að hvítagardistar (keisara-
sinnar) studdir af Kínaher hafi ráð-
ist inn á rússneskt landsvæði við
ós Sungarfljóts og Amurfljóts í
Síberíu og hafi rússneski herinn
hörfað undan.'— Fregnir frá Tokio
herma að Kínverjum og Rússum
hafi lent saman nálægt Manchuli.
Frá London: Verkamannafjelagið
og fjelög atvinnurekenda hafa kom-
ið sjer saman um að leggja launa-
deiluna í baðmullariðnaðinum í
geiðadóm.
Frá Berlín: Loftskipið Zeppelin
greifi lagði af stað í hnaltflug í
morgun. Búast menn að loftskip-
ið verði 5 daga á leiðinni til Tokio,
yfir Siberíu. — 20 farþegar taka
þátt í fluginu.
Frá Haag: Fulltrúar stórveldanna
gera tilraunir til þess á einkafund-
um, að jafna ágreiningsmálin, sem
standa í sambandi við Young-sam-
þyktina, einkanlega skiftingu skaða-
„K 0 D A K1‘
IjósmyndavBrur eru pað sem við er miðað um allan heim.
,,Velox“
Fyrsti gasljósapappírinn.
Aftan á hverju blaði er nafnið
>Velox«. Hver einasta örk er reynd
til hlítar í Kodak-verksmiðjum.
I þremur gerðum, eftir því sem
á við um gagnsæi frumplötunnar (nega-
tívplötunnar..
Kodak“ filma
Fyrsta spóiufilman.
Um hverja einustu spólu er þannig
búið í lokuðum umbúðum, að hún
þoli loftslag hitabeltisins.
Biðjið um Kodak-filmu, í gulri
pappaöskju. Það er filman, sem þjer
getið treyst á.
Þjer getið reitt yður á Kodakvörur.
Orðstírinn, reynslan og bestu efnasmiðjur heimsins, þær er búa til Ijósmyndavörur, eru trygging fyrir því.
Miljónasægurinn, sem hefir notað þær, ber vitni um gæði þeirr?.
Kodak Limited, Kingsway, London England.